Fréttir

true

Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi samþykkir framboðslista sinn

Á fundi fulltúaráðs sjálfstæðisfélagsins á Akranesi í gærkvöldi var samþykkt samhljóða tillaga kjörnefndar að framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fara laugardaginn 26. maí næstkomandi. Listinn er því fyrsti framboðslisti sem samþykktur er á Vesturlandi í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga. Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi átti á yfirstandandi kjörtímabili fimm fulltrúa í bæjarstjórn og skipar meirihluta ásamt einum…Lesa meira

true

Vísindarannsóknin Áfallasaga kvenna

Rannsóknin Áfallasaga kvenna – Vísindarannsókn Háskóla Íslands er hafin. “Rannsóknin er stærsta vísindarannsókn sem framkvæmd hefur verið á íslenskum konum og jafnframt ein stærsta vísindarannsókn á þessu sviði á heimsvísu,” segir í tilkynningu frá HÍ. “Áfallasaga kvenna miðar að því að rannsaka áhrif áfalla, þ.á.m. ofbeldis, á heilsufar kvenna. Nú á vormánuðum 2018 er hafið…Lesa meira

true

Skýrist í dag hvort samningum á almenna markaðinum verður sagt upp

Samninganefnd Alþýðusambands Íslands, sem í eiga sæti formenn landssambandanna fimm innan ASÍ, fulltrúi félaga með beina aðild, formenn VR og Eflingar auk forseta ASÍ, samþykkti samhljóða á fundi sínum í morgun að gera ákvörðun formannafundar ASÍ að sinni. Það mun skýrast í dag hvort samningum á vinnumarkaði verður sagt upp. Formannafundurinn hófst klukkan 11 í…Lesa meira

true

Svana Hrönn er nýr formaður Glímusambands Íslands

Um liðna helgi fór fram 54. ársþing Glímusambands Íslands þar sem ljóst var að nýr formaður myndi taka við þar sem sitjandi formaður, Ólafur Oddur Sigurðsson ætlaði ekki að gefa kost á sér áfram. Þau Svana Hrönn Jóhannsdóttir úr Hörðudal í Dölum og Sigurjón Leifsson gáfu kost á sér til formanns og sigraði Svana Hrönn…Lesa meira

true

Atvinnutekjur á Vesturlandi eru undir landsmeðaltali

Meðalatvinnutekjur á Vesturlandi voru rétt undir landsmeðaltali árið 2016. Innan landshlutans eru þær þó afar mismunandi. Á suðursvæðinu með Akranes og Hvalfjarðarsveit sem og á Snæfellsnesi voru meðalatvinnutekjur aðeins yfir landsmeðaltali en langt undir landsmeðaltali í Borgarbyggð, Dalabyggð og Skorradalshreppi, þar sem þær voru aðeins ríflega 80% af meðaltalinu. Langstærsta atvinnugreinin á Akranesi og í…Lesa meira

true

Skóli sem frá fyrstu tíð var ætlað að mennta fólk til forystu í íslensku atvinnulífi

Boðið var til hátíðardagskrár við Háskólann á Bifröst síðastliðinn fimmtudag og markaði viðburðurinn upphaf fjölbreyttrar dagskrá allt þetta ár vegna hundrað ára afmsælis Samvinnuskólans sem síðar þróaðist á háskólastig og varð að endingu Háskólinn á Bifröst. Ráðstefnunni á Bifröst stýrði Gísli Einarsson fréttamaður og einn af fyrrum nemendum. Þar voru flutt allmörg erindi þar sem…Lesa meira

true

Stefna á aðalfund í Sigurfara

„Það hefur ekki farið mikið fyrir starfsemi Sigurfara – siglingafélags Akraness síðustu vikur. Það þýðir þó ekki að málefni félagsins séu í dvala, þvert á móti. Félagið er í uppbyggingu og margt farið fram sem lítið hefur farið fyrir út á við. Við höfum verið í samskiptum við yfirvöld Faxaflóahafna og Akranesbæjar vegna aðstöðu. Sendar…Lesa meira

true

Fálki talinn hafa flogið á rúðu

Anna Guðrún Aðalsteinsdóttir matráður við Fjölbrautaskóla Snæfellinga gekk nýverið fram á dauðan fálka við skólann. „Ég sá eitthvað fiðrað þarna undir veggnum og fór að athuga með þetta og sá þá þennan fálka-ræfil þarna,“ sagði Anna í stuttu spjalli við fréttaritara. Líklegast hefur fálkinn flogið á rúðu en fuglinn fannst undir einni slíkri á norðurhlið…Lesa meira

true

Rútan enn í vegkantinum

Athygli vegfarenda um Borgarfjarðarbraut er vakin á því að rútan sem fauk út af veginum og á hliðina síðastliðinn sunnudag er enn á sama stað, tveimur dögum eftir óhappið. Vegfarendum, sem leið hafa átt um veginn í myrkri hefur brugðið nokkur, enda nær horn hennar lítið eitt inn á vegbrúnina. Einn vegfarandi orðaði svo að…Lesa meira

true

Karlmenn og metoo byltingin

Magnús Orri Schram, stjórnarmaður í UN Women, verður með fyrirlestur í Tónbergi Akranesi á morgun, miðvikudaginn 28. febrúar, klukkan 19:30. Hann ætlar að fjalla um ábyrgð karlmanna í breyttum heimi vegna metoo byltingarinnar. Í byrjun janúar var Magnús Orri með vinnustofu fyrir stjórnendur Akraneskaupstaðar þar sem fólk var mjög ánægt með framtakið og kallaði eftir…Lesa meira