Fréttir

true

Snæfellskonur sigruðu Vesturlandsslaginn

Skallagrímur og Snæfell mættust í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik náðu Snæfellskonur yfirhöndinni í þeim síðari og unnu að lokum átta stiga sigur, 63-71. Liðin skiptust á að leiða fyrstu mínúturnar og fylgdust síðan að eftir það. Skallagrímskonur áttu lokaorðið í upphafsfjórðungnum…Lesa meira

true

Góður árangur í meistarakeppni ungmenna

Fimmta og síðasta umferð meistarakeppni ungmenna í keilu á þessu tímabili fór fram laugardaginn 16. mars. Alls tóku um 50 ungmenni þátt í mótaröðinni á þessu tímabili. Bestan dag að þessu sinni skiptið átti Jóhann Ársæll Atlason úr ÍA, en hann varð efstur í 2. flokki pilta og skoraði 1.275 eða 212,5 að meðaltali. Hann…Lesa meira

true

Júlíana – hátíð sögu og bóka sett í Stykkishólmi í kvöld

Júlíana – hátíð sögu og bóka verður haldin í sjöunda sinn um helgina. Hátíðin hefst formlega með opnunarhátíð á Vatnasafninu í kvöld klukkan 20. „Fyrir hátíðina efndum við til smásagnakeppni og okkur bárust 41 saga. Við opnunina á Vatnasafninu verða veitt verðlaun fyrir 1.-3. sæti auk þess sem við veitum einum Hólmara viðurkenningu fyrir framlag…Lesa meira

true

Vilja að íslenskur matur sé í skólunum

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku kvað Guðveig Eyglóardóttir oddviti Framsóknarflokks sér hljóðs. Lagði hún fram tillögu þar sem hún kallar eftir samstöðu sveitarstjórnar í því að mörkuð verði stefna um innkaup gæðahráefnis í mötuneyti skólanna í sveitarfélaginu. „Í mötuneytum leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu verði lögð sérstök áhersla á verslun með íslensk matvæli…Lesa meira

true

Vélmenni til náms í Grundaskóla

Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis festi nýverið kaup á vélmenni sem nefnist Beam upp á enska tungu og hefur það verið tekið í notkun í Grundaskóla á Akranesi. Þar á bæ kjósa nemendur og starfsfólk að kalla vélmennið „Nærveru“. Tækið er hannað til að aðstoða nemendur sem geta ekki sótt skóla vegna langvarandi veikinda. Það virkar…Lesa meira

true

„Hellirinn Víðgelmir er einstakur og heimsókn í hann er upplifun“

Fyrir bráðum fjórum árum festi fjölskylda frá Akureyri kaup á bænum Fljótstungu í Hvítársíðu og þar með hellinum Víðgelmi í Hallmundarhrauni. Þegar var hafist handa við að bæta aðgengi að hellinum, smíða tröppur og göngupalla um allan hellinn, leggja ofan í hann rafmagn og koma fyrir ljósum. Vorið eftir, í maí 2016, var fyrsta ferðin…Lesa meira

true

Fellingu strompsins frestað til föstudags

Fellingu skorsteins Sementsverksmiðjunnar sálugu á Akranesi hefur verið frestað um einn sólarhring. Upphaflega stóð til að hann yrði felldur á hádegi á morgun en því hefur nú verið frestað vegna óhagstæðrar veðurspár. Hins vegar er stefnt að því fella strompinn þess í stað á hádegi á föstudaginn, 22. mars kl. 12:15, að því er fram…Lesa meira

true

Veiðimenn og veiðiréttareigendur snúa bökum saman

Landssamband veiðifélaga og Landssamband stangaveiðifélaga samþykktu harðaorða ályktun á sameiginlegum formannafundi sem fram fór í Reykjavík fyrr í vikunni. Fundurinn átelur harðalega það samráðsleysi sem hefur verið viðhaft við undirbúning framlagðs frumvarps til breytinga á fiskeldislögum. Slík vinnubrögð séu ekki til þess fallin að ná sátt um þetta mikilvæga mál heldur þvert á móti er…Lesa meira

true

Inga María í draumastarfið sem fyrsti verkefnastjóri Samfés

Skagakonan Inga María Hjartadóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Samfés og er hún fyrst til að gegna þeirri stöðu, en fram til þessa hefur framkvæmdastjóri verið eini starfsmaður Samfés. „Ég gæti ekki verið ánægðari,“ segir Inga María í samtali við Skessuhorn. „Samfés hefur vaxið mikið og það var kominn tími fyrir annan starfsmann, sem betur fer…Lesa meira

true

Tekur við starfi kaupfélagsstjóra fyrst kvenna í 115 ára sögu KBB

Stöðugt fækkar þeim vígjum sem flokkast hafa undir karlastörf. Þær eru til dæmis fáar konurnar í gegnum tíðina sem tekið hafa að sér starf kaupfélagsstjóra. Í sumar mun Margrét Katrín Guðnadóttir dýralæknir og MBA í viðskiptafræði taka við starfi kaupfélagsstjóra Kaupfélags Borgfirðinga, fyrsta konan til að gegna því starfi í 115 ára sögu félagsins. Gaman…Lesa meira