Fréttir

true

Flóðahætta við vestur- og suðurströndina

Veðurstofan spáir óvenju mikilli ölduhæð samhliða því að hásjávað er. Því veldur djúp lægð sem nálgast nú landið úr vestri. Gert er ráð fyrir að ölduhæðin geti orðið 8-10 metrar vestur af landinu og allt að 14 metrar út á Vesturdjúpi undir lok vikunnar. Þá telur Landhelgisgæslan ástæðu til að upplýsa sjófarendur um krefjandi aðstæður…Lesa meira

true

Íbúðir í nýju fjölbýlishúsi boðnar til sölu

Fasteignasalan Valfell hefur nú auglýst til sölu tveggja og þriggja herbergja íbúðir í nýju fjölbýlishúsi við Borgarbraut 57 í miðbæ Borgarness, en þær eru ætlaðar fyrir 60 ára og eldri. Opið hús verður næstkomandi laugardag og sýnt inn í fullbúnar sýningaríbúðir á annarri hæð hússins. Húsið er sjö hæða lyftuhús byggt af fyrirtækinu Húsum og…Lesa meira

true

„Ljósmóðir er með fólki á gleðiríkustu stundum þess í lífinu“

Soffía G. Þórðardóttir ljósmóðir fagnaði sjötugsafmæli sínu á mánudaginn, 18. febrúar síðastliðinn og átti 52 ára brúðkaupsafmæli sama dag. Hún fagnaði áfanganum með stórveislu á Gamla Kaupfélaginu á sunnudaginn, í faðmi fjölskyldu og vina. Soffía starfaði sem ljósmóðir á Akranesi í fjörtíu ár og hefur fylgt ófáum börnum fyrstu sentímetrana í lífinu. „Ég tapaði tölunni…Lesa meira

true

Eftirliti og viðbragðsáætlun ábótavant í Hvalfjarðargöngum

Á þriðjudagsmorgni í liðinni viku varð árekstur tveggja bíla í ofanverðum Hvalfjarðargöngum, um 500 metra frá gangamunnanum að norðanverðu. Tveir menn slösuðust. Atvikalýsing var þannig að lítill jepplingur á norðurleið varð kyrrstæður í göngunum. Virðist sem ökumaðurinn hans hafi verið í vandræðum með aksturinn í nokkurn tíma, ef marka má atburðaskráningu frá vaktstöð Vegagerðarinnar, sem…Lesa meira

true

Lýsa vonbrigðum með útspil ríkisstjórnarinnar

„Miðstjórn ASÍ lýsir verulegum vonbrigðum með þau áform um breytingar á skattkerfinu sem fjármálaráðherra kynnti í gær. Tillögurnar mæta engan vegin kröfum verkalýðshreyfingarinnar um tekjujöfnunar- og tekjuöflunarhlutverk skattkerfisins og geta að óbreyttu ekki orðið grundvöllur sátta í samfélaginu,“ segir í tilkynningu sem ASÍ var að senda út.  „Tillögurnar byggja á því að létta skattbyrði allra…Lesa meira

true

Töluverð hreyfing á fylgi miðað við síðustu kosningar

Ef gengið yrði til kosninga nú fengi Sjálfstæðisflokkurinn stuðning 22,7% landsmanna, Samfylking 15,9% og Framsóknarflokkur 13,5%. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-15. febrúar. Fylgi Vinstri grænna heldur áfram að dala frá síðustu könnun MMR og er nú 11,1%. Fylgi Pírata minnkaði sömuleiðis um rúmlega eitt og hálft prósentustig og…Lesa meira

true

Staðfest mislingasmit flugfarþega

Einstaklingur með smitandi mislinga kom til Íslands frá Filippseyjum 14. febrúar síðastliðinn en hann ferðaðist með vélum Icelandair (FI455) frá London til Keflavíkur og síðan Air Iceland Connect (NY356) frá Reykjavík til Egilsstaða 15. febrúar síðastliðinn. Frá þessu greinir Landlæknisembættið. Þá segir að Icelandair og Air Iceland Connect, í samvinnu við sóttvarnalækni, hafa sent farþegum…Lesa meira

true

Tæplega 48 milljóna króna hagnaður af rekstri KFÍA

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA var haldinn síðastliðið mánudagskvöld. Fundurinn hófst á stuttu ávarpi Guðna Bergssonar, formanns Knattspyrnusambands Íslands. Að svo búnu fór Magnús Guðmundsson, stjórnarformaður KFÍA, yfir ársskýrslu félagsins. Sigurður Þór Sigursteinsson framkvæmdastjóri og Heimir Fannar Gunnlaugsson fóru síðan yfir ársreikning síaðsta árs og kynntu áætlun ársins 2019. Í ársreikningi og ársskýrslu kemur fram að tekjur…Lesa meira

true

Minningarsjóður Heimis formlega skráður

Nú hafa bakverðir Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar komið honum formlega á laggirnar og sýslumaður gefið út leyfisbréf. Eins og kunnugt er voru fyrstu tónleikar á vegum sjóðsins haldnir í vetur í Reykholtskirkju. Markmið sjóðsins er að heiðra minningu Heimis Klemenzsonar tónlistarmanns frá Dýrastöðum og styrkja með aflafé ungt og efnilegt tónlistarfólk í Borgarfirði. „Við í stjórn…Lesa meira

true

Íbúum boðið til kynningarfundar á Rótarýdeginu

Rótarýdagurinn verður sem fyrr haldinn hátíðlegur laugardaginn 23. febrúar næstkomandi. Dagurinn er á alþjóðavísu nýttur til að vekja athygli á starfi hreyfingarinnar og verkefnum sem hún beitir sér fyrir. Þórir Páll Guðjónsson er forseti Rótarýklubbs Borgarness. Klúbburinn býður íbúum og öllum áhugasömum á kynningarfund næstkomandi laugardag á Hótel Borgarnesi. Þar mun fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir flytja…Lesa meira