Fréttir

true

Röskva sigraði Stúdentaráðskosningarnar

Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands fóru fram í gær og í fyrradag. Kosningarnar fóru fram í gegnum Uglu, innri vef skólans. Úrslit kosninganna urðu þau að Röskva fékk 18 sæti af 27 í Stúdentaráði en Vaka fékk níu fulltrúa kjörna. Eru þetta sömu úrslit og í kosningunum á síðasta ári. Þrír Vestlendingar eru meðal þeirra…Lesa meira

true

Vinna að hefjast við Travel West Iceland 2018

Á vegum útgáfuþjónustu Skessuhorns ehf. er nú að hefjast vinnsla á árlegu ferðablaði um Vesturland og kemur það út í maí. Blaðið verður að þessu sinni gefið út í 60 þúsund eintökum á ensku og íslensku. Þetta er 19. árgangur af blaðinu, en útgáfa þess hefur einungis einu sinni fallið niður á síðustu tuttugu árum,…Lesa meira

true

Erfið færð og víða ófært

Fjallvegirnir yfir Holtavörðuheiði og Bröttubrekku eru nú ófærir. Á meðfylgjandi skjáskoti af korti Vegagerðarinnar má sjá að víða á vegum í landshlutanum er hálka og skafrenningur. Gert er ráð fyrir að veður skáni um tíma eftir hádegi í dag en um helgina spáir leiðindaveðri víða um land og færð mun að líkindum víða spillast.Lesa meira

true

Liðka þarf til svo snjómokstur gangi sem greiðast

„Nú stendur yfir vetrarríki með snjókomu, vindgangi og skafrenningi,“ segir orðrétt í tilkynningu á vef Borgarbyggðar þar sem fjallað er um snjómokstur og mikilvægi þess að íbúar létti sem kostur er undir svo snjóruðningur gangi greitt. „Þetta veðurfar hefur í för með sér mikið álag á alla, bæði íbúana sem þurfa að komast leiðar sinnar,…Lesa meira

true

Samþykkt að hefja endurskoðun fjallskilamála í Borgarbyggð

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Geirlaugar Jóhannsdóttur um að stofnaður verði vinnuhópur sem fær það verkefni að endurskoða fyrirkomulag fjallskila í sveitarfélaginu. Í bókun segir að tilgangurinn sé að vinna að samræmingu við framkvæmd fjallskila og hugsanlega fækka afréttarnefndum. Þá er markmið vinnuhópsins að auka jafnræði landeigenda með samræmdri gjaldheimtu. „Mikilvægt…Lesa meira

true

Andrea framlengir við Snæfell

Körfuknattleikskonan Andrea Björt Ólafsdóttir hefur framlengt samning sinn við Snæfell um eitt ár. Andrea leikur stöðu framherja og hefur spilað með Snæfelli síðan 2016. Andrea hefur leikið vel með Snæfelli í Domino‘s deild kvenna á yfirstandandi keppnistímabili. Hún hefur að meðaltali skorað 5,1 stig, tekið 4,8 fráköst og gefið 2,6 stoðsendingar og er með 9,1…Lesa meira

true

Blint og slæmt veður til ferðalaga þar til um hádegi

Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú rétt í þessu segir að það verði skafrenningur, blinda og él þar til undir hádegi að veður tekur að lagast í Borgarfirði, á Snæfellsnesi og á sunnanverðum Vestfjörðum. Athygli er vakin á mjög slæmri veðurspá fyrir helgina með ofankomu og byl. Síðdegis í dag verður gluggi milli lægða en á…Lesa meira

true

Gaf handlækningadeildinni leikjatölvu

Ólafur Dagur Signarson, tíu ára piltur á Akranesi, kom nýverið færandi hendi á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Færði hann B-deild sjúkrahússins, handlækningadeildinni, Playstation 3 leikjatölvuna sína að gjöf, ásamt nokkrum tölvuleikjum. Vildi Ólafur gefa tölvuna sína á góðan stað þar sem aðrir gætu notið góðs af. „Þökkum við honum kærlega fyrir gjöfina,“ segir Birna Katrín…Lesa meira

true

Íbúðir á Bifröst boðnar til leigu

Um síðustu mánaðamót tóku nýir eigendur við stórum hluta fasteigna í háskólaþorpinu á Bifröst í Borgarfirði. Skessuhorn sagði nýverið frá sölunni. Nýir eigendur hafa nú keypt rekstur á Hótel Bifröst, húsið Hamragarða auk fjölbýlishúss með alls 48 íbúðum. Nú er unnið að endurskipulagningu á húsnæðismálum hótelsins en stefnt er að því til framtíðar að starfsemi…Lesa meira

true

Hvítárbrúin opnaði á sínum tíma dyr innan héraðs

Sýning Safnahúss Borgarfjarðar um byggingu Hvítárbrúarinnar 1928 verður einn dagskrárliða á Evrópsku ári menningararfs (European Year of Cultural Heritage 2018). Verður sýningin opnuð 1. nóvember og unnin í samvinnu við Helga Bjarnason blaðamann sem hafði frumkvæði að verkefninu. Einnig mun Vegagerð ríkisins koma að málinu. Það er Minjastofnun Íslands sem velur viðburði á dagskrá menningarársins…Lesa meira