Fréttir

true

Samið við Náttúrustofu Vesturlands um minkarannsóknir

Síðastliðinn föstudag skrifuðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Róbert A. Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands, undir samning um rannsóknir og vöktun Náttúrustofu Vesturlands á minkum. Markmið samningsins er að afla og vinna úr vísindalegum gögnum um mink í náttúru landsins, sem m.a. má nýta til að styðja við bætt skipulag og framkvæmd minkaveiða. Í…Lesa meira

true

Skorað á alþingismenn að hafna þriðja orkupakka ESB

Samtökin Orkan okkar hafa sent áskorun á alla þingmenn. Þar segir: „Ágætu alþingismenn, segið nei við staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 97/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn (þriðji orkupakkinn). Beinið þeim tilmælum til sameiginlegu EES-nefndarinnar að Ísland verði undanþegið innleiðingu þriðja orkupakkans enda er Ísland ekki tengt raforkumarkaði ESB.“ Í greinargerð með…Lesa meira

true

Á íslenskum dögum er athyglinni beint að innlendri framleiðslu

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er verndari átaksins „Íslenskt – gjörið svo vel“ sem hófst um helgina. Innlendir matvælaframleiðendur og verslanir hafa tekið höndum saman og ætla að vekja athygli á úrvali íslenskra vara í fjölmörgum verslunum víða um land fram til 20. apríl næstkomandi. Að baki átakinu Íslenskt – gjörið svo vel standa Samtök…Lesa meira

true

Fasteignasala á Vesturlandi í mars

Á Vesturlandi var 49 samningum kaupsamningum um fasteignir þinglýst í mars. Þar af voru 24 samningar um eignir í fjölbýli, 18 samningar um eignir í sérbýli og sjö samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.467 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,9 milljónir króna. Af þessum 49 voru 28 samningar um eignir á Akranesi.…Lesa meira

true

Í úrslit eftir ótrúlegan endasprett

Skagamenn tryggðu sér sæti í úrslitaleik 2. deildar karla í körfuknattleik með ótrúlegum útisigri á KV á föstudagskvöld. Skemmst er frá því að segja að heimamenn í KV höfðu undirtökin í leiknum nær allan tímann, en Skagamenn voru þó aldrei langt undan. Mikil spenna færðist í leikinn í lokafjórðungnum, en þegar rúm mínúta lifði leiks…Lesa meira

true

Listaverk gamalla barnaskólanemenda að hverfa

Verktakinn Work North ehf. hóf í liðinni viku niðurrif á veggnum umhverfis sandþró Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Þar með sér fyrir endann á niðurrifi mannvirkja verksmiðjunnar, í það minnsta í þessum áfanga. Eins og íbúar þekkja prýða listaverk austurhlið veggjarins. Þessi verk eiga sér sögu. Í upphafi níunda áratugarins, frá tíma Barnaskóla Akraness, efndi Sementsverksmiðjan til…Lesa meira

true

Tap í jöfnum úrslitaleik

Skagamenn töpuðu 2-1 fyrir KR þegar liðin mættust í úrslitaleik Lengjubikars karla í gærkvöldi. Leikið var í Laugardalnum í Reykjavík. Um hörkuleik var að ræða. Mikið jafnræði var með liðunum frá upphafi til enda og lítið sem skildi liðin að. Bæði lið fengu sín marktækifæri framan af fyrri hálfleiknum. Á 23. mínútu skoraði Pablo Punyed…Lesa meira

true

UMFÍ vantar mótshaldara fyrir Landsmót 50+

Landsmót UMFÍ fyrir fimmtíu ára og eldri hefur verið haldið víða um land frá 2011. Það verður í Neskaupstað dagana 28. – 30. júní í sumar og í Borgarnesi sumarið 2020. Nú er komið að því að finna mótsstað árið 2021 og auglýsir UMFÍ eftir áhugasömum sveitarfélögum í það verkefni. Landsmót UMFÍ 50+ er blanda…Lesa meira

true

Tillögur varðandi raforkusölu til garðyrkjubænda

Starfshópur um raforkumálefni garðyrkjubænda hefur skilað skýrslu sinni til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. „Starfshópurinn var skipaður vorið 2018 og var ætlað að kortleggja þróun framleiðslukostnaðar garðyrkjubænda og hlut raforku í honum, þróun gjaldskrárbreytinga, taxta og niðurgreiðslna vegna raforkunotkunar garðyrkjubænda, kanna möguleika til aukinnar nýsköpunar, þróunarverkefna og samstarfs í greininni og skoða hvaða möguleikar og verðmæti…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við Þjóðgarðsmiðstöð

Síðastliðinn föstudag hófst með formlegum hætti jarðvegsvinna fyrir nýja Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra mætti af því tilefni á staðinn, steig upp í gröfu og hóf framkvæmdir með táknrænum hætti. Viðstödd var einnig fyrirrennari hans í embætti, Sigrún Magnúsdóttir, sem fyrir þremur árum tók fyrstu skóflustunguna að miðstöðinni. Íbúum á svæðinu var boðið…Lesa meira