Fréttir

true

Bjarki í úrvalslið Mið-Ameríku deildar

Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Borgarnesi sem leikur fyrir Kent State háskólann í Ohio fylki í Bandaríkjunum var á dögunum valinn í úrvalslið Mið-Ameríku deildarinnar eftir líðandi tímabil í háskólagolfinu. Það eru þjálfarar þeirra níu skóla sem leika í deildinni sem velja í úrvalsliðið og því er góð viðurkenning fyrir Bjarka að komast í liðið en…Lesa meira

true

Skaginn 3X selur Vísi vinnslubúnað í nýjan Pál Jónsson

Skaginn 3X mun setja upp vinnslubúnað fyrir sjávarútvegsfyrirtækið Vísi í línuskipið Pál Jónsson GK, sem er í smíðum og verður væntanlega tilbúið til afhendingar í haust. Samningur þar að lútandi var undirritaður milli fyrirtækjanna á sjávarútvegssýningunni í Brussel í síðustu viku. Samningurinn hleypur á tugum milljóna íslenskra króna, segir í tilkynningu. „Fyrirtækin hafa átt farsælt…Lesa meira

true

Opinn fundur um mengunareftirlit og umhverfisvöktun

Umhverfisstofnun hefur boðað til opins kynningarfundar um mengunareftirlit og umhverfisvöktun á Grundartanga í samræmi við ákvæði starfsleyfa Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu. Fundurinn fer fram í dag á Hótel Glym og hefst klukkan 15:30. Þar verður m.a. farið yfir niðurstöður Umhverfisvöktunar á Grundartanga 2018.Lesa meira

true

Heimagistingarvakt hefur skilað miklum árangri

Að frumkvæði Þórdísar Kolbrúnar R Gylfadóttur ferðamálaráðherra var eftirlit sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu með heimagistingu stóraukið í fyrra með átaksverkefninu Heimagistingarvakt. „Árangurinn var ótvíræður: Tíðni nýskráninga í heimagistingu fimmfaldaðist í kjölfar átaksins, skráðum eignum fjölgaði um nær 100% á milli ára og áætlað er að óskráðum og leyfislausum gististöðum hafi fækkað um meira en 30%. Engu…Lesa meira

true

Nýtt byggingarleyfi gefið út fyrir legsteinaskála

Sveitarstjórn Borgarbyggðar staðfesti á fundi sínum í liðinni viku bókun umhverfis,- skipulags- og landbúnaðarnefndar og samþykkti að byggingarfulltrúa verði falið að afgreiða byggingarleyfisumsókn um legsteinaskála í Húsafelli í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Í byrjun desember á síðasta ári kvað úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurð í kærumálum sem snertu deiliskipulag fyrir Húsafell II og veitingu…Lesa meira

true

Bjarni Guðmann í bandaríska háskólaboltann

Ungi framherjinn úr Skallagrími, Bjarni Guðmann Jónsson, mun leika í bandaríska háskólaboltanum á næsta tímabili og segir því skilið við uppeldisfélagið sitt í bili að minnsta kosti. Hann mun hefja háskólanám við Fort Hays State University í Kansas og leika þar með liðinu í NCAA II deildinni. Bjarni reyndist Skallagrímsmönnum gífurlega mikilvægur í Domino’s deildinni…Lesa meira

true

Þungunarfrumvarp samþykkt sem lög

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um þungunarrof var samþykkt á Alþingi í gærkvöldi. Hlaut það stuðning 40 þingmanna, gegn atkvæðum 18, þrír greiddu ekki atkvæði og fjórir voru fjarverandi við atkvæðagreiðsluna. Athygli vakti að þingmenn Sjálfstæðisflokksins klofnuðu í afstöðu sinni til frumvarpsins og greiddi m.a. Bjarni Benediktsson formaður flokksins atkvæði gegn því. Aðrir stjórnarflokkar greiddu atkvæði með frumvarpinu.…Lesa meira

true

Kaupa hús Bylgjunnar undir makrílfrystingu

Breiðavík ehf, Bjartsýnn ehf. og Nesver ehf festu kaup á húsnæðinu við Bankastræti 1 í Ólafsvík þar sem Fiskiðjan Bylgja var áður til húsa. Festu fyrirtækin kaup á húsnæðinu til þess að tryggja sér aðstöðu til frystingar á makríl. Hafði Fiskiðjan Bylgja séð um frystingu á makríl fyrir þessi fyrirtæki í nokkur ár áður en…Lesa meira

true

Alvarlegum slysum fjölgaði á síðasta ári

Nýverið var kynnt skýrsla Samgöngustofu um umferðarslys árið 2018. Í henni ber hæst að alvarlegum slysum og banaslysum vegna ölvunar- og fíkniefnaaksturs fjölgaði á árinu og sömuleiðis slysum vegna framanákeyrslu. Á nokkrum öðrum sviðum fækkaði slysum miðað við næstu tvö árin á undan. Fram kom við kynningu á skýrslunni að Vegagerðin nýtir upplýsingar um umferðarslys…Lesa meira

true

Olís gerir samstarfssamning við Golfklúbbinn Leyni

Við vigslu Frístundamiðstöðvar Golfklúbbsins Leynis á laugardaginn var undirritaður samstarfssamningur milli Olíuverslunar Íslands (Olís) og golfklúbbsins um viðskipti og stuðning við starfsemi hans. Aðili að samningnum er Galito Bistro cafe sem mun annast veitingasölu í klúbbhúsinu. Fram kom í máli Guðmundar Sigvaldasonar framkvæmdastjóra Leynis við undirritunina að Olís væri einn af stærstu stuðningsaðilum klúbbsins. Jón…Lesa meira