Fréttir

true

Ungt fólk og lýðræði til umfjöllunar í Borgarnesi

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin á Hótel B59 í Borgarnesi á morgun og föstudag. Um 80 ungmenni á aldrinum 14-25 ára frá ungmennaráðum alls staðar að af landinu koma saman á ópólitískum vettvangi og ræða saman málefni líðandi stundar. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „Hvernig get ég verið besta útgáfan af sjálfum mér?“…Lesa meira

true

Gestastofa Snæfellsness hlýtur styrk

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 71,5 milljónum króna til sjö verkefna á vegum sex landshlutasamtaka sveitarfélaga. Styrkjunum er úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlunarsvæðum fyrir árið 2019 í takti við stefnumótandi byggðaáætlun. Alls bárust 19 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 278 m.kr. fyrir árið 2019. Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir…Lesa meira

true

Þjóðkjörnir hækka ekki í launum 1. júlí

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis minnisblað, með samþykki ríkisstjórnarinnar, þar sem lagðar eru til tvær breytingar á frumvarpi til breytinga á lögum vegna brottfalls laga um kjararáð, sem nú er til meðferðar Alþingis. Sú fyrri lýtur að því að gerð verði breyting til bráðabirgða þannig að launahækkun 1. júlí 2019 komi…Lesa meira

true

Eftirför og leit að innbrotsþjófum

Brotist var inn í Hönnubúð í Reykholti á ellefta tímanum á sunnudagskvöld. Viðvörunarkerfi verslunarinnar ræsti eigandann sem hélt þegar á staðinn og mætti meintum innbrotsþjófum á bíl á þjóðveginum við Reykholt. Gerði hann lögreglu viðvart sem kom frá Borgarnesi báðar stofnleiðirnar upp í Borgarfjörð. Önnur lögreglubifreiðin mætti hinum meintu innbrotsþjófum á leiðinni. Sinntu þeir ekki…Lesa meira

true

Borgarbyggð vinnur mál um beitarrétt

Héraðsdómur Vesturlands kvað í gær upp dóm sem snertir upprekstrarland á afrétti Þverhlíðinga og Tungnamanna sem nær að hluta yfir jörðina Krók í ofanverðum Norðurárdal. Deilur hafa staðið milli upprekstrarfélags bænda sem vísa til hefðarréttar og óþinglýsts samnings frá árinu 1924 þar sem þáverandi landeigandi Króks afsalaði sér þeim hluta jarðarinnar sem var afréttarmegin við…Lesa meira

true

Útgerðin opnuð í Pakkhúsinu

Útgerðin var opnuð í Pakkhúsinu í Ólafsvík síðastliðinn föstudag. Þar fæst nú handverk, sælkeravörur, íslensk hönnun og léttar veitingar svo sem boozt, skyr, vefjur og fleira. Að sögn Rutar Ragnarsdóttur eiganda Útgerðarinnar mættu 150 manns fyrsta daginn og var hún ánægð með það. Rut segist enn vera að finna taktinn með opnunartíma og mun á…Lesa meira

true

Sjávarpakkhúsið Svansvottað

Veitingastaðurinn Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi hefur nú fengið afhenta Svansvottun. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Um leið er Sjávarpakkhúsið fyrsti veitingastaðurinn á Norðurlöndunum til að fá slíka vottun samkvæmt nýjum staðli Svansins. Það var Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra sem afhenti Söru Hjörleifsdóttur og öðru starfsfólki Sjávarpakkhússins vottunina þegar hann var á ferðinni í Hólminum…Lesa meira

true

Fá 70 milljónir til tækjakaupa

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið skiptingu rúmlega 420 milljóna króna af fjárlögum sem varið verður til að efla tækjakost heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni þar sem endurnýjunarþörf er orðin brýn.  Rúmur helmingur fjárins er föst fjárveiting en 200 milljónir króna er tímabundin fjárveiting ætluð til endurnýjunar á myndgreiningarbúnaði stofnananna. Til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands renna 70 milljónir króna.Lesa meira

true

Ráðstefnan Matvælalandið Ísland

Sérstaða og samkeppnisforskot í matvælaframleiðslu er þema ráðstefnu sem haldin verður í Reykjavík á morgun, miðvikudag kl. 10-12 á Hilton Reykjavík Nordica. Það er samstarfsvettvangur um Matvælalandið Ísland sem efnir til hennar.  Á ráðstefnunni verður fjallað um gildi sérstöðunnar og þær áskoranir sem margar þjóðir standa frammi fyrir í sinni matvælaframleiðslu. Kröfur um örugg matvæli,…Lesa meira

true

Skoða nafnasamkeppni um skólann

Byggðarráð Borgarbyggðar tók til umræðu á fundi í síðustu viku þær miklu endurbætur sem nú eiga sér stað á Grunnskólanum í Borgarnesi. „Jafnframt voru ræddar þær hugmyndir sem komið hafa upp að í sambandi við hinar miklu endurbætur á skólanum sem standa yfir hvort eigi að efna til hugmyndasamkeppni um a) nýtt nafn á skólanum…Lesa meira