Fréttir

true

Myndavélar við göngin hækkaðar

Myndavélar beggja vegna vegarins við gamla gjaldskýli Hvalfjarðarganga hafa undanfarna daga vakið athygli vegfarenda. Skessuhorni barst ábending þess efnis að nýjar myndavélar hefðu verið settar upp við göngin en svo mun ekki vera. Um er að ræða vélar sem settar voru upp fyrir þremur árum og voru hluti af gjaldtökukerfi Spalar. „Þær voru partur af…Lesa meira

true

Nýir umsjónaraðilar á Eiríksstöðum

Hjónin Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Reynir Guðbrandsson  á Jörva í Haukadal og hjónin Sigurbjörg Kristmundsdóttir og Pétur Guðsteinsson á Giljalandi í Haukadal hafa tekið við umsjón Eiríksstaða af Sigurði Jökulssyni frá Vatni í Haukadal. Fyrsti opnunardagur sumarsins á Eiríksstöðum var 1. maí og verður opið alla daga til 30. september. „Þetta verður örugglega einhver breyting frá…Lesa meira

true

Stuðningsfjölskyldur mikilvægar fyrir börn með sérþarfir

Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar hefur óskað eftir stuðningsfjölskyldum fyrir börn með sérþarfir. Stuðningsfjölskyldur gegna mikilvægu hlutverki bæði fyrir börnin sem nýta sér þjónustuna og foreldra þeirra. Hlutverk stuðningsfjölskyldna er að styðja við foreldra barnsins og veita þeim hvíld auk þess að veita barninu tilbreytingu og stuðning. „Stuðningsfjölskyldur eru mikilvægar fyrir forelda barna með krefjandi umönnun.…Lesa meira

true

Myndasyrpa – hópslysaæfing á Vesturlandi

Laugardaginn 27. apríl síðastliðinn var umfangsmikil hópslysaæfing viðbragðsaðila á Vesturlandi haldin á Snæfellsnesvegi á móts við Kaldármela. Undirbúningur að æfingunni hafði staðið í nokkra mánuði en þátt í henni tóku lögregla, björgunarsveitir, slökkvilið, sjúkraflutningafólk, Landhelgisgæslan og félagar í Rauða kross deildum. Komið var upp slysavettvangi þar sem bæði hópferðabíll og fólksbílar höfðu lent í árekstri.…Lesa meira

true

5500 manns á Sindratorfærunni

Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd Umf. Heklu héldu Sindratorfæruna í gær í blíðskaparveðri á Hellu. Mótið laðaði marga að því 5500 mættu til að fylgjast með. Það var Geir Evert Grímsson á Sleggjunni sem hreppti Helluna með því að standa efstur að stigum eftir daginn. Hann sýndi glæsileg tilþrif og ók öruggt í gegnum alla…Lesa meira

true

Umhverfi og heilsa sem sveitarstjórnarmál

Sveitarstjórnarráðstefnu Vinstri hreifingarinnar græns framboðs fór fram á Akranesi í gær. Ráðstefnunni lauk undir kvöld með því að gestir réðust í plokk ásamt Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfisráðherra. „Aðgerðin rímaði vel við efni fundarins sem fjallaði bæði um umhverfis- og heilbrigðismál og héldu bæði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra erindi á fundinum. Loftslagsverkfall…Lesa meira

true

Stórsýningin í Brákarey verður laugardaginn 11. maí

Hin árlega samsýning Fornbílafjelags Borgarfjarðar og Bifhjólajelags Raftanna verður í Brákarey í Borgarnesi laugardaginn 11. maí næstkomandi frá klukkan 13 til 17. Þangað eru allir velkomnir og sem fyrr er frítt inn. „Við höfum alltaf lagt mikla áherslu á að bjóða fólki upp á þennan dag án aðgangseyris til þess að fjölskyldufólk geti kíkt við…Lesa meira

true

Vorferð Blóðbankabílsins framundan á Snæfellsnes

Dagana 6. og 7. maí verður blóðsöfnun í Grundarfirði, Stykkishólmi og Ólafsvík. Eins og kunnugt er er Blóðbankabíllinn útibú frá Blóðbankanum. Í Grundarfirði verður bíllinn við Kjörbúðina mánudaginn 6. maí kl. 12:00-17:00. Bíllinn verður við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi miðvikudaginn 7. maí klukkan 8:30-12:00 og við Söluskálann ÓK í Ólafsvík sama dag frá klukkan 14:30-18:00. „Í…Lesa meira

true

Söguviðburðir framundan í Dölum

Sunnudaginn 12. maí næstkomandi verða haldnir tveir sögutengdir viðburðir í Dölum. Söguskilti verður afhjúpað við afleggjarann að Hjarðarholti í Laxárdal og síðan verður Sturlufélag stofnað. Fyrst verður afhjúpað söguskilti við afleggjarann að Hjarðarholti. Er það er fyrsta skiltið af fjórum söguskiltum á Gullna söguhringnum svokallaða. Mjólkursamsalan kostar gerð skiltanna, sem útbúin hafa verið í samvinnu…Lesa meira

true

Færeyska fánanum nú flaggað í eina öld

Færeyingar halda Flaggdagin hátíðlegan ár hvert 25. apríl. Nú eru liðin 100 ár frá því færeyski fáninn blakti fyrst við hún við brúðkaup í Fámjin í Suðurey 25. apríl 1919. Sendistofa Færeyja á Íslandi bauð Færeyingum á Íslandi og öðru tignarfólki til samkomu að Kjarvalsstöðum í Reykjavík af þessu tilefni. Boðið var upp á færeyskan…Lesa meira