Fréttir

true

Ýmsar aðgerðir lagðar til svo bæta megi rekstur einkarekinna fjölmiðla

Nefnd um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla hefur eftir mikla töf lokið störfum og afhent skýrslu sína til menntamálaráðherra. Það var að tillögu Illuga Gunnarssonar fyrrum menntamálaráðherra sem starfshópur var skipaður til að meta hvernig bregðast megi við viðvarandi vanda fjölmiðla í einkarekstri. Í skýrslunni er ítarleg umfjöllun um stöðu fjölmiðla bæði hér á landi og erlendis…Lesa meira

true

Skallagrímskonur misstu af sigrinum

Skallagrímur mátti sætta sig við tap gegn Val, 77-73, eftir æsispennandi lokamínútur þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gær. Leikið var á Hlíðarenda í Reykjavík. Valskonur byrjaði leikinn af miklum krafti en Skallagrímskonur áttu erfitt uppdráttar. Þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður leiddi Valur 15-4. En þá tók Skallagrímur við sér og náði að…Lesa meira

true

Víða hálka á vegum

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er nú hálka á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Fróðárheiði. Hálkublettir eða snjóþekja eru á láglendi. Ófært er á Laxárdalsheiði.Lesa meira

true

Ljósmyndabókin Fornar hafnir komin út hjá Sæmundi

Út er komin bókin Fornar hafnir – útver í aldanna rás, eftir Karl Jeppesen. Í henni er að finna ljósmyndir og frásagnir af 160 verstöðvum á Íslandi. Ferðalagið hefst á Horni og fer síðan hringferð allt í kringum landið. Áningarstaðirnir eiga það allir sameiginlegt að þaðan réru forfeður okkar í landinu til fiskjar. „Allvíða má…Lesa meira

true

Með tvær hvítar til að stofninn deyi ekki út!

Óskar Halldórsson bóndi á Krossi í Lundarreykjadal hefur eina dellu sem aðskilur hann frá flestum öðrum bændum í landinu. Hann er með ólæknandi dellu fyrir mislitu fé. Hann kveðst alla tíð haft ánægju af að halda mislitt fé og sem fjölbreyttast, en viðurkennir að þetta sé della sem hafi ekki mikið notagildi, en skaði hinsvegar…Lesa meira

true

Stendur fyrir sjálfsstyrkingarnámskeiði fyrir ungt fólk

Í byrjun febrúar mun Þráinn Haraldsson prestur við Akraneskirkju standa fyrir sjálfsstyrkingarnámskeiði fyrir fólk á aldrinum 16-20 ára. „Hugmyndin hefur verið til staðar í nokkurn tíma og á rætur að rekja til þess að ég hef mikið unnið með ungu fólki. Eitt af því sem ég hef gert síðan ég kom til starfa hér á…Lesa meira

true

Skarðsfeðgar bæta aðstöðuna og auka starfsemina

Feðgarnir Árni Ingvarsson á Skarði í Lundarreykjadal og tveir sona hans, Hjálmur og Þorvaldur, tóku í haust í gagnið nýja skemmu þar sem þeir reka fyrirtækið Búhag ehf. Skemman er rúmgóð, um 450 fermetrar að flatarmáli og keypt frá Landstólpa. Aðspurðir láta þeir vel af verkefnastöðunni en þeir hafa á undanförnum árum tekið að sér…Lesa meira

true

Hreindýrakvóti aukinn frá fyrra ári

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2018 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1450 dýr á árinu, 1061 kú og 389 tarfa. Um er að ræða fjölgun um 135 dýr frá hreindýrakvóta fyrra árs. Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði…Lesa meira

true

Þátttaka vestlenskra ferðaþjóna aldrei verið betri

Mannamót markaðsstofa landshlutanna var haldið í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag. Var það afar vel sótt og komust færri að en vildu. Mannamóti er ætlað að skapa vettvang fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni til að kynna starfsemi sína fyrir ferðaskrifstofum, sem og að efla tengsl innan greinarinnar sjálfrar. Þátttaka vestlenskra ferðaþjóna var afar góð, en alls skráðu sig…Lesa meira

true

Ályktað um umferðaröryggi á Vesturlandsvegi

Á síðasta fundi byggðarráðs Borgarbyggðar var lagt fram bréf bæjarstjóra Akranesskaupstaðar frá 16. janúar sl. þar sem fjallað er um ástand vegamála á Kjalarnesi. Byggðarráð ræddi málið og samþykkti eftirfarandi bókun:  „„Byggðarráð Borgarbyggðar tekur undir málflutning þeirra aðila sem hafa vakið athygli á ástandi Vesturlandsvegar á Kjalarnesi og nauðsyn þess að veita nægilegum fjármunum til…Lesa meira