Fréttir

true

Gul viðvörun fyrir Breiðafjörð og Vestfirði

Veðurstofan gerir ráð fyrir leiðindaveðri á Breiðafjarðasvæðinu í kvöld og nótt. Spáð er 15-23 m/sek norðvestantil á landinu og 20-25 m/sek í kvöld og fram eftir nóttu. Það mun ganga á með dimmum éljahryðjum og skafrenningi, einkum á fjallvegum. Bent er á að veður og færð geti valdið truflun á samgöngum. Víða eru hálkublettir á…Lesa meira

true

Felling strompsins í beinni á vef Skessuhorns

Sem kunnugt er stendur til að fella sementsstrompinn á Akranesi kl. 12:15 á morgun, fimmtudaginn 21. mars. Lögregla, bæjaryfirvöld og björgunarsveit eru með mikinn viðbúnað vegna viðburðarins, enda búist við að fjöldi fólks vilji fylgjast með því þegar strompurinn fellur. Til að mæta þeim sem ekki geta verið viðstaddir en vilja fylgjast með ætlar Skessuhorn…Lesa meira

true

Mótmæla fyrirætlun um aukna sorpurðum í Fíflholtum

Sorpurðun Vesturlands hélt í síðustu viku kynningarfund um fyrirætlan sveitarfélaga á Vesturlandi að sækja um heimild til að auka sorpflokkun í Fíflholtum úr 15 þúsund tonnum á ári í 25 þúsund tonn. Núverandi starfsleyfi féll sjálfkrafa úr gildi þar sem á síðasta ári fór urðun framyfir leyfilegt hámark. Á kynningarfundinum í Lyngbrekku var samþykkt ályktun…Lesa meira

true

Töluverðar breytingar á stjórn Sundfélags Akraness

Aðalfundur Sundfélags Akraness var haldinn í gær. Á dagskrá voru hefbundin aðalfundarstörf. Trausti Gylfason, fráfarandi formaður félagsins, flutti ársskýrslu ársins 2018. Sagði hann starf félagsins afar blómlegt og fór yfir árangur iðkenda á liðnu ári. Daníel Sigurðsson gjaldkeri lagði fram ársreikning félagsins og var hann samþykktur einróma. Heildartekjur félagsins voru um 21,5 milljónir og heildargjöld…Lesa meira

true

Þrír Vestlendingar valdir í drengjalandsliðið

Þjálfarar U15 ára landsliða drengja og stúlkna í körfuknattleik hafa valið 18 manna lokahópa fyrir sumarið 2019. Bæði landsliðin munu keppa á Copenhagen Invitational mótinu sem fram fer í Danmörku seinni part júní í sumar. Vestlendingar eiga þrjá fulltrúa í hópunum, alla í U15 ára landsliði drengja. Þeir eru Alexander Finnsson úr Skallagrími, Aron Elvar…Lesa meira

true

Telja of rúmar heimildir foreldra til að fá leyfi fyrir börn sín frá námi

Niðurstöður nýlegar könnunar Velferðarvaktarinnar um skólasókn í grunnskólum landsins benda til þess að um þúsund grunnskólanemendur á Íslandi glími við svokallaða „skólaforðun,“ eða 2,2% nemenda. Könnunin var lögð fyrir skólastjóra í 172 grunnskólum landsins nú í janúar. Þær benda til þess að leyfisóskum foreldra vegna grunnskólanema hér á landi hafi fjölgað umtalsvert, en rúmur helmingur…Lesa meira

true

LÍV og VR ósamstíga í kjarabaráttunni – formaðurinn segir af sér

Guðbrandur Einarsson, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna (LÍV), hefur sagt af sér embætti. Segir hann ástæðuna þá að stéttarfélagið sem hann hefur verið í forsvari fyrir undanfarin 21 ár, sameinast VR 1. apríl næstkomandi en við það færist samningsumboð LÍV yfir til VR. „Þá er sú staða uppi að LÍV og VR hafa ekki átt samleið…Lesa meira

true

Málþing um Vesturland á tímamótum

„Vesturland stendur á tímamótum. Nálægð við höfuðborgarsvæðið og iðnaðarsvæði á Grundartanga skapar atvinnutækifæri en líka mikinn akstur og fjarveru frá heimabyggð. Hvernig má auka fjölbreytileika og gera svæðið sjálfbærara um eigin hag. Er nóg að skapa ný atvinnutækifæri? Eða þurfa samfélagslegir innviðir, nýsköpun og atvinna að vinna saman til að auka sameiginleg lífsgæði. Býður Vesturland…Lesa meira

true

Loðnuveiðar hafnar á Faxaflóa

Fimmtíu grömmum af loðnu var landað á Akranesi laugardaginn 16. mars. Samanstóð aflinn af 35 gramma hæng og 15 gramma hrygnu sem reyndar var búin að hrygna. Hjónin eru jafnframt fyrsta og eina loðnan sem borist hefur að landi á þessari vertíð, sem reyndar verður ekki þar sem hún fannst ekki í veiðanlegu magni fyrir…Lesa meira

true

Fyrirlestur um heilsueflingu 60+ í Snæfellsbæ

Efnt verður til fyrirlesturs um heilsueflingu íbúa 60 ára og eldri í Snæfellsbæ í dag, miðvikudaginn 20. mars. Fyrirlesturinn fer fram í Félagsheimilinu Klifi og hefst hann kl. 14:00. Viðburðurinn er haldinn að frumkvæði velferðarnefndar og öldrunarráðs Snæfellsbæjar. Þar mun Janus Guðlaugsson frá Janus heilsueflingu fjalla um verkefnið Fjölþætt heilsuefling 65+ í sveitarfélögum. Það byggist…Lesa meira