Fréttir

true

Að vera skáld og skapa – dagskrá á fyrsta sumardag

Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl nk., standa Tónlistarskóli Borgarfjarðar og Safnahús Borgarfjarðar fyrir tónleikum þar sem nemendur skólans flytja eigin tónsmíðar við ljóð Böðvars Guðmundssonar. Um 20 lög verða frumflutt. Tónleikarnir hefjast kl. 15.00 og eru opnir öllum. Vonast er til að sem flestir líti við í Safnahúsinu þennan dag og fagni sumri með…Lesa meira

true

Opna kaffihúsið Heimskringluna í Reykholti

Hjónin Ingibjörg Kristleifsdóttir og Halldór Gísli Bjarnason opnuðu síðastliðinn sunnudag kaffihúsið Heimskringluna. Það er til húsa í gamla Héraðsskólahúsinu í Reykholti og gengið inn um aðalinngang hinnar reisulegu byggingar. Hátíðarsalurinn, sem byggður var á sínum tíma yfir sundlaugina, verður nýttur fyrir gesti kaffihússins. Þar er jafnframt hangandi uppi sýning Óskars Guðmundssonar; „Árið 1918 í Borgarfirði“…Lesa meira

true

Vaxandi vindur við Hafnarfjall

Vindur í hviðum fer nú í 45 metra á sekúndum í hviðum við Hafnarfjall, í vaxandi ASA átt. Veðurstofan er með gula viðvörun í gildi fyrir vestanvert landið, einkum þar sem vindur stendur af fjöllum. Ökumenn ættu að vera vel á verði þegar svona háttar til og fresta för ef mögulegt er. Gert er ráð…Lesa meira

true

Kristín Sif Íslandsmeistari í boxi

Borgnesingurinn og hnefaleikakonan Kristín Sif Björgvinsdóttir tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í hnefaleikum á Íslandsmeistaramótinu sem fram fór í Reykjanesbæ á sunnudaginn. Kristín Sif keppti í -75 kílóa flokki kvenna og mætti þar Hildi Ósk Indriðadóttur. Eftir einróma dómaákvörðun var það Kristin Sif sem stóð uppi sem sigurvegari.Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna hvassviðris – bálhvasst við fjöll

Veðurstofan spáir suðaustan 15-25 m/s og rigningu á Suður- og Vesturlandi í dag og fram á nótt. Vindhviður geta um tíma náð 35-40 m/s við fjöll, t.d. Hafnarfjall og á Kjalarnesi. Hlýtt er á landinu og víða leysing og því auknar líkur á vatnavöxtum næstu daga, einkum suðaustanlands. Eins og fyrr segir verður hvassast við…Lesa meira

true

Þrúgandi ógn af erfðablöndun við villta laxastofninn

„Það er enginn vafi að hlunnindi af laxveiðitekjum hér í okkar sveit eiga sinn þátt í að hér er búið á flestum bæjum. Fram hefur komið í ýmsum skýrslum að mikilvægi laxveiðhlunninda eru hvergi meiri á landinu en hér í Borgarfirði. Auk arðgreiðslna er einungis okkar veiðiá að veita um tuttugu sumarstörf og hingað í…Lesa meira

true

Eldur kom upp í báti á Breiðafirði

Undir kvöld í gær kom upp eldur um borð í fiskibátnum Æsi BA þar sem hann var staddur að veiðum um tíu sjómílur vestur af Flatey á Breiðafirði. Þrír menn voru um borð í bátnum. Viðbragðsaðilar voru ræstir út á hæsta viðbúnaðarstigi. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF var þegar kölluð út sem og flugvél Gæslunnar og varðskipið…Lesa meira

true

Strætó fellir niður ferðir vegna veðurs

Vegna slæmrar veðurspár hefur Strætó bs fellt niður ferðir Akureyrarbílsins, leið 57. Gul viðvörun Veðurstofunnar er í gildi vegna hvassviðris í dag. Farþegum Strætó er bent á að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu Strætó.Lesa meira

true

Glæsileg frístundamiðstöð brátt tekin í notkun

Framkvæmdum er nú nánast lokið við byggingu nýju frístundamiðstöðvarinnar við Garðavöll á Akranesi. Risið er glæsilegt þúsund fermetra fjölnota hús sem í senn verður klúbb- og félagsaðstaða golfklúbbsins Leynis með æfingaaðstöðu í kjallara, fundaaðstaða, veitingastaður og allt að tvö hundruð manna veislusalur til útleigu. Salinn verður ýmist hægt að stúka niður fyrir smærri samkomur eða…Lesa meira

true

Mávarnir í loðnuveislu í Borgarfirði

Svo virðist sem flestir mávar á Vesturlandi haldi nú árshátíð sína með tilheyrandi veisluhöldum í Borgarfirði. Loðnuganga hefur gengið inn fjörðinn á síðustu dögum. Hafa þúsundir máva verið á sveimi fyrir utan og sunnan Borgarnes undanfarna daga og stungið sér grimmt eftir ætinu. Dauðri loðnu hefur svo skolað á land. Meðfylgjandi mynd tók Þorleifur Geirsson…Lesa meira