Fréttir

true

Haukur á Vatnsenda meðal handhafa Landgræðsluverðlauna

Í gær voru Landgræðsluverðlaunin 2019 afhent á ársfundi Landgræðslunnar sem fram fór í Reykjavík. Landgræðsluverðlaunin eru veitt árlega einstaklingum og félagasamtökum sem hafa unnið að landgræðslu og landbótum. Með veitingu verðlaunanna vill Landgræðslan vekja athygli á mikilvægu starfi margra áhugamanna að landgræðslumálum. Verðlaunagripirnir, Fjöregg Landgræðslunnar, eru unnir af Eik-listiðju á Miðhúsum á Fljótsdalshéraði, og eru…Lesa meira

true

Ríkiskaupum falið að bjóða út nýbyggingu Hnoðrabóls

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur ákveðið að samið verði við Ríkiskaup um að annast útboð vegna væntanlegrar nýbyggingar fyrir leikskólann Hnoðraból á Kleppjárnsreykjum. Eins og ákveðið hefur verið mun starfsemi leikskólans verða flutt frá Grímsstöðum og komið fyrir í nýbyggingu sem reist verður á Kleppjárnsreykjum á sama stað og fyrrum heimavist og skólastjóraíbúð er nú. Sú bygging…Lesa meira

true

Fullnýtt neðsta hæð í nýbyggingu

Í byggingunum við Borgarbraut 57 og 59 í Borgarnesi er eins og kunnugt er rekið Hótel B59 á lóð númer 59 og fjölbýlishús með íbúðum fyrir eldra fólk er á lóð númer 57. Á jarðhæð er hins vegar um fjögur hundruð fermetra rými í tengibyggingu. Því hefur nú öllu verið ráðstafað. Verslunin Fok var opnuð…Lesa meira

true

Pokasala til stuðnings verkefninu „Við stólum á þig“

Á morgun, laugardag frá klukkan 12-16, mun sölufólk frá verkefninu „Við stólum á þig“ verða í anddyri verslunar Nettó í Borgarnesi og bjóða umhverfisvæna ruslapoka og margnota innkaupatösku til sölu. Tilgangur verkefnisins er að safna fé til aðstoðar einstaklingum sem orðið hafa fyrir því að lamast eftir slys eða veikindi og þurfa að notast við…Lesa meira

true

Lögregla leitar að hvítum Yaris

Lögreglan á Vesturlandi leitar Toyota Yaris bifreið, árgerð 2016 með skráningarnúmerið HP-N91. Bíllinn er hvítur að lit og með Trend aukapakka. Bifreiðinni var stolið í Hvalfirði en talið er að hún sé nú á höfuðborgarsvæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu Lögreglunnar á Vesturlandi. „Ef einhver verður hennar var er best að hafa samband…Lesa meira

true

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram þriðjudaginn 16. apríl næstkomandi milli kl. 13:öö og 17:00 í húsi Rauða krossins, Skólabraut 25a. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að umsækjendur koma á þriðjudaginn milli 13:00 og 17:00, fylla út umsókn og fá afhent kort í leiðinni. „Allir umsækjendur fá úthlutað sömu upphæð. Við verðum að hafa þetta svona…Lesa meira

true

Leitað að bæjarlistamanni

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar óskar eftir tillögum almennings um bæjarlistamann Akraness 2019. Hægt er að senda inn tillögur rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Nefndin mun fara yfir allar tillögur sem berast. Niðurstöðurnar verða kynntar við hátíðlega athöfn á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Fyrsti bæjarlistamaður Akraness var Hreinn Elíasson myndlistarmaður árið 1992. Síðan þá hafa fjölmargir listamenn verið…Lesa meira

true

Nýsköpunarsetur á Grundartanga

Á ráðstefnu sem haldin var í Tónbergi á Akranesi 23. mars síðastliðinn voru undirritaðir samningar um Nýsköpunarsetur á Grundartanga. Að setrinu standa Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Elkem Ísland, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Þróunarfélagið Grundartanga. Að Þróunarfélagi Grundartanga standa Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Faxaflóahafnir sf., Hvalfjarðarsveit, Reykjavíkurborg og Skorradalshreppur, en félagið var stofnað árið 2016 í þeim tilgangi að móta framtíðarsýn…Lesa meira

true

Næsta útgáfa degi fyrr en vanalega

Vegna páskanna sem senn fara í hönd verður næsta útgáfa Skessuhorns degi fyrr en vanalega, eða þriðjudaginn 16. apríl næstkomandi. Af þeim sökum er vakin athygli á því að efni og auglýsingar til birtingar í næsta tölublaði Skessuhorns þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi mánudaginn 15. apríl.Lesa meira

true

Hundrað kílómetra hlaup í fimmtugs afmælisgjöf

Gunnar Viðar Gunnarsson, húsasmiður í Borgarnesi, gaf sjálfum sér harla óvenjulega afmælisgjöf í tilefni af fimmtugsafmælinu sínu á dögunum. Gjöfin fólst í að ljúka viðurkenndu 100 km hlaupi við fyrsta tækifæri. Tækifærið kom um liðna helgi, en á laugardaginn tók Gunnar þátt í 100 km ofurhlaupi í Bretlandi og lauk því á tæpum 14 klukkutímum.…Lesa meira