Fréttir

true

Styrkur veittur til úrvinnslu gagna um fornleifar á Gufuskálum

Við úthlutun styrkja í liðinni viku úr fornminjasjóði var Fornleifastofnun Íslands veittur 2,5 milljóna króna styrkur til skrásetningar heimilda sem fengust við uppgröft á Gufuskálum árin 2008-2015. Þessi ár veitti Minjastofnun undanþágu til rannsókna sökum aðstæðna. Engar rannsóknir hafa farið fram á hinni fornu verstöð á Gufuskálum eftir það en staðurinn er sem kunnugt er…Lesa meira

true

Starfsemi Norðanfisks á Akranesi öll undir eitt þak

Sú breyting varð á rekstri fiskvinnslu Norðanfisks á Akranesi í síðustu viku að vinnsla fyrirtækisins var öll færð undir sama þak að Vesturgötu 5. Samhliða því að loka starfsstöðinni sem verið hefur í gamla HB Granda húsinu við Bárugötu þá var sjö manns hjá fyrirtækinu sagt upp störfum. Starfsemin við Bárugötu fólst einkum í vöruþróun…Lesa meira

true

Skoða fullvinnsla afurða í Dölum

Á miðvikudag í liðinni viku var blásið til fundar í Árbliki í Dölum þar sem ræddir voru möguleikar á að koma upp aðstöðu í héraðinu til frekari fullvinnslu afurða. Það var Skúli Hreinn Guðbjörnsson, bóndi og formaður byggðaráðs Dalabyggðar, sem stóð fyrir fundinum. Hann var að vonum ánægður með góða aðsókn á fundinn. Þar héldu…Lesa meira

true

Samið til fjögurra ára í tímamótasamningum

Seint í gærkvöldi var skrifað undir nýja kjarasamning verslunar-, skrifstofu- og verkafólks í húsnæði Ríkissáttasemjara. Samningar þessir ná til á annað hundrað þúsunda starfsmanna á almennum vinnumarkaði og verða án efa stefnumarkandi fyrir þá samningsaðila sem eftir eiga að ná saman við samningaborðið. Það einkennir þessa samninga að stjórnvöld koma til móts við aðila vinnumarkaðarins…Lesa meira

true

Andlát – Ófeigur Gestsson

Ófeigur Gestsson lést að kvöldi 2. apríl síðastliðins á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, 75 ára að aldri. Hann hafði um árabil glímt við hjartveiki. Ófeigur var fæddur í Reykjavík 12. október 1943, sonur Gests Jónssonar gjaldkera og Kristínar Jónsdóttur húsmóður. Á fyrri hluta starfsferils síns vann hann í rúma tvo áratugi sem frjótæknir hjá Búnaðarsambandi…Lesa meira

true

Skaginn 3X vinnur mál

Hæstiréttur sneri með dómi í síðustu viku við úrskurði Landsréttar frá 12. október 2018 þar sem fyrrum starfsmaður Skagans 3X krefur fyrirtækið um greiðslu vegna frítökuréttar vegna skerts hvíldartíma og fyrir skert réttindi til vikulegs frídags. Skaginn 3X var sýknaður af kröfu stefndanda í dómi Hæstaréttar og málskostnaður á öllum dómstigum felldur niður. Í dómi…Lesa meira

true

Ekið of geyst

Töluvert var um hraðakstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Allnokkrir voru stöðvaðir á hraða á bilinu 110-118 km/klst., langflestir á Vesturlandsvegi þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Sá sem hraðast ók var tekinn á 124 km/klst. Þar voru á ferðinni erlendir ferðamenn sem þurftu að greiða sektina á staðnum. Lögregla segir…Lesa meira

true

Efnilegir læknanemar

Á sameiginlegu vísindaþingi skurð-, svæfinga- og fæðingar- og kvensjúkdómalækna, sem haldin var 29. mars síðastliðinn, fluttu nokkrir læknanemar á fjórða ári erindi sem byggð eru á BS verkefnum þeirra frá síðasta ári. Þrjár ungar konur unnu til verðlauna fyrir bestu vísindaerindin og skákuðu þar með reynslumeiri unglæknum í sérnámi. Þetta voru þær Oddný Rún Karlsdóttir…Lesa meira

true

Sif Travel skipuleggur ferðir um Akranes

Björg Bjarnadóttir er eigandi ferðaskrifstofunnar Sif Travel sem býður meðal annars upp á fjölbreyttar ferðir um Akranes. „Hér á Akranesi eru miklir afþreyingarmöguleikar og bærinn okkar á mikið inni í ferðaþjónustunni,“ segir Björg í samtali við Skessuhorn. Björg rekur fyrirtækið ásamt eiginmanni sínum, Þórarni Ægi Jónssyni, frá heimili þeirra á Akranesi. „Við rekum Thor Photography,…Lesa meira

true

Greiddu átta þúsund krónur með hverjum farþega

Kostnaður Reykjavíkurborgar og Akraneskaupstaðar vegna ferjusiglinga milli Akraness og Reykjavíkur árið 2017 nam átta þúsund krónum á hvern farþega. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram fyrirspurn í borgarráði Reykjavíkur í febrúar og óskuðu eftir upplýsingum um fjölda farþega sem sigldi með ferjunni á meðan Flóasiglingum stóð. Í svari frá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar kemur fram að…Lesa meira