Fréttir

true

Afmælisár hefst með Bifrastarþingi

Formlegt upphaf 100 ára afmælisárs Háskólans á Bifröst verður fimmtudaginn 22. febrúar næstkomandi kl. 14.00 í Hriflu, hátíðarsal skólans. Gísli Einarsson verður kynnir og samkomustjóri. Meðal mælenda eru Þórir Páll Guðjónsson fyrir hönd Hollvinasamtaka Bifrastar, Jón Sigurðsson, fyrrverandi rektor skólans, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, Sigrún Jóhannesdóttir, fyrrverandi vararektor…Lesa meira

true

Ófærð og bylur um allt Vesturland

Miðað við meðfylgjandi kort Vegagerðarinnar frá klukkan 13 í dag er ekkert ferðaveður á Vesturlandi eins og sakir standa. Vegir eru flestir merktir ófærir, eða að ruðningur og hálkuvörn er í gangi. Víða er skafrenningur. Blindhríð er nú í öllum landshlutanum og mannamótum frestað af þeim sökum.    Lesa meira

true

Raggamessu frestað um viku

Messa sem vera átti í Akraneskirkju í dag með Ragga Bjarna og Þorgeiri Ástvaldssyni fellur niður vegna veðurs. Þess í stað munu þeir koma í messu næstkomandi sunnudag kl. 17. -fréttatilk.Lesa meira

true

Valdís Þóra höggi frá niðurskurði

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir varð í dag höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn á ActewAGL Canberra Classic mótinu sem fer fram á Evrópumótaröðinni, en spilað í Ástralíu. Valdís Þóra lék hringina tvo samtals á tveimur höggum yfir pari en hefði þurft að leika á höggi yfir pari eða betur til þess að komast…Lesa meira

true

Búið að loka nokkrum fjallvegum og varað við slæmu veðri

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er víða hálka eða snjóþekja á vegum á Vesturlandi. Þæfinsfærð er á Holtavörðuheiði og hefur henni og Fróðárheiði nú verið lokað. Þegar kemur fram á daginn fer veður versnandi, fyrst á Norðurlandi en síðan á Vestfjörðum við Breiðafjörð og í Borgarfirði. 18-22 m/s verður með snjókomu, skafrenningi og blindu færi.  Hvessir…Lesa meira

true

Góð stemning var á söngkeppni SamVest í gær

Um 240 unglingar af öllu Vesturlandi voru saman komnir á söngkeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi sem haldin var í gær, fimmtudaginn 8. febrúar, í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þar kepptu ellefu atriði frá átta félagsmiðstöðvum af öllu Vesturlandi um tvö sæti á söngkeppni Samfés sem fram fer í Laugardalshöll laugardaginn 24. mars. Að keppni lokinni var haldið…Lesa meira

true

Vegir gætu lokast fyrirvaralaust

Éljagangur hefur verið á Vesturlandi og skafrenningur. Víðast hvar í landshlutanum er hálka eða snjóþekja á vegum og þæfingur á nokkrum sveitavegum. Vindstyrkur mun fara vaxandi með kvöldinu og í nótt. Í tilkynningu frá Vegagerðinni er varað við snjófjúki og slæmu skyggni undir morgun. Vindur mun vaxa við birtingu í fyrramálið með skafrenningi og snjó…Lesa meira

true

Nacho leikur áfram með Víkingi Ó.

Spánverjinn Nacho Heras Anglada hefur samið við Víking Ó. að nýju og mun leika með Ólafsvíkurliðinu í 1. deild karla í knattspyrnu í sumar. Samningurinn gildir til loka komandi keppnistímabils. Nacho gekk til liðs við Víking fyrir síðasta tímabil. Hann spilaði 20 leiki með liðinu og þótti standa sig vel. Hann hefur nú ákveðið að…Lesa meira

true

Bjóða fólki áskrift af hesti

Hjónin Jón Magnússon og Daniela Roman reka Hestamiðstöðina Borgartún að Æðarodda við Akranes. Þar bjóða þau meðal annars upp á hestaleigu og að taka hest í áskrift. Blaðamaður settist niður með Jóni og Ester Björk Magnúsdóttur, bróðurdóttur Jóns, í hesthúsinu og ræddi við þau um hestamennskuna og starfsemina hjá Hestamiðstöðinni Borgartúni. „Við bjóðum upp á…Lesa meira

true

Nýr samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur tilkynnt um breytingar á samráðshópi vegna endurskoðunar búvörusamninga. Átta fulltrúar verða í nýjum samráðshópi og verða tveir formenn, þau Haraldur Benediktsson bóndi og alþingismaður og Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Ráðherra hefur sent skipunarbréf til allra fulltrúanna auk erindisbréfs þar sem verkefni hópsins eru skilgreind. Auk formannanna eru í…Lesa meira