Fréttir

true

„Alvarlegt ástand Vesturlandsvegar á Kjalarnesi“

„Við undirritaðir tökum eindregið undir áskorun bæjarstjórnar Akraness á samgönguyfirvöld þess efnis að þegar verði brugðist við alvarlegu ástandi Vesturlandsvegar á Kjalarnesi og frekari fjármunum veitt til nauðsynlegra úrbóta varðandi tvöföldun vegarkaflans. Jafnframt minnum við á áður sendar ábendingar um að afar brýnt sé að lagfæra gatnamótin af Vesturlandsvegi inn á Grundartangasvæðið með hliðsjón af…Lesa meira

true

Baldur sennilega í siglingu á morgun

„Enn er unnið að lokafrágangi viðgerðar á aðalvél Baldurs en því miður eru litlar líkur á að sú vinna klárist fyrir mánudaginn [í dag] og er því líklegt að fyrsta ferð verði ekki fyrr en á þriðjudag.“ Þannig hljóðaði tilkynning sem Sæferðir settu inn á Facebook síðu sína á laugardaginn. Nú krossa menn fingur og…Lesa meira

true

ÍA tapaði tvisvar á Ísafirði

Skagamenn lögðu land undir fót og ferðuðust vestur á Ísafjörð um síðustu helgi og léku tvisvar gegn Vestra í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikirnir fóru fram í gær og í fyrradag. Báðum lauk þeim með sigri Vestra; 96-71 annars vegar og 93-80 hins vegar. Fyrri leikur liðanna var ekki mikið fyrir augað og heimamenn…Lesa meira

true

Vetrarþjónusta aukin á þjóðvegum landsins

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Vegagerðin hafa ákveðið að auka vetrarþjónustu og hálkuvarnir á ákveðnum köflum á þjóðvegum landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Markmiðið er að bæta umferðaröryggi og er þarna verið að bregðast við kröfu atvinnulífsins en ekki síst ferðaþjónustunnar sem er að fá til sín gesti allt árið. Undanfarið hafa…Lesa meira

true

Snæfellingar misstigu sig á ögurstundu

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn baráttuglöðum Gnúpverjum, 79-83, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Liðin fylgdust að fyrstu mínúturnar áður en gestirnir náðu fjögurra stiga forskoti. Snæfell jafnaði seint í leikhlutanum en Gnúpverjar skoruðu síðustu körfuna í fyrsta og leiddu með tveimur stigum að upphafsfjórðungnum loknum, 21-23. Snæfell komst…Lesa meira

true

Rúmar tvær milljónir í minningarsjóð Arnars Dórs

Alls söfnuðust rúmlega 2,1 milljón króna í minningarsjóð Arnars Dórs Hlynssonar, ungs Skagamanns sem lést langt fyrir aldur fram í september síðastliðnum. Sjóðurinn var stofnaður af fyrirtækinu Sansa, árgangi 1979 á Akranesi og Íþróttabandalagi Akraness. Það var Þórður Már Gylfason í Sansa sem hratt söfnuninni formlega af stað fimmtudaginn 11. janúar með áskorunum á Facebook.…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu eftir framlengingu

Einn leikur fór fram í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Það var viðureign Snæfells og Hauka í Stykkishólmi. Leikurinn var jafn og spennandi og úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Haukar höfðu sigur með 79 stigum gegn 76 stigum Snæfells. Haukar voru sterkari í upphafi og Snæfell fann ekki taktinn í vörninni.…Lesa meira

true

Spá hvössum vindi í dag og kvöld

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og þæfingsfærð og skafrenningur á mörgum fjallvegum. Vaxandi vindur verður á sunnanverðu landinu þegar líður á daginn og spáð stormi undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Á Hellisheiði og Mosfellsheiði verður hríðarveður og blint einkum frá kl. 18 til 24 og vindur 16-20 m/s. Hugsanlega…Lesa meira

true

Haldin verða tvö mót í KB mótaröðinni

Mótanefnd hestamannafélaganna sem staðið hafa að KB mótaröðinni í hestaíþróttum í Borgarnesi hefur ákveðið að tvö mót verða haldin í KB mótaröðinni í vetur. Fyrra mótið verður laugardaginn 24. febrúar og seinna mótið laugardaginn 24. mars og fara bæði fram í Reiðhöllinni Faxaborg. Flokkaskipting er þannig að keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki og 1.…Lesa meira

true

Mest er óánægja íbúa vegna skipulagsmála í Borgarbyggð

Samkvæmt íbúakönnun Gallup, sem var framkvæmd í nóvember og desember á sl. ári hefur ánægja íbúa í Borgarbyggð með þjónustu sveitarfélagsins í mörgun tilvikum vaxið milli áranna 2016 og 2017. Borgarbyggð keypti niðurstöður íbúakönnunar Gallup sem framkvæmd var í nóvember og desember 2017. Alls komu 167 svör úr Borgarbyggð. Án þess að það liggi nákvæmlega…Lesa meira