Fréttir

true

Færa fornbíla til skoðunar næstkomandi föstudag

Árleg fornbílaskoðun hjá Frumherja í Borgarnesi verður föstudaginn 17. maí frá kl. 16.00 til kl. 20.00. Skoðunargjald er 3.500 krónur fyrir hvern fornbíl félagsmanns í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar. „Þeir fornbílaeigendur sem eiga bíla á Samgöngusafninu bera sjálfir ábyrgð á því að færa sína bíla til skoðunar eða að fela það öðrum. Hafist verður handa við að…Lesa meira

true

Vilja að þungunarrof verði að hámarki við lok 20. viku

Átta starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Borgarnesi sendu í dag frá sér harðorða ályktun til þingmanna, heilbrigðisráðherra og velferðarnefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um þungunarrof sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. Þar segir: „Við undirrituð starfsfólk HVE í Borgarnesi finnum okkur knúin að álykta um framvarp til laga um þungunarrof sem nú er til…Lesa meira

true

Guðmundur sæmdur gullmerki KLÍ

Ársþing Keilusambands Íslands fór fram á sunnudaginn. Þar var Guðmundur Sigurðsson formaður Keilufélags Akraness sæmdur gullmerki KLÍ fyrir störf sín í þágu keilunnar á Íslandi. Guðmundur hefur í 20 ár unnið í hinum ýmsu nefndum eins og tækninefnd, mótanefnd og aganefnd KLÍ ásamt því að sinna starfi unglingalandsliðsþjálfara um árabil. Auk þess hefur Guðmundur unnið…Lesa meira

true

Vínbúðin á Akranesi verður flutt að Kalmansvöllum

Í síðustu viku var skrifað undir leigusamning þar sem Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins tryggði sér afnot af 440 fm. verslunarrými að Kalmansvöllum 1, á horni Esjubrautar og Kalmansvalla, fyrir vínbúðina á Akranesi. Hús þetta hefur á undanförnum árum rúmað húsgagnaverslun og þar áður matvöruverslun, en meðal heimamanna gengur það gjarnan undir nafninu Hensonhúsið með tilvísun…Lesa meira

true

Fjölmenn fjallabjörgunaræfing í hlíðum Kirkjufells

Síðastliðinn laugardag notaði Slysavarnafélagið Landbjörg góða veðrið til að halda æfingu í fjallabjörgun við krefjandi aðstæður. Ákveðið var að halda æfinguna í Kirkjufelli við Grundarfjörð. Ástæðan staðarvals er einkum sú að fjallið er með þeim erfiðari að klífa en einnig í ljósi tíðra og alvarlegra slysa sem þar hafa orðið á nýliðnum árum. Það voru…Lesa meira

true

Kári á toppnum

Káramenn gerðu sér ferð suður með sjó á föstudaginn og mættu Þrótti frá Vogum í annarri umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Fyrri hálfleikur var markalaus og það var ekki fyrr en á 59. mínútu leiksins að ísinn var brotinn. Heimamenn í Þrótti V. fengu þá vítaspyrnu. Pape Mamadou Faye fór á punktinn og honum…Lesa meira

true

Samið um Smuguveiðar við Rússa

Nýverið var í Moskvu fundað um fiskveiðisamning, svokallaðan Smugusamning, milli íslenskra og rússneskra stjórnvalda. Snýst samningurinn um þorskveiðar Íslands í rússneska hluta Barentshafsins og felur hann í sér að íslensk fiskiskip gefa veitt 6.592 tonn af þorski í rússneska hluta Barentshafsins 2019 auk allt að 1.978 tonna af öðrum tegundum, en þar af getur þó…Lesa meira

true

Bændasamtökin fara fram á þriggja ára aðlögunartíma

Lagafrumvarp sem heimilar innflutning á hráu ófrosnu kjöti, eggjum og ógerilsneyddri mjólk og mjólkurafurðum er nú til umfjöllunar á Alþingi. Bændasamtök Íslands hafa í umsögnum sínum og umfjöllun um málið lagst gegn samþykkt þess. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur kynnt aðgerðaáætlun í fimmtán liðum sem ætlað er að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu…Lesa meira

true

Gullni söguhringurinn í Dölum og Sturlufélag stofnað

Sunnudaginn 12. maí var formleg afhjúpun söguskiltis við Hjarðarholtsafleggjara, vestan Búðardals, en það er fyrsta skiltið af fjórum sem reist verða í Dölum í tengslum við hinn Gullna söguhring Dalanna. Verkefnið er unnið að frumkvæði Sturlunefndar og nær Gullni söguhringurinn frá Búðardal, út fyrir Klofning og að Saurbæ. Skiltin segja frá mikilsverðu fólki og tíðindum…Lesa meira

true

Jafntefli í fyrsta leik Skagakvenna

Kvennalið ÍA tók á móti FH síðastliðinn föstudag í sínum fyrsta heimaleik og jafnframt fyrsta leik á tímabilinu. Gestirnir úr FH eru nýliðar í Inkasso deildinni eftir að hafa fallið niður úr efstu deild fyrir ári síðan en á sama tíma voru Skagastúlkur hársbreidd frá því að koma sér upp og hefja nú nýtt áhlaup…Lesa meira