Fréttir

true

Sannkölluð vertíðarstemning í Snæfellbæ

Sannkölluð vertíðarstemning er í Snæfellsbæ þessa dagana. Mikill afli hefur borist að landi og veiðst vel í öll veiðarfæri, að sögn Þórðar Björnsson hafnarvarðar í Ólafsvík. Netabáturinn Bárður SH landaði til dæmis 40 tonnum á einum og sama deginum en þann dag var tvílandað. Einnig hefur netabáturinn Arnar SH fengið góðan afla og síðasta laugardag…Lesa meira

true

Tæpur helmingur notar snjalltæki við akstur

Í síðustu viku var skoðanakönnun hér á vef Skessuhorns um snjalltækjanotkun samhliða akstri. Spurt var hvort fólk hefði freistast til að nota snjalltæki við akstur bíls. Niðurstaðan var sláandi. Af 360 einstaklingum sem tóku þátt í könnuninni sögðust 10% oft freistast til að nota snjalltæki við akstur og 39% segjast einstaka sinnum hafa gert það,…Lesa meira

true

Slitnað upp úr viðræðum

Eftir hádegi í dag sátu fulltrúar fjögurra verkalýðsfélaga; Eflingar, VR, VLFA og VLFG, fund með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara. Líkt og búist var við fyrirfram slitnaði upp úr viðræðunum. Forsvarsmenn allra félaganna höfðu fengið heimild úr baklandi sínu til að slíta viðræðum ef ekki bærist nýtt tilboð frá SA. Fastlega má gera ráð fyrir…Lesa meira

true

Dæmdar bætur vegna vatnsleka

Hitaveitufélagi Hvalfjarðar og Vátryggingafélagi Íslands hefur verið gert að greiða Kirkjumálasjóði tæpar 2,4 milljónir króna í bætur vegna leka sem varð á heitavatnslögn prestbústaðarins að Saurbæ í Hvalfirði fyrir fimm árum síðan. Dómur var upp kveðinn í Héraðsdómi Reykjavíkur miðvikudaginn 20. febrúar síðastliðinn. Niðurstaða héraðsdóms er að lekann hafi mátt rekja til gallaðrar lagnar eða…Lesa meira

true

GRun kaupir Bergey VE

Útgerðarfyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði hefur fest kaup á togskipinu Bergey VE 544 af Bergi-Huginn ehf. í Vestmannaeyjum, fyrirtæki sem nú er í eigu Síldarvinnslunnar. Skipið var smíðuð hjá Nordship skipasmíðastöðinni í Gdynia í Póllandi 2006 og nýskráð árið eftir. Mesta lengd er 29 metrar og breidd 10,4 m. Bergey er skráð 487 brúttótonn…Lesa meira

true

Holutíð á vegum samhliða umhleypingum

„Nú er hvoru tveggja sá árstími og það tíðarfar sem eykur hættuna á holumyndunum á þjóðvegum,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. „Þegar þíða kemur í kjölfar frosts og kulda eða þegar miklir umhleypingar eru eykst hættan á því að holur myndist í bundnu slitlagi, malbiki og klæðningu. Vegfarendur er því beðnir að sýna sérstaka árvekni…Lesa meira

true

Sjór gengur á land

Mjög hásjávað er undan vesturströndinni í dag og ölduðhæð er sömuleiðis óvenjumikil út af vestur- og suðurströnd landsins. Því veldur há sjávarstaða og djúp lægð vestur af landinu. Íbúar á Vesturlandi hafa þegar orðið varir við óvenju háa stöðu sjávar. Sjór hefur til að mynda gengið á land í Stykkishólmi. Er þar engu líkara en…Lesa meira

true

Ráðherra kynnir frumvarp um innflutning ferskra matvæla

Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra kynnti í gær á samráðsgátt stjórnvalda frumvarp sem gerir innflutningsfyrirtækjum kleift að flytja inn hrátt ófrosið kjöt, fersk egg og ógerilsneyddar mjólkurvörur frá og með 1. september á þessu ári. Ákvörðunin er byggð á niðurstöðu hæstaréttardóms og með vísan í ESB reglugerð. Verslunar- og innflutningsaðilar hafa sótt það afar stíft að…Lesa meira

true

Slök byrjun og slæmur endir

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Haukum,  59-72, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Leikurinn fór hægt af stað og engin stig voru skoruð fyrstu þrjár mínúturnar, eða þar til gestirnir úr Hafnarfirði komust á blað. Skallagrímskonur fundu sig hins vegar engan veginn í fyrsta leikhluta.…Lesa meira

true

Hásjávað við vestur- og suðurströndina

Óvenjumikil ölduhæð er út af vestur- og suðurströndinni í dag. Því veldur djúp lægð sem nálgast nú landið úr vestri. Gert er ráð fyrir að ölduhæðin geti orðið 8-10 metrar vestur af landinu og allt að 14 metrar úti á Vesturdjúpi undir lok vikunnar. Samhliða veðrinu er há sjávarstaða. Meðfylgjandi er mynd sem tekin var…Lesa meira