Fréttir

true

Slitnað upp úr viðræðum

Eftir hádegi í dag sátu fulltrúar fjögurra verkalýðsfélaga; Eflingar, VR, VLFA og VLFG, fund með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara. Líkt og búist var við fyrirfram slitnaði upp úr viðræðunum. Forsvarsmenn allra félaganna höfðu fengið heimild úr baklandi sínu til að slíta viðræðum ef ekki bærist nýtt tilboð frá SA. Fastlega má gera ráð fyrir…Lesa meira

true

Dæmdar bætur vegna vatnsleka

Hitaveitufélagi Hvalfjarðar og Vátryggingafélagi Íslands hefur verið gert að greiða Kirkjumálasjóði tæpar 2,4 milljónir króna í bætur vegna leka sem varð á heitavatnslögn prestbústaðarins að Saurbæ í Hvalfirði fyrir fimm árum síðan. Dómur var upp kveðinn í Héraðsdómi Reykjavíkur miðvikudaginn 20. febrúar síðastliðinn. Niðurstaða héraðsdóms er að lekann hafi mátt rekja til gallaðrar lagnar eða…Lesa meira

true

GRun kaupir Bergey VE

Útgerðarfyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði hefur fest kaup á togskipinu Bergey VE 544 af Bergi-Huginn ehf. í Vestmannaeyjum, fyrirtæki sem nú er í eigu Síldarvinnslunnar. Skipið var smíðuð hjá Nordship skipasmíðastöðinni í Gdynia í Póllandi 2006 og nýskráð árið eftir. Mesta lengd er 29 metrar og breidd 10,4 m. Bergey er skráð 487 brúttótonn…Lesa meira

true

Holutíð á vegum samhliða umhleypingum

„Nú er hvoru tveggja sá árstími og það tíðarfar sem eykur hættuna á holumyndunum á þjóðvegum,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. „Þegar þíða kemur í kjölfar frosts og kulda eða þegar miklir umhleypingar eru eykst hættan á því að holur myndist í bundnu slitlagi, malbiki og klæðningu. Vegfarendur er því beðnir að sýna sérstaka árvekni…Lesa meira

true

Sjór gengur á land

Mjög hásjávað er undan vesturströndinni í dag og ölduðhæð er sömuleiðis óvenjumikil út af vestur- og suðurströnd landsins. Því veldur há sjávarstaða og djúp lægð vestur af landinu. Íbúar á Vesturlandi hafa þegar orðið varir við óvenju háa stöðu sjávar. Sjór hefur til að mynda gengið á land í Stykkishólmi. Er þar engu líkara en…Lesa meira

true

Ráðherra kynnir frumvarp um innflutning ferskra matvæla

Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra kynnti í gær á samráðsgátt stjórnvalda frumvarp sem gerir innflutningsfyrirtækjum kleift að flytja inn hrátt ófrosið kjöt, fersk egg og ógerilsneyddar mjólkurvörur frá og með 1. september á þessu ári. Ákvörðunin er byggð á niðurstöðu hæstaréttardóms og með vísan í ESB reglugerð. Verslunar- og innflutningsaðilar hafa sótt það afar stíft að…Lesa meira

true

Slök byrjun og slæmur endir

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Haukum,  59-72, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Leikurinn fór hægt af stað og engin stig voru skoruð fyrstu þrjár mínúturnar, eða þar til gestirnir úr Hafnarfirði komust á blað. Skallagrímskonur fundu sig hins vegar engan veginn í fyrsta leikhluta.…Lesa meira

true

Hásjávað við vestur- og suðurströndina

Óvenjumikil ölduhæð er út af vestur- og suðurströndinni í dag. Því veldur djúp lægð sem nálgast nú landið úr vestri. Gert er ráð fyrir að ölduhæðin geti orðið 8-10 metrar vestur af landinu og allt að 14 metrar úti á Vesturdjúpi undir lok vikunnar. Samhliða veðrinu er há sjávarstaða. Meðfylgjandi er mynd sem tekin var…Lesa meira

true

310.is færir sig á nýjan stað í Borgarnesi

Um næstu mánaðamót verða breytingar hjá fyrirtækinu 310.is ehf. í Borgarnesi. Það hefur frá því í fyrrasumar rekið bónstöð við Sólbakka 27 en þar verður lokað 28. febrúar og flutningur undirbúinn. Fyrirtækið mun flytja starfsemi sína í iðnaðarhúsnæðið við Sólbakka 6 þar sem opnað verður 2. apríl. Í forsvari fyrir fyrirtækið er Kristján J. Sólbakki…Lesa meira

true

Hægindi er afurðahæsta sauðfjárbú Vesturlands

Samkvæmt skýrsluhaldi Rágjafarmiðstöðvar landbúnaðarins var afurðahæsta sauðfjárbú landsins á síðasta ári bú Eiríks Jónssonar í Gýgjarhólskoti í Biskupstungum. Er þá miðað við bú sem voru með fleiri en 100 ær á skýrslum, en Eiríkur var með 287 ær. Skilaði hver kind hjá Eiríki 44,3 kílóum og fædd lömb á búi hans voru 2,06 að meðaltali…Lesa meira