Fréttir

true

Snæfellingar sigruðu í Lengjubikarnum

Snæfellingar eru sigurvegarar í C deild Lengjubikars karla í knattspyrnu eftir sigur á GG í úrslitaleiknum á sunnudag. Leikurinn fór fram á Grindavíkurvelli. Hann var bæði jafn og spennandi og augljóst að bæði lið vildu vinna. Snæfellingar fengu draumabyrjun í leiknum þegar Matteo Tuta kom Stykkishólmsliðinu yfir strax á 10. mínútu leiksins. Þannig var staðan…Lesa meira

true

Borgnesingar byrja á sigri

Skallagrímsmenn hófu leik í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn þegar þeir tóku á móti Einherja á Skallagrímsvelli. Sumarið byrjar vel hjá Borgnesingum, sem sigruðu leikinn 2-1. Einherji náði forystunni á 22. mínútu leiksins þegar Jareo Jolon Bennett skoraði fyrir liðið. Fimm mínútum fyrir hálfleik jafnaði Cristofer Rolin fyrir Borgnesinga og staðan 1-1 þegar…Lesa meira

true

Jarðvegsskipt fyrir þrjú hús í Reykholti

Nýverið lauk Þorsteinn Guðmundsson verktaki á Fróðastöðum við jarðvegsskipti undir þrjú síðustu húsin sem eftir á að byggja við Hallveigartröð í Reykholti. Sigurður Magnússon byggingameistari mun síðar í sumar hefja framkvæmdir við smíði tveggja einbýlishúsa og eins raðhúss. Að sögn séra Geirs Waage sóknarprests í Reykholti var það fyrirtækið Reykholtsstaður ehf sem átti frumkvæði að…Lesa meira

true

Þjóðminjasafnið kannar Evrovisionhefðir

Þjóðminjasafn Íslands er að senda út nýja spurningaskrá á Sarpi, sem fjallar um Evrovision hefðir, sem mörgum þykir skemmtilegt efni. Hvetur safnið almenning til að taka þátt í könnuninni. „Tilgangurinn með þessari spurningaskrá er að safna upplýsingum um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision. Óhætt er að segja að í tengslum við keppnina hafi orðið til siðir…Lesa meira

true

Hlutfallslega mest fjölgun í Skorradalshreppi

Íbúum Skorradalshrepps fjölgaði hlutfallslega mest á landinu frá 1. desember 2018 til 1. maí síðastliðins, eða um 12,1%, en íbúum í hreppnum fjölgaði um sjö íbúa og eru þeir nú 65. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi á Ströndum, um 5%, og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi um 4,4%. Íbúum fækkaði í 22 af 72 sveitarfélögum…Lesa meira

true

Sigur í fyrsta leik

Víkingur Ó. bar siguorð af Gróttu í fyrstu umferð Inkasso-deildar karla í knattspyrnu, 2-0. Leikið var á Ólafsvíkurvelli í gær. Bæði lið fengu álitleg marktækifæri í upphafi leiks, en öll fóru þau þó forgörðum. Eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn náðu Ólafsvíkingar betri tökum á leiknum og sókn þeirra þyngdist. Þeir komust yfir á…Lesa meira

true

Ferðablað Vesturlands er komið út

Ferðablaðið Travel West Iceland – Ferðast um Vesturland 2019-2020 kom út í síðustu viku. Blaðið er gefið út af Skessuhorni en í nánu samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands. Þetta er 20. árgangur þessa blaðs, að þessu sinni 116 síður og prentað í 60 þúsund eintökum. Það er skrifað á ensku og íslensku og hugsað sem gagnlegur…Lesa meira

true

Jöfnuðu í uppbótartíma

ÍA og Fylkir skildu jöfn, 2-2, þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Árbænum. Skagamenn byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir strax á 13. mínútu leiksins. Eftir langt innkast skölluðu Fylkismenn boltann út úr teignum. Hörður Ingi Gunnarsson lagði boltann fyrir sig með einni snertingu og…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi boðið til fundar í dag

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa í dag fyrir íbúaþingi undir yfirskriftinni Mótum framtíð Vesturlands í sameiningu. Þingið verður haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi, hefst klukkan 13:00 og lýkur kl. 16:00. Markmiðið með þinginu er að fá íbúa á Vesturlandi til að koma saman, skiptast á skoðunum og hugmyndum um hvernig þeir vilja sjá landshlutann þróast.…Lesa meira

true

Myndavélar við göngin hækkaðar

Myndavélar beggja vegna vegarins við gamla gjaldskýli Hvalfjarðarganga hafa undanfarna daga vakið athygli vegfarenda. Skessuhorni barst ábending þess efnis að nýjar myndavélar hefðu verið settar upp við göngin en svo mun ekki vera. Um er að ræða vélar sem settar voru upp fyrir þremur árum og voru hluti af gjaldtökukerfi Spalar. „Þær voru partur af…Lesa meira