Fréttir

true

Söngkeppni framhaldsskólanna verður í Bíóhöllinni um helgina

Söngkeppni framhaldsskólanna verður í annað sinn haldin á Akranesi næsta laugardag, 13. apríl. Að þessu sinni verður keppnin í Bíóhöllinni og eru það Vinir hallarinnar sem hafa tekið að sér að skipuleggja keppnina en þeir sáu einnig um það verkefni á síðasta ári þegar útlit var fyrir að ekkert yrði af keppni. „Við tókum þetta…Lesa meira

true

Borgarnes nú tengt við ljósleiðara

Búið er að tengja öll heimili í Borgarnesi við ljósleiðara. „Við tökum fagnandi á móti þeim 370 heimilum sem við áttum eftir að tengja þarna og nú geta því íbúar tekið upp símann og við lofum því að tengja allt fljótt og vel,“ segir á Facebook síðunni Ljósleiðarinn. Allir íbúar í Borgarnesi ættu því að…Lesa meira

true

Habitus flytur inn tilbúin smáhús frá Lettlandi

Snemma á þessu ári var fyrirtækinu Habitus ýtt úr vör. Starfsemi fyrirtækisins snýr að innflutningi á tilbúnum húsum hingað til lands. Það er Skagamaðurinn Ísleifur Örn Guðmundsson sem stendur að fyrirtækinu ásamt Arnbjörgu Baldvinsdóttur unnustu hans. „Húsin eru í hæsta gæðaflokki, smíðuð við bestu mögulegu aðstæður í verksmiðju Manta North í Lettlandi. Þau afhendast fullkláruð…Lesa meira

true

Rjómabúið Erpsstaðir er tíu ára

Í gær var réttur áratugur liðinn síðan Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir, bændur á Erpsstöðum í Dölum, hófu heimavinnslu afurða á bænum með framleiðslu á rjómaís. Þar með var starfsemi Rjómabúsins Erpsstaða hafin og hefur staðið allar götur síðan. Þorgrímur var að vonum hinn ánægðasti þegar Skessuhorn sló á þráðinn til hans í…Lesa meira

true

Arnór valinn leikmaður umferðarinnar

Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson frá Akranesi heldur áfram að gera það gott með CSKA Mosvku í Rússlandi. Hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri í grannaslagnum gegn Spartak Mosvku um síðustu helgi. Frammistaða Arnórs í leiknum gerði það að verkum að hann var valinn besti leikmaður 22. umferðar rússnesku úrvalsdeildarinnar. Arnór, sem leikur stöðu miðjumanns,…Lesa meira

true

Listakonan Snjólaug undirbýr opnun sýningar

Laugardaginn 13. apríl næstkomandi ætlar Snjólaug Guðmundsdóttir að opna sýningu á verkum sínum í Safnahúsinu í Borgarnesi. Sýningin nefnist „Vefnaður, þæfing og bókverk“ en það er einmitt það sem Snjólaug mun sýna; ofnar myndir, blaut- og þurrþæfð listaverk og bókverk með ljóðum eftir Snjólaugu. „Meiningin var að vinna sem mest úr því efni sem ég…Lesa meira

true

Brynjar Már þrefaldur Íslandsmeistari í badminton

Meistaramót Íslands í badminton fór fram um helgina. Brynjar Már Ellertsson úr ÍA sigraði í einliðaleik í A flokki karla. Brynjar Már og Pontus Rydström úr ÍA sigruðu í tvíliðaleik A flokks karla og í tvenndarleik í A flokki sigruðu mæðginin Brynjar Már og Brynja Kolbrún Pétursdóttir. Brynjar Már varð því þrefaldur Íslandsmeistari. Drífa Harðardóttir…Lesa meira

true

Aftur brotist inn í Hönnubúð

Á öðrum tímanum í nótt var brotist inn í Hönnubúð í Reykholti í Borgarfirði, einungis tveimur sólarhringum eftir síðasta innbrot í verslunina. Að sögn Jóhönnu Sjafnar Guðmundsdóttur kaupmanns náðu innbrotsþjófarnir að taka með sér lítilsháttar af tóbaki. Innbrotskerfi lét strax í sér heyra og sást til ferða þjófanna. Lögreglan á Vesturlandi fann þá svo skömmu…Lesa meira

true

Stjórn Brákarhlíðar unir ekki úrskurðum ráðuneytisins

Stjórn hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi fjallaði á fundi sínum 4. apríl síðastliðinn um samskipti sín við heilbrigðisráðuneytið og áhugaleysi þess að koma til móts við þarfir íbúa. „Stjórn Brákarhlíðar lýsir miklum vonbrigðum með svör heilbrigðisráðuneytisins við endurteknum erindum Brákarhlíðar varðandi annars vegar fjölgun hjúkrunarrýma og hins vegar óskum um að breyta dvalarrýmum í…Lesa meira

true

Mjólkurbikarinn hefst í Akraneshöllinni í kvöld

Mjólkurbikar karla í knattspyrnu hefst í kvöld, miðvikudaginn 10. apríl. Fyrsti leikur bikarkeppninnar þetta árið er viðureign Kára og Hamars í Akraneshöllinni. Snæfell mætir KB á útivelli föstudaginn 12. apríl og Skallagrímur tekur á móti KV sunnudaginn 14. apríl. Víkingur Ó. hefur leik fimmtudaginn 18. apríl og tekur þá annað hvort á móti Úlfunum eða…Lesa meira