Fréttir

true

Skóladagur í Borgarbyggð á morgun

Á morgun, laugardaginn 30. mars á milli klukkan 13 og 15, munu skólar á öllum skólastigum í Borgarbyggð kynna starfsemi sína á Skóladegi sem haldinn verður í Hjálmakletti. Vítt og breitt um bygginguna verður margt forvitnilegt að sjá og hægt að kynnast gróskumiklu skólastarfi allra skólastiga í sveitarfélaginu. Þetta er í fyrsta skipti sem skólarnir…Lesa meira

true

Endurgerð grunnskólalóðar í útboð

Stykkishólmsbær hefur auglýst eftir tilboðum í fyrsta áfanga endurgerðar á lóð Grunnskólans í Stykkishólmi og Amtsbókasafnsins. Er það norðurhluti lóðarinnar sem tekinn er fyrir í fyrsta áfanga, samtals um 6.400 fermetrar. Helstu verk sem inna þarf af hendi í fyrsta áfanga eru jarð- og lagnavinna, uppsetning ljósastólpa, landmótun og frágangur á þeim stéttum sem falla…Lesa meira

true

Skóf ekki rúðuna og ók blindandi

Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði för ökumanns í Borgarnesi í síðustu viku. Ástæða þess að lögregla hafði afskipti af ökumanninum var sú að hann hafði ekki þrifið rúður bílsins sem hann ók. Framrúðan var héluð svo ekki sást út við aksturinn. Að sögn lögreglu liggur 20 þúsund króna sekt við broti af þessu tagi, sem er…Lesa meira

true

Úrslit úr smásagnakeppni bókahátíðarinnar Júlíönu

Júlíana, hátíð sögu og bóka, var haldin sjöunda sinn í Stykkishómi frá fimmtudegi til sunnudags. Hátíðin hófst formlega með opnunarhátíð á Vatnasafninu á fimmtudagskvöld. Þar voru veitt verðlaun fyrir smásagnasamkeppnina sem efnt var til í tengslum við hátíðina. Alls barst 41 smásaga í keppnina. Að þessu sinni hreppti Ásdís Ingólfsdóttir fyrstu verðlaun fyrir sögu sína…Lesa meira

true

Styrkir afhentir til skóla-, íþrótta- og menningarmála á Akranesi

Styrkir Akraneskaupstaðar til skóla-, íþrótta- og menningartengdra verkefna voru afhentir við hátíðlega athöfn á Bókasafni Akraness á fimmtudag. Um var að ræða úthlutanir úr styrktarsjóði til íþrótta- og menningarverkefna að verðmæti 7,2 milljónir króna og 2,5 milljónir króna til þróunar- og nýsköpunarverkefna úr þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs. Elsa Lára Arnardóttir, formaður bæjarráðs, bauð gesti samkomunnar…Lesa meira

true

Opnaði Rifssaum til að réttlæta kaup á saumavél

Katrín Gísladóttir handverks- og útgerðarkona í Snæfellsbæ opnaði verslunina Rifssaum í verbúð í Rifi árið 2008 en áður hafði hún verið með vinnustofu heima hjá sér. Á hlaupársdag árið 2012 keypti hún Baðstofuna í Rifi undir verslunina og 5. maí á síðasta ári flutti hún verslunina enn á ný að Ólafsbraut 19 í Ólafsvík. „Þetta…Lesa meira

true

Höfðavinir komu færandi hendi

Síðastliðinn laugardag var haldið vöfflukaffi Höfðavina á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi. Tilefnið var að Höfðavinir höfuð flutt snoker borð úr kjallara í sal á fyrstu hæð heimilisins. Borðið hafði verið gefið á Höfða árið 1993 og hafði Guðmundur B. Hannah veg og vanda af komu þess á sínum tíma. Borðið hafði staðið ónotað…Lesa meira

true

Jákvæður rekstur Dalabyggðar

Rekstur Dalabyggðar á árinu 2018 var jákvæður um 49,4 milljónir króna. Ársreikningurinn var til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar 14. mars síðastliðinn, þar sem honum var vísað til síðari umræðu. Rekstratekjur samstæðu A og B hluta sveitarsjóðs voru 930,5 milljónir króna en rekstrargjöld 828,6 milljónir. Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og -gjalda var jákvæð um 68,6 milljónir.…Lesa meira

true

Markmið að sorpflokkun og urðun verði í sem bestri sátt við íbúa

„Við sem sitjum í stjórn Sorpurðunar Vesturlands (SV) leggjum mikinn metna í að hafa starfsemina í sem bestu ástandi á hverjum tíma og rækta gott samstarf við nágranna urðunarstaðarins. Höfum við m.a. keypt tæki og tól til að standa eins vel að starfseminni og framast er unnt, unnið að eyðingu vargs og reynum að fyrirbyggja…Lesa meira

true

Segir af sér sveitarstjórnarstörfum

María Júlía Jónsdóttir, 1. varamaður Samfylkingarinnar í sveitarstjórn Borgarbyggðar, hefur sagt sig frá trúnaðarstörfum í sveitarstjórn. Afsagnarbréf var lagt fram fyrir fund byggðarráðs í dag en sveitartjórn þarf að staðfesta uppsögn. María Júlía hefur á þessu kjörtímabili verið varaformaður umhverfis,- skipulags- og landbúnaðarnefndar og fulltrúi sveitarfélagsins í stjórn Faxaflóahafna. Hún staðfestir í samtali við Skessuhorn…Lesa meira