
Lögreglan á Vesturlandi tók í dag í notkun bifreið sem búin er stafrænni hraðamyndavél til eftirlits með ökuhraða. Bifreiðin verður við hraðamælingar vítt og breitt um umdæmið en sérstök áhersla verður á hraðamælingar á götum við grunn- og leikskóla, segir í tilkynningu frá lögregluembættinu. „Þeir ökumenn sem aka yfir leyfilegum hámarkshraða mega búast við sektum.…Lesa meira







