Fréttir

true

Fyrirlestur um að vera besta útgáfan af sjálfum sér

Evert Víglundsson, eigandi og yfirþjálfari CrossFit Reykjavíkur og upphafsmaður CrossFit á Íslandi, verður með fyrirlestur  á Akranesi í kvöld, þriðjudaginn 23. apríl klukkan 20. Þar fjallar hann um hvernig við getum orðið besta útgáfan af sjálfum okkur. Evert mun í fyrirlestrinum fara yfir mikilvægi svefns, næringar, hreyfingar, félagsskapar og streitustjórnunar. „Vilt þú verða betri í…Lesa meira

true

Umgangspest herjar á hrossastofninn

Töluvert hefur borið á því að undanförnu að hross hafa veikst af einhverskonar smitandi umgangspest. Að sögn Kristínar Þórhallsdóttur dýralæknis á Laugalandi í Borgarfirði hefur ekki enn fengist staðfest hvernig pest er um að ræða og því ekki verið gefin út yfirlýsing af hálfu MAST. Kristín segir pestina í flestum hrossunum sem veikjast lýsa sér…Lesa meira

true

Tveir Borgnesingar á heimsmeistaramóti skólaliða

Borgnesingar áttu tvo glæsilega fulltrúa á heimsmeistaramóti skólaliða í körfubolta sem fram fór nú um páskana. Það eru þeir Gunnar Örn Ómarsson og Marinó Þór Pálmason en þeir hafa báðir stundað nám í EVN í Danmörku í vetur og æft og keppt í körfubolta með liði skólans. Lið EVN vann sér rétt til þátttöku í…Lesa meira

true

Fyrsti sláttur á flötunum í Nesi

Vorið hefur verið milt og saman við froslausa jörð er því grasinu ekkert að vanbúnaði að hefja vöxt. Á golfvellinum í Nesi í Reykholtsdal var púttflötin slegin í gær, páskadag 21. apríl. Þar styttist því í opnun vallarins. Sömu sögu er að segja af fleiri golfvöllum á Vesturlandi. Eins og fram kom í viðtali í…Lesa meira

true

Áburður á hafnarbakkann

Flutningaskipið Wilson Newport lagðist að bryggju á Akranesi í morgun með áburð og staura sem Fóðurblandan flytur inn og selur bændum. Bifreiðastöð ÞÞÞ annast uppskipun og afgreiðslu áburðarins til flutningsaðila. Tæplega þrjú þúsund stórsekkjum verður landað í dag á hafnarbakkann á Akranesi þaðan sem þeim verður ekið til vestlenskra kaupenda. Jörð er víða frostlaus í…Lesa meira

true

Nanna systir væntanleg í leikferð um Vesturland

Leikfélag Hólmavíkur stendur í ströngu um þessar mundir við sýningar á gamanleikritinu Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson, í leikstjórn Skúla Gautasonar. Sýningin hefur þegar verið sýnd í Sævangi á Ströndum við góðar viðtökur. Leikfélag Hólmavíkur er eitt af örfáum áhugaleikfélögum á landinu sem rígheldur í þá hefð að fara í leikferðalög með…Lesa meira

true

Kviknaði í út frá kamínu í sumarhúsi

Síðdegis í gær var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út á fyrsta forgangi vegna bruna í sumarhúsi í Fitjahlíð í Skorradal. Slökkviliðsmenn frá Borgarnesi, Hvanneyri og Reykholti fóru á staðinn. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra fór betur en á horfðist. Kviknað hafði í klæðningu út frá kamínu. Var viður og annað byggingarefni við útblástursrör farið að…Lesa meira

true

Porsche bílar vöktu athygli

Áhugamenn um bíla ráku upp stór augu í Ólafsvík í gær þegar nokkrum splunkunýjum bílum af gerðinni Porsche 911 Carrera 4S var ekið í bæinn. Fararstjóri í ferðinni var Þjóðverji frá Porsche umboðinu og var hann að kynna fyrir viðskiptavinum sínum þessa tegund bíla. Bílarnir eru fjórhóladrifnir og knúnir 450 hestafla vél. Verð á bílum…Lesa meira

true

BL boðar loftpúðaskipti í nokkrum gerðum bíla

Nú stendur yfir öryggisinnköllun á bílum frá bifreiðaumboðinu BL vegna mögulegs galla í ræsibúnaði fyrir loftpúða frá japanska framleiðandanum Takata. Þessi innköllun er ein sú viðamesta að umfangi sem bílaframleiðendur hafa staðið frammi fyrir og snertir marga framleiðendur. Hvaða bílar BL eru EKKI með loftpúða frá Takata? Af þeim merkjum sem BL selur og þjónustar…Lesa meira