Fréttir

true

Kristinn kjörinn stjórnarformaður Lánasjóðs sveitarfélaga

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, var kjörinn stjórnarformaður Lánasjóðs sveitarfélaga á aðalfundi sjóðsins á föstudag. Kristinn hefur setið í stjórn sjóðsins frá 1999 og verið varaformaður hans síðan 2005. Hann tekur við stöðunni af Magnúsi B. Jónssyni, sem hefur verið stjórnarformaður lánasjóðsins undanfarin 16 ár, eða síðan 2003. Kristinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum árið…Lesa meira

true

Stórsigur Kára á Skallagrími

Kári og Skallagrímur áttust við í Vesturlandsslag í Lengjubikar karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var í Akraneshöllinni. Kári leikur sem kunnugt er í 2. deild en Skallagrímur tryggði sér sæti í 3. deildinni eftir síðasta keppnistímabil. Borgnesingar fengu óskabyrjun þegar Pali Ervis kom Skallagrími yfir strax á 6. mínútu leiksins. Mikael Hrafn Helgason varð…Lesa meira

true

Rof verður á framboði neftóbaks eftir húsbruna í nótt

Laust eftir miðnætti í nótt kom upp eldur í iðnaðarhúsnæði við Stuðlaháls í Reykjavík. Slökkvistarf gekk greiðlega, en miklar skemmdir urðu á framleiðslubúnaði og lager sem í húsinu var. Húsið við Stuðlaháls er í eigu ÁTVR sem hefur um áratugaskeið rekið þar einu íslensku tóbaksframleiðsluna, þar sem íslenska neftóbakið er unnið samkvæmt áratugagamalli hefð. Eftir…Lesa meira

true

Bjargshús komin á Akranes

Tvö af þremur húsum sem Bjarg íbúðafélag reisir á Akranesi eru komin til landsins frá Lettlandi. Byrjað var að lesta flutningaskipið BBC Balboa þar ytra fimmtudaginn 21. mars síðastliðinn. Skipið lagðist að bryggju í Akraneshöfn síðdegis í gær. Þegar í stað var hafist handa við að skipa upp og ekið með húsin að Asparskógum, þar…Lesa meira

true

Ráðherra ræddi framkvæmdir í vegamálum

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fór fram í liðinni viku. Í ávarpi sem Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra flutti varð honum tíðrætt um samgöngumál og þær stórframkvæmdir sem framundan eru í endurnýjun vegakerfisins. Ráðherra sagði stórsókn vera framundan í samgöngumálum þjóðarinnar. Í nýkynntri fjármálaáætlun hafi framlög til samgöngumannvirkja verið hækkuð verulega frá fyrri samgönguáætlun og…Lesa meira

true

Rekstur Rarik gengur betur með fleiri jarðstrengjum

Hagnaður af rekstri Rarik á árinu 2018 var 2,7 milljarðar króna sem er um 11% meiri hagnaður en á árinu 2017. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var í síðustu viku, en þar var ákveðið að greiða 310 milljónir króna í arð til eigandans, íslenska ríkisins. Rekstrartekjur RARIK hækkuðu um 12% frá árinu…Lesa meira

true

Samið um niðurrif þróarveggjar og húss við Suðurgötu

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 25. mars sl. var bókað að lagt væri til við bæjarráð að samið verði við Work North ehf. um að fjarlægja veggi umhverfis sandþró Sementsverksmiðjunnar, í framhaldi af útboðssamningi á öðrum mannvirkjum á Sementsreit. Fram kemur í fundargerðinni að um viðbótarverk sé að ræða við niðurrif mannvirkja á Sementsreitnum…Lesa meira

true

Fimm dagdvalarrými færð að Höfða frá öðrum á Vesturlandi

Heilbrigðisráðuneytið hefur nú svarað beiðni hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða frá 24. október 2017, sem ítrekað var í janúar síðastliðinum, þar sem farið var fram á að fjölga dagdvalarrýmum á Höfða um fimm og að breyta tíu almennum dagdvalarrýmum í fimm sérhæfð dagdvalarrými fyrir fólk með heilabilun. Í svari ráðuneytisins er orðið við beiðni um fjölgun…Lesa meira

true

Óska eftir að Kútter Sigurfara verði fargað

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ritað Minjastofnun bréf þar sem farið er fram á heimild til að farga Kútter Sigurfara, sem stendur að niðurlútum kominn á Safnasvæðinu í Görðum. Í bókun vegna málsins segir að með þeim rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið á skipinu telji Akraneskaupstaður sig hafa sinnt rannsóknum á kútter Sigurfara með fullnægjandi hætti en…Lesa meira

true

Vel lagt milli húsa

Það hefur vakið töluverða athygli vegfarenda sem fara um Sæbólið í Grundarfirði að undanförnu að rútubifreið nokkurri hefur verið komið kyrfilega fyrir á milli húsa Ragnars og Ásgeirs ehf. og Bifreiðaþjónustu Snæfellsness. Margir hafa sést staldra þarna við, taka myndir og klóra sér svo í hausnum yfir því hvernig þetta sé hægt samkvæmt lögmálum eðlisfræðinnar.…Lesa meira