Fréttir

true

Hvimleiðir fjárkúgunarpóstar frá Mið-Austurlöndum

Undanfarnar vikur hefur talsvert verið um fólk fái fjárkúgunartölvupóst. Er hann þannig stilltur að engu líkara er en pósturinn komi úr eigin netfangi. Meðfylgjandi er skjáskot af einum þessara pósta. Móttakandi hans lét lögregluna vita og fékk það svar að töluvert væri um slíka pósta um þessar mundir. Í svari lögreglu segir: „Búið er að…Lesa meira

true

Í fangelsi fyrir sviptingarakstur

Karlmaður var nýverið dæmdur í 30 daga fangelsi í Héraðsdómi Vesturlands fyrir að aka bifreið eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum. Honum var gefið að sök að hafa í nóvemberbyrjun 2018 ekið bifreið sviptur ökuréttindum á Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöng og krafðist ákæruvaldið refsingar. Ákærði játaði brot sitt. Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi frá…Lesa meira

true

Afgangur af rekstri Hvalfjarðarsveitar

Rekstrarniðurstaða Hvalfjarðarsveitar var jákvæð um 74,9 milljónir á síðasta ári. Ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2018 var afgreiddur á fundi sveitarstjórnar 26. mars síðastliðinn. Tekjur A og B hluta sveitarsjóðs námu 838,8 milljónum króna á síðasta ári, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 830,9 milljónum. Rekstrargjöld samstæðunnar námu alls 781,3 milljónum króna. Veltufé frá rekstri…Lesa meira

true

Travel West Iceland bæklingur í lokavinnslu

Vinnsla á hinu árlega Ferðablaði Vesturlands; Travel West Iceland 2019-2020 er nú á lokametrunum fyrir prentun. Útgáfuþjónusta Skessuhorns gefur blaðið út, sem nú kemur út í 20. skipti, en í nánu samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands. Bæklingurinn er í A5 broti, 116 síður og í honum er að finna upplýsingar um á þriðja hundrað þjónustuaðila á…Lesa meira

true

Lionsklúbbur Akraness færði sjúkrahúsinu gjafir

Í gærkvöldi hélt Lionsklúbbur Akraness árlegan afmælisfund sinn í fundasal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) við Merkigerði. Í lok fundar var sjúkrahúsinu afhentar gjafir, en klúbburinn er í hópi dyggra styrktaraðila HVE og hefur í gegnum tíðina fjármagnað kaup á fjölmörgum tækjum til lækninga og þjónustu við sjúklinga. Að þessu sinni var HVE fært tæki til gjörgæsluvöktunar…Lesa meira

true

Hótel Varmaland verður opnað í júní

Framkvæmdir hafa staðið yfir við Hótel Varmaland í vetur. Áætlað er að nýtt 61 herbergis hótel verði opnað þar 1. júní næstkomandi, eins og stefnt hefur verið að frá því í haust. Það var í september síðastliðnum sem þeir Þórir Garðarsson og Sigurdór Sigurðsson, oft kenndir við Allrahanda, festu kaup á hótelbyggingunni í gamla Húsmæðraskólanum…Lesa meira

true

Undirbúningur að sjötíu listamanna sýningu á Snæfellsnesi

Sýningin „Nr. 3 Umhverfing“ verður sett upp víðsvegar um Snæfellsnes næsta sumar og koma hvorki fleiri né færri en sjötíu listamenn að henni, þekktir sem minna þekktir. Sýningin verður formlega opnuð í Breiðabliki laugardaginn 22. júní og stendur til 31. ágúst. Um er að ræða myndlistarsýningu á verkum listamanna sem hafa á einhvern hátt tengingu…Lesa meira

true

Mokveiði fyrir hrygningarstopp

Sjómenn á Breiðafirði þurftu að hverfa frá mokfiskiríi þegar hrygningastopp hófst á mánudaginn. Stoppið á Vestursvæði, sem nær yfir nánast allan Breiðafjörðinn og innanverðan Faxaflóa, stendur til 21. apríl næstkomandi. Sumarliði Ásgeirsson, tíðindamaður Skessuhorns í Stykkishólmi, var um borð í Kap II VE-7, sem landaði þrisvar á Grundarfirði frá föstudegi til sunnudags. Hann segir skipverja…Lesa meira

true

Ekið á bíl í basli

Umferðaróhapp varð á Holtavörðuheiði síðastliðna nótt. Hringt var eftir aðstöð lögreglu vegna bifreiðar á norðurleið sem hafði fests í snjó og hálku í brekku. Fimm voru í bílnum. Ökumaður reyndi að losa bílinn og snúa við en á meðan var lögregla í sambandi við farþega bílsins símleiðis. Á meðan á þessu stendur heyrir lögreglumaður hróp…Lesa meira

true

Fyrirlestur í kvöld um klausturhald, konur og pólitík

Í kvöld, þriðjudaginn 2. apríl, flytur Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti um klausturhald, konur og pólitík. “Kristnitakan um árið 1000 fól í sér nýja stjórnskipan í landinu, byggðri á reglugerðum frá höfuðstöðvum kaþólsku kirkjunnar í Róm. Í fyrstunni gekk ágætlega að fylgja þeim eftir en eftir að Gregor páfi VII hóf…Lesa meira