Fréttir

true

Beðið ákvörðunar um Kútterinn

Eins og fram hefur komið í frétt Skessuhorns hefur Minjastofnun gefið það út að friðun hins 134 ára Kútters Sigurfara hafi verið aflétt og veitt fyrir sitt leiti heimild til að ráðast megi í förgun á skipinu. Kútterinn er orðinn afar fauskinn þar sem hann stendur við hlið Byggðasafnsins í Görðum og raun hættulegur þeim…Lesa meira

true

Kaupmenn á Akranesi fagna sumri í kvöld

Í kvöld, fimmtudaginn 9. maí ætla nokkrir kaupmenn á Akranesi að fagna sumri og hafa langa opnun og tilboð í verslunum sínum. Bjóða þeir gestum að upplifa stemninguna og lofa að gera vel við viðskiptavini í verslun og þjónustu. Opið verður til klukkan 22 í kvöld. Þetta eru: Verslunin Bjarg, @Home, Nína, Ozone, Lindex, Hans…Lesa meira

true

Drífa fagnar þrjátíu ára kaupmannsafmæli

Drífa Skúladóttir kaupmaður í Hraðbúðinni á Hellissandi hélt upp á 30 ára kaupmannsafmæli sitt 1. maí síðastliðinn. Bauð hún viðskiptavinum sínum upp á afmælistertu og kaffi í tilefni dagsins. Fyrstu tíu árin rak Drífa Kjörbúðina á Hellissandi en upphafið að kaupmennskunni segir hún vera að fyrir rétt rúmum þremur áratugum hafi Kaupfélag Borgfirðinga, sem þá…Lesa meira

true

„En ég neyddist bara til að læra japönsku“

Gilbert Þór Jökulsson fór í mars 2017 sem skiptinemi til Japans í eitt ár. Gilbert er fæddur í Reykhólasveit og bjó þar í sjö ár áður en hann flutti á Kjalarnes þar sem hann lauk grunnskólanámi og fór þá í Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. „Ég var alltaf ákveðinn í að fara í skiptinám en vissi ekki…Lesa meira

true

Fjórir Vestlendingar í æfingahóp

Þrjár körfuknattleikskonur af Vesturlandi hafa verið valdar í æfingahóp íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta. Þetta eru systurnar Berglind og Gunnhildur Gunnarsdætur úr Snæfelli og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir úr Skallagrími. Einnig má nefna Hildi Björgu Kjartansdóttur sem fjórða Vestlendinginn í hópnum. Snæfell er uppeldisfélag Hildar sem hefur verið að spila í atvinnumannaboltanum á Spáni síðustu ár. Benedikt…Lesa meira

true

Hreinsunarvika hefst á Akranesi í dag

„Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness vilja hvetja alla bæjarbúa, unga sem aldna sem og fyrirtæki, stofnanir og hópa, til að taka þátt í hreinsun og fegrun umhverfisins miðvikudaginn 8. maí. Hægt er að tína upp rusl eða „plokka“ á förnum vegi á meðan gengið er eða skokkað. Þannig má sameina áhuga á útiveru og umhverfismeðvitund og…Lesa meira

true

Finnur Jónsson fer til Keflavíkur

Finnur Jónsson, fyrrum þjálfari Skallagríms í körfuknattleik karla, færir sig um set og hefur nú samið við Keflavík um að gegna starfi aðstoðarþjálfara karlaliðs félagsins. Þar verður hann Sverri Þór Sverrissyni þjálfara innan handar á næsta tímabili ásamt því að koma að yngri flokka starfi hjá félaginu. „Gríðarleg ánægja er með að hafa fengið Finn…Lesa meira

true

Áhersla verður lögð á að koma starfseminni í gang sem allra fyrst

Miklar skemmdir eru á húsnæði Fjöliðjunnar við Dalbraut 10 á Akranesi eftir bruna sem varð í húsinu seint í gærkvöldi. Í húsinu er rekinn vinnu- og hæfingarstaður og tugir einstaklinga sem þar starfa. Eðli málsins samkvæmt er bruninn áfall fyrir starfsfólkið í Fjöliðjunni. Til að halda því sem best upplýstu og ræða saman, var starfsfólki…Lesa meira

true

Setti átta Íslandsmet

Kári Geirlaugsson úr ÍA setti hvorki fleiri né færri en átta Íslandsmet á Íslandsmeistaramótinu í garpasundi sem haldið var í Laugardalslaug fyrstu helgi maímánaðar. Hann keppti í 50, 100, 200, 400 og 800 m skriðsundi, 50 og 100 m baksundi og 100 m fjórsundi í flokki 70-74 ára garpa. Kári setti Íslandsmet í öllum greinunum…Lesa meira

true

Átta sækja um stöðu aðstoðarskólastjóra

Átta sækja um starf aðstoðarskólastjóra Brekkubæjarskóla á Akranesi, en umsóknarfrestur rann út í lok apríl. Umsækjendur eru í stafrófsröð: Ásdís Hrönn Viðarsdóttir, Bryndís Böðvarsdóttir, Chiara Trevisan, Elsa Lára Arnardóttir, Guðlaug Erlendsdóttir, Helga Þórdís Jónsdóttir, Róbert Grétar Gunnarsson og Þórdís Sævarsdóttir.Lesa meira