Fréttir

true

Kalla á aðgerðir til að tryggja öryggi vegfarenda

„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur undir með þeim sem vakið hafa athygli á ástandi Vesturlandsvegar á Kjalarnesi og nauðsyn þess að aðgreina akstursstefnur og tvöfalda þennan vegkafla,“ segir í ályktun sem Björgvin Helgason oddviti lagði fram á fundi sveitarstjórnar í gær og samþykkt var samhljóða. „Mikil aukning umferðar á síðastliðnum árum, svo sem vegna atvinnusóknar, fjölgunar ferðamanna…Lesa meira

true

Alvarlegt ástand Vesturlandsvegar á Kjalarnesi

Sífellt bætist í hóp þeirra sem mótmæla aðgerðaleysi stjórnvalda til vegabóta á Vesturlandsvegi. Undanfarna daga hafa slys og óhöpp verið nær daglega á veginum og skemmst að minnast þess að ungur maður lét lífið í árekstri tveggja bíla 3. janúar síðastliðinn. Fólk er nú algjörlega búið að fá nóg af ástandinu og krefst tafarlausra úrbóta.…Lesa meira

true

Víða hvasst við fjöll og slæm færð á fjallvegum

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er víða á vegum á Vesturlandi. Hvasst er enn á Kjalarnesi og á sunnanverðu Snæfellsnesi og reiknað með vindhviðum á Kjalarnesi 30-35 m/sek þar til undir kvöld. Þungfært er á Fellsströnd og Skarðsströnd en ófært er á Laxárdalsheiði. Í morgun þveraði flutningabíll veginn yfir Holtavörðuheiði sem jafnframt er erfiður yfirferðar. Í…Lesa meira

true

Berglind er íþróttamaður Snæfells 2017

Berglind Gunnarsdóttir körfuboltakona var um helgina krýnd Íþróttarmaður Snæfells 2017. „Berglind er uppalin Hólmari í húð og hár og hefur átt stóran þátt í árangri kvennaliðs Snæfells þrátt fyrir að slíta krossbönd og fara ýtrekað úr axlalið á sínum ferli. Ekkert stoppar þessa afrekskonu að standa vaktina fyrir Snæfell. Ásamt þessu er Berglind í Landsliði…Lesa meira

true

Máni Hilmarsson er Íþróttamaður UMSB 2017

Kjöri Íþróttamanns Borgarfjarðar var lýst á laugardaginn við athöfn í félagsheimilinu Þinghamri, en Umf. Stafholtstungna tók að sér að halda hátíðina að þessu sinni. Í frétt á Facebook síðu UMSB segir að margt frábært íþróttafólk hafi verið tilnefnt að þessu sinni. Ekki þurfti að koma á ávart að fyrir valinu varð Máni Hilmarsson úr hestamannafélaginu…Lesa meira

true

ÍA semur við bandarískan markvörð

Bandaríski markvörðurinn Tori Ornela hefur skrifað undir samning við ÍA og mun leika með liðinu í 1. deild kvenna næsta sumar. Tori er 25 ára gömul og lék með Haukum í Pepsi deildinni síðasta sumar. Á vef knattspyrnufélagsins segir að ljóst hafi verið, eftir að Katrín María Óskarsdóttir ákvað að taka sér frí frá knattspyrnu,…Lesa meira

true

Póstburðardögum einnig fækkað í þéttbýli

Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun þess efnis að ekki séu skilyrði til að breyta áætlun Íslandspósts um að fækka dreifingardögum pósts í þéttbýli frá og með 1. febrúar nk. Samkvæmt tilkynningu Íslandspósts áformar fyrirtækið að fækka dreifingardögum bréfapósts þannig að hvert heimili í þéttbýli fái til sín bréfapóst annan hvern dag, með þjónustustiginu D+3.…Lesa meira

true

Íbúafundi í Dölum frestað

Íbúafundi sem boðað hafði verið til í Dalabúð í Búðardal í kvöld, miðvikudaginn 24. janúar, hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. „Að höfðu samráði við veðurfræðing á Veðurstofu Íslands hefur verið tekin ákvörðun um að fresta íbúafundinum,“ segir í tilkynningu frá Dalabyggð. Á fundinum var áformað að kynna fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2018 til 2021…Lesa meira

true

Þungfært á Fellsströnd og Skarðsströnd

Hálka eða snjóþekja er víða á vegum á Vesturlandi og sumsstaðar snjókoma. Þungfært er á Fellsströnd og á Skarðsströnd í Dölum. Með lægð fyrir austan land, sem þokast nær, er útlit fyrir vaxandi hríðarveður samfara NA hvassviðri eða stormi frá Eyjafirði, Öxnadalsheiði og Siglufjarðarvegi austur um á Austfirði. Verður hvað verst í kvöld og nótt…Lesa meira

true

Baldur lagður af stað

Á slaginu klukkan 15 í dag var Breiðafjarðarferjunni Baldur siglt í fyrstu áætlunarferðina, eftir viðgerð á aðalvélinni, með viðkomu í Flatey og stefnuna á Brjánslæk. Þaðan verður siglt að nýju klukkan 18 í kvöld. Meðfylgjandi mynd tók Sumarliði Ásgeirsson ljósmyndari Skessuhorns áðan.Lesa meira