Fréttir

true

„Að vera úti á sjó er það skemmtilegasta sem ég geri“

Arnar Laxdal Jóhannesson er skipstjóri á Særifi SH-25. Það er Melnes ehf. sem gerir bátinn út frá Rifi, en útgerðin er í eigu fjölskyldunnar. Arnar er sömuleiðis einn af eigendum veitingastaðarins Skers í Ólafsvík, ásamt systur sinni og fjölskyldunni. Hann hefur sótt sjóinn frá unga aldri og segist alltaf hafa ætlað að leggja sjómennskuna fyrir…Lesa meira

true

Fimm leikmenn semja við Snæfell og nýir þjálfarar kynntir

Fimm leikmenn skrifuðu undir samningja við Körfuknattleiksdeild Snæfells laugardaginn 25. maí. Þetta eru þær Gunnhildur og Berglind Gunnarsdætur, Helga Hjördís Björgvinsdóttir, Rebekka Rán Karlsdóttir og Rósa Kristín Indriðadóttir. Gunnhildur, Berglind, Helga og Rebekka hafa allar leikið með Snæfelli undanfarin ár, en Rósa tekur skóna fram að nýju eftir nokkurra ára hlé frá körfuknattleiksiðkun. „Gleðitíðindi að…Lesa meira

true

Stykkishólmur tekur þátt í íbúasamráðsverkefni

Stykkishólmsbær hefur verið valinn til að taka þátt í íbúasamráðsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Akureyrarkaupstaðar. Þrjú sveitarfélög voru valin til þátttöku í verkefninu, auk Akureyrar. Verkefnið snýst um að aðstoða þátttökusveitarfélögin við að beita þeim samráðsaðferðum sem kynntar eru í handbók SÍS um íbúasamráð frá 2017. Öllum sveitarfélögum á landinu gafst kostur á að sækja…Lesa meira

true

„Ég hef ótrúlega gaman af strandveiðunum“

Stefán Jónsson á Akranesi hefur róið á handfærum undanfarna áratugi. Á sínum handfæraveiðiferli hefur hann verið mest við veiðar á Norðvesturlandi, en síðustu árin hefur hann sótt sjóinn frá Arnarstapa og vill hvergi annars staðar vera. Stefán rær á Grími AK-1 og var aflahæstur á strandveiðunum síðasta sumar með 49,5 tonn og 68 kílóum betur.…Lesa meira

true

Borgarverksmótið í blíðskaparveðri

Borgarverksmót Hestamannafélagsins Borgfirðings var haldið í blíðskaparveðri um síðustu helgi. Á laugardeginum fór fram forkeppni í hringvallargreinum, gæðingaskeið og 100 m skeið. Á sunnudeginum voru úrslit í hringvallargreinum en samtals voru 17 úrslit þann dag. Mótið var mjög vel heppnað og veðrið lék við gesti, að sögn mótshaldara. Sjá helstu úrslit mótsins í Skessuhorni.Lesa meira

true

Óttast að Landsvirkjun sé vísvitandi að svæla stórfyrirtæki út

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness lýsir miklum áhyggjum yfir hækkun raforkuverðs til íslenskrar stóriðju. Vísar hann í hækkun Landsvirkjunar á rafmagni til Elkem Ísland á Grundartanga í kjölfar gerðardóms sem nýlega féll. „Ég skal fúslega viðurkenna að ég óttast innilega um atvinnuöryggi minna félagsmanna á Grundartanga eftir að í ljós kom að umtalsverð hækkun mun…Lesa meira

true

Sigrún og Bjarni valin mikilvægust

Lokahóf meistaraflokka Körfuknattleiksdeildar Skallagríms var haldið í Vindási í Borgarnesi föstudaginn 24. maí. Þar voru veitt verðlaun þeim leikmönnum sem þykja hafa skarað fram úr á liðnu tímabili. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Bjarni Guðmann Jónsson voru valin mikilvægustu leikmennirnir. Varnarmenn ársins voru valin þau Maja Michalska og Björgvin Hafþór Ríkharðsson. Þá þóttu þau Ragnar Magni…Lesa meira

true

Vel sóttur kynningarfundur um þangvinnslu

Fjölmennur kynningarfundur um þangvinnslu var haldinn í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi í gærkveldi. Þar var kynnt skýrsla ráðgjafanefndar um rannsóknar-, vinnslu- og afurðamiðstöð þangs í Stykkishólmi. Ráðgjafanefndin leggur til að hafnar verði viðræður við kanadíska fyrirtækið Acadian Seaplants Ltd., hafi bæjaryfirvöld hug á að þangvinnsla hefjist í Stykkishólmi. Íslenska kalkþörungafélagið ehf. hafði einnig lýst yfir áhuga…Lesa meira

true

Sjómannadagsblað fylgir Skessuhorni í dag

Sjómannadagurinn er ætíð fyrsta sunnudag í júní og er því framundan með tilheyrandi hátíðarhöldum. Af því tilefni fylgir með Skessuhorni í dag 32 síðna sérblað tileinkað sjómönnum. Rætt er við núverandi og fyrrverandi sjómenn víðs vegar um Vesturland og ýmsa fleiri sem tengjast fiskveiðum og -vinnslu. Sjómönnum og fjölskyldum þeirra óskar Skessuhorn innilega til hamingju…Lesa meira

true

Vantar aukaleikara á sveitaball í Fannahlíð

Þessa dagana er unnið að tökum á nýrri gamanmynd í fullri lengd sem tekin er upp í Hvalfirði og Svínadal. Myndin gerist öll í sveitinni. Í henni segir frá seinheppinni borgarsnót sem fer með lífssigldri sveitapíu út á land til að læra að lifa eftir þeim lífsreglum sem þar gilda. Eins og margir vita voru…Lesa meira