Fréttir

true

Gunnhildur og Hlynur valin í úrvalsliðin

Lokahóf KKÍ var haldið í hádeginu í dag var tilkynnt um val á bestu leikmönnum ársins í Domino‘s deildum karla og kvenna. Vestlendingar eiga þar tvo fulltrúa, því Gunnhildur Gunnarsdóttir og Hlynir Bæringsson voru bæði valin úr úrvalslið vetrarins. Úrvalslið Domino‘s deildar kvenna er þannig skipað: Gunnhildur Gunnarsdóttir úr Snæfelli, Þóra Kristín Jónsdóttir úr Haukum,…Lesa meira

true

Stórt tap hjá Skallagrími

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við tap gegn Álftnesingum í annarri umferð 3. deildar karla í fótbolta á í gærkvöldi. Leikurinn fór fram á Skallagrímsvelli og var vel mætt í brekkuna. Borgnesingar byrjuðu leikinn betur og voru áræðnir við mark Álftnesinga strax frá upphafi. Dæmd var rangstaða á heimamenn snemma í hálfleiknum þegar þeir héldu…Lesa meira

true

Vilja fækka héraðsvegum í Borgarbyggð

Á fundi byggðarráð Borgarbyggðar í síðustu viku var lagt fram bréf Vegagerðarinnar þar sem tilkynnt er um niðurfellingu nokkurra héraðsvega af vegaskrá. Við niðurfellingu slíkra vega leggst af viðhald þeirra á þeirri forsendu að um fasta búsetu er ekki lengur að ræða á bæjum sem þeir tengja við þjóðvegakerfið. Um er að ræða eftirfarandi vegi:…Lesa meira

true

Vilja Þjóðgarðsmiðstöð á Hvanneyri

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendi nýverið til umsagnar sveitarfélaga frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða. Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti að senda umsögn þar sem meðal annars segir að með stofnun miðhálendisþjóðgarðs myndi stærð og umfang þjóðgarða á Íslandi aukast gríðarlega til viðbótar. „Í því samhengi hefur verið rædd nauðsyn þess að setja á stofn Þjóðgarðastofnun…Lesa meira

true

Unnið að bættu útivistarsvæði við Langasand

Nú í vor lét Akraneskaupstaður setja upp tíu bekki með jöfnu millibili við göngustíginn meðfram Langasandi, frá Dvalarheimilinu Höfða að Faxabraut. Nú geta íbúar á Höfða því notið þess að ganga meðfram Langasandi og tyllt sér á bekkina til að hvíla sig á leiðinni. Að sögn Sindra Birgissonar, umhverfisstjóra hjá Akraneskaupstað, er það vilji bæjarins…Lesa meira

true

Fjallar um sitthvað sem snertir Grund á Akranesi

„Það er meiri íþrótt að kunna að lesa hús, en að geta lesið bækur,“ sagði Þorbergur Þórðarson rithöfundur og bætti við: „Húsið er sannleikurinn um líf kynslóðanna.“ Húsin á Skipaskaga, eins og í öðrum útgerðarplássum, voru fyrr á árum reist sem næst sjónum þar sem bátar ábúenda biðu í vör og stutt var í sjávargötuna.…Lesa meira

true

Reykköfunaræfing Slökkviliðs Borgarbyggðar haldin á víðavangi

Slökkviliðið í Borgarbyggð hélt síðasta þriðjudagskvöld óvenjulega reykköfunaræfingu að því leiti að æfingin fór fram úti og þátttakendur voru látnir ganga um blindandi í fullum skrúða með reykköfunarbúnað og poka yfir höfði. „Við höfum yfirleitt gert þesskonar æfingar í aðstöðu sem við höfum í gamla vatnstankinum úti í Brákarey sem er ein besta æfingaaðstaða fyrir…Lesa meira

true

Mjög víða góður fiskur

Strandveiðar hófust í ellefta sinn fimmtudaginn 2. maí síðastliðinn og standa yfir út ágústmánuð. Strandveiðunum fylgir jafnan líf og fjör við hafnir landsins. Sú var sannarlega raunin á Akranesi þegar bátarnir lögðust að bryggju síðdegis með full kör af boltafiski. „Ég fékk þennan hérna úti í Faxaflóa, bara norður af Baulurifinu,“ segir Frímann Jónsson á…Lesa meira

true

Rafmagnslaust verður í Hvalfjarðarsveit í nótt

Rafmagnslaust verður í Hvalfjarðarsveit og í Kjós frá miðnætti í kvöld til klukkan sjö í fyrramálið vegna vinnu í aðveitustöð Rarik á Brennimel á Hvalfjarðarströnd. Vegagerðin hyggst nýta tækifærið og sinna vinnu í Hvalfjarðargöngum á meðan. Fylgdarakstur verður um göngin. Á vef Vegagerðarinnar segir að ekkert sé því til fyrirstöðu að ökumenn aki varlega í…Lesa meira

true

Vígsluhátíð nýrrar Frístundamiðstöðvar á laugardaginn

Akraneskaupstaður og Golfklúbburinn Leynir bjóða bæjarbúum og gestum til opnunar á nýrri Frístundamiðstöð við Garðavöll laugardaginn 11. maí. Dagskráin stendur yfir frá kl. 12:00 – 15:00. Á dagskrá er formleg vígsla hússins og ræðuhöld kl. 13:00. Opið hús verður fyrir gesti og gangandi til kl. 15:00 með kaffiveitingum. Þá verður kynning á golfi fyrir byrjendur…Lesa meira