Fréttir

true

Brimrún Eir Íslandsmeistari

Um síðustu helgi fór fram síðasta umferð Íslandsmeistaramótsins í klifri, en keppt var í öllum aldursflokkum. Skagamenn mættu til leiks með á annan tug klifrara í yngri flokkum. Brimrún Eir Óðinsdóttir tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í 16-19 ára flokki og landaði þar með öðrum Íslandsmeistaratitli sínum fyrir ÍA. Fyrr um helgina hafði Sylvía Þórðardóttir einnig náð…Lesa meira

true

Nýjar áskoranir á vinnumarkaði

Ný skýrsla hagdeildar Alþýðusambands Íslands um vinnumarkaðinn fjallar um þær breytingar sem orðið hafa á íslenskum vinnumarkaði síðustu ár og áratugi. Í henni er m.a. vakin athygli á misræmi milli þróunar starfa og menntunar. Hlutfallslega hröð fjölgun á störfum í þjónustu og verslun, þrátt fyrir síhækkandi menntunarstig þjóðarinnar, vekur upp spurningar um hvort skortur á…Lesa meira

true

Stærsti saltfarmurinn frá upphafi

Saltskipið Citadel frá Hollandi skipaði í gær á land í Ólafsvík 1.500 tonnum af salti. Hluta þess verður svo dreift á aðra útgerðarstaði á Snæfellsnesi, að sögn Pétur Bogasonar hafnarvarðar. Þetta er mesta magn af salti sem skipað hefur verið upp úr einum farmi, að sögn Péturs, sem bendir á að hingað til hafi mest…Lesa meira

true

Slaktaumatölt Vesturlandsdeildarinnar í boði Hótel Húsafells

Annað mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum fer fram föstudagskvöldið 9. mars í Faxaborg, Borgarnesi. Keppnisgrein kvöldsins er slaktaumatölt og verður þetta í annað sinn sem keppt verður í þeirri grein í deildinni. Berglind Ragnarsdóttir með Óm frá Brimilsvöllum sigraði í fyrra og má gera ráð fyrir því að þau geri sér ferð niður í Borgarnes til…Lesa meira

true

Áfram óbreytt röð stærstu útgerðarfyrirtækjanna

Fiskistofa hefur eftirlit með því að yfirráð einstakra aðila yfir aflahlutdeildum fari ekki umfram þau mörk sem lög kveða á um. Úthlutað aflamark fyrirtækis í hverri kvótategund á grundvelli hlutdeilda er reiknað til þorskígilda. Þorskígildin sem þannig eru eignuð hverju fyrirtæki eru síðan lögð saman. Litlar breytingar eru á hvaða fyrirtæki eru í efstu sætunum…Lesa meira

true

Snæfell tapaði naumlega gegn Gnúpverjum

Snæfell tapaði naumlega fyrir Gnúpverjum, 99-95, eftir kaflaskiptan leik liðanna í 1. deild karla í körfuknattleik á laugardag. Leikið var í Fagralundi í Kópavogi, þar sem sunnanmenn leika heimaleiki sína. Gnúpverjar voru mun sterkari í upphafsfjórðungnum en Snæfellingum gekk illa að finna taktinn. Fyrir vikið leiddu heimamenn 22-12 eftir fyrsta leikhluta. Snæfellingar voru sterkari í…Lesa meira

true

ÍA án sigurs fyrir lokaleikinn

Skagamenn máttu játa sig sigraða gegn Vestra, 84-96, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var á Akranesi. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og þau skiptust á að leiða. Þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður var Vestri stigi yfir og þeir náðu heldur yfirhöndinni eftir það. Skagamenn fylgdi…Lesa meira

true

Tímarit og myndasögur langvinsælast í útlánum bókasafna

Topplistar útlána bókasafna eru listar yfir vinsælustu eða mest lánuðu titlana. Á Landskerfi bókasafna er hægt að kynna sér það sem mest er lánað eftir t.d. safnaflokkum, landssvæðum, efnisflokkum, árum og ársfjórðungum. Topplistar fyrir einstök bókasöfn eru aðgengilegir innskráðum notendum á þjónustuvefnum. Meðfylgjandi listi er niðurstaða ef valið er Vesturland og Vestfirðir árið 2017 í…Lesa meira

true

Skallagrímur krækti í mikilvæg stig í Stykkishólmi

Snæfell tók á móti Skallagrími í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna á laugardag. Leikurinn var báðum liðum mikilvægur í baráttunni um fjórða sæti deildarinnar og þar með sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í vor. Fór svo að lokum að Skallagrímur hafði sigur, 74-87 og lyfti sér þar með upp í fjórða sætið. Skallagrímskonur voru grimmari í…Lesa meira

true

Fjármálaráðherra vill að ríkið eignist Snæfellsjökul

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur fyrir hönd íslenska ríkisins afhent óbyggðanefnd kröfur ríkisins um þjóðlendur á svonefndu svæði 9B, sem tekur til Snæfellsness ásamt hluta úr Borgarbyggð og Dalabyggð, þ.e. fyrrum Kolbeinsstaðahreppi og Skógarstrandarhreppi. Óbyggðanefnd er sjálfstæð úrskurðarnefnd sem starfar á grundvelli þjóðlendulaga nr. 58 frá 1998. Tilkynning um kröfurnar var birt í Lögbirtingablaðinu…Lesa meira