Fréttir

true

Upp með sokkana

Ár hvert er marsmánuður tileinkaður körlum og krabbameinum í Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélags Íslands. Nú er sjónum beint að algengasta krabbameini hjá körlum, krabbameini í blöðruhálskirtli. Safnað er fyrir Karlaklefanum, vefgátt fyrir karla, þar sem finna má upplýsingar um allt sem viðkemur karlmönnum og krabbameinum. Seldir verða sokkar í rakarastofustíl til styrktar átakinu 5.-19.…Lesa meira

true

Alma skipuð landlæknir

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Ölmu Dagbjörtu Möller nýjan landlækni frá 1. apríl næstkomandi. Alma verður fyrst kvenna til að gegna þessu embætti hér á landi. Umsækjendur um stöðuna voru sex og var Alma önnur tveggja sem lögskipuð hæfnisnefnd mat hæfasta. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Alma hafi sérfræðiviðurkenningu og doktorsgráðu í svæfinga- og…Lesa meira

true

Skattskil standa nú yfir

Nú hefur ríkisskattstjóri opnað fyrir skil á netframtali einstaklinga á vefsíðunni www.skattur.is. Almennur skilafrestur er til 13. mars. Hægt er að sækja um frest en framlengdur frestur er til 16. mars. „Ríkisskattstjóri hvetur framteljendur eindregið til að nota rafræn skilríki við framtalsskilin. Rafræn skilríki eru almennt álitin öruggasti auðkenningarmáti sem framteljendum býðst í dag,“ segir…Lesa meira

true

Háskólarnir taka höndum saman um kynningarstarf

„Hver króna sem við fjárfestum inn í háskólastigið skilar sér áttfalt inn í hagkerfið,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra þegar hún setti dagskrá Háskóladagsins síðastliðinn laugardag. „Mér finnst okkur hafa tekist mjög vel til síðustu hundrað árin en við þurfum líka að fara inn í næstu hundrað ár með sama hugarfari og ná enn lengra og…Lesa meira

true

Búnaðarþing sett í dag

Búnaðarþing verður sett í dag með hátíðardagskrá klukkan 10:30 í Súlnasal Hótel Sögu í Reykjavík. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Hér á ég heima“. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, flytur setningarræðu og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ávarpar gesti. Landbúnaðarverðlaun verða veitt og tónlistarmenn úr Smásveit Reykjavíkur og Schola cantorum koma fram. Forseti Íslands,…Lesa meira

true

Bjargað úr sjálfheldu á Heiðarhorni

Um miðjan dag barst björgunarsveitum á Vesturlandi boð um að halda í björgunarleiðangur á Heiðarhorn í Skarðsheiði. Þar voru tveir ungir menn í sjálfheldu og óskuðu aðstoðar. Mikill viðbúnaður var vegna þessa, en á þriðja tug björgunarsveitarmanna með snjóbíla, sexhjól, á jeppum og fótgangandi hélt á staðinn úr fjórum áttum. Nú undir kvöld komst björgunarsveitarfólk…Lesa meira

true

Skaginn 3X færði Höfða að gjöf hjartalínuritstæki

Í liðinni viku kom Guðrún A. Sveinsdóttir frá Skaganum 3X á Akranesi og færði hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða að gjöf EKG hjartalínuritstæki af fullkomnustu gerð. Að sögn Kjartans Kjartanssonar framkvæmdastjóra Höfða var eldra tæki heimilisins úr sér gengið og því var þessi gjöf afar kærkomin fyrir starfsemina. Hallveig Skúladóttir hjúkrunarforstjóri veitti gjöfinni viðtöku. Þetta er…Lesa meira

true

Flytja inn og selja kajaka sem henta öllum

Bræðurnir Ómar og Fannar Helgasynir opnuðu vefverslun árið 2016 þar sem þeir selja kajaka og annan búnaði sem því sporti fylgir. Verslunin fékk nafnið Ósinn eftir æskuheimili þeirra bræðra, Ósi í Hvalfjarðarsveit. „Þetta eru ekki þessir hefðbundnu lokuðu kajakar sem margir þekkja, heldur erum við að selja svokallaða „sit on top“ kajaka. Þeir eru opnir…Lesa meira

true

Bora eftir heitu vatni í Svínadal

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 13. febrúar síðastliðinn að láta bora eftir heitu vatni í landi Eyrar í Svínadal á þessu ári. Gengið verður til samninga við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um verkefnið. Kostnaður vegna heitavatnsleitar er áætlaður um 45 milljónir króna. Gert er ráð fyrir þessari fjárfestingu í framkvæmdaáætlun ársins 2018 en einnig…Lesa meira

true

Háskóladagurinn er á morgun

Háskóladagurinn 2018 fer fram á morgun, laugardaginn 3. mars milli kl. 12:00 og 16:00. Allir háskólar landsins standa að deginum. Tilgangur hans að kynna fjölbreytt námsframboð sem í boði er hér á landi. Kynningarnar fara fram í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Boðið verður upp á fríar strætóferðir milli staða. Á Háskóladeginum…Lesa meira