Fréttir

true

Kröfu um ógildingu starfsleyfa Arnarlax vísað frá

Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu héraðsdóms að vísa frá kröfu um ógildingu leyfa til fiskeldis í Arnarfirði. Veiðiréttarhafar í Haffjarðará höfðu krafist þess að starfsleyfi Umhverfisstofnunar og rekstrarleyfi Matvælastofnunar fyrir sjókvíaeldi Arnarlax í Arnarfirði yrðu ógilt með dómi á grundvelli þess að eldið skapi hættu fyrir villta laxastofna í landinu. Í úrskurði héraðsdóms í janúar síðastliðnum…Lesa meira

true

Grunsamlegar mannaferðir í síðustu viku

Um kvöldmatarleytið þriðjudaginn 5. febrúar síðastliðinn var Lögreglunni á Vesturlandi tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í Borgarnesi. Maður varð var við fótspor í snjónum þar sem sást að einhver hafði gengið að húsi og kíkt á gluggana. Lögregla vill hvetja fólk til að hafa auga með nágrenni sínu og láta vita ef það verður vart við…Lesa meira

true

Jóhanna Fjóla er settur forstjóri HVE

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs. Embættið var auglýst laust til umsóknar í nóvember og fjórar umsóknir bárust. Var Jóhanna Fjóla metin hæfust af hæfnisnefnd. Hún hefur gegnt starfinu frá 1. febrúar 2017, eftir að Guðjón S. Brjánsson tók sæti á Alþingi. Jóhanna Fjóla hefur…Lesa meira

true

Fasteignaverð hækkaði mest á Akranesi

Fasteignaverð á Akranesi hækkaði um 19,2 prósent milli áranna 2017 og 2018. Hvergi annars staðar á landinu varð jafn mikil hækkun fasteignaverðs, skv. Hagsjá Landsbankans sem birt var í dag . Þar kemur einnig fram að fasteignaverð hækkaði meira í fjórum stærstu bæjarfélögunum utan höfuðborgarsvæðisins en á höfuðborgarsvæðinu frá 2017 til 2018. Bæjarfélögin fjögur eru…Lesa meira

true

Gerir piparkökuhús af mikilli nákvæmni

Valdís Einarsdóttir á Akranesi er sannkölluð listakona en hún hefur í ríflega þrjá áratugi hannað og búið til piparkökuhús sem eru ekkert í líkingu við þau hefðbundnu piparkökuhús sem sjá má á mörgum heimilum í desember. Valdís hafði um árabil fyrir jólin keppt í piparkökuhúsasamkeppni Kötlu og margoft lent í verðlaunasæti. Eftir að hafa sigrað…Lesa meira

true

Húsbíll fauk út af í hávaðaroki

Ótrúlegt umferðaróhapp varð um áttaleytið á föstudagskvöld. Þá fauk húsbíll út af Vesturlandsvegi við Skipanes í Hvalfjarðarsveit. Virðist sem vindhviða hafi feykt bílnum út af veginum og yfir skurð þar sem bíllinn staðnæmdist. Í dagbók lögreglu er bókað sérstaklega að mjög slæmt veður hafi verið á svæðinu þegar óhappið varð. Til marks um það var…Lesa meira

true

„Algjör kúvending að flytja heim til Íslands og gerast hrossabóndi“

Einar Ólafsson keypti Söðulsholt á Snæfellsnesi árið 1998 og fluttist þangað alfarið skömmu eftir aldamótin. Hann var þá búinn að vinna erlendis á fjórða áratug og langaði að flytja heim til Íslands. Eftir heimkomuna endurnýjaði hann kynnin af hestamennskunni, sem hafði blundað í honum allt frá barnsaldri en ekki fengið að njóta sín að ráði…Lesa meira

true

Skýrslan Áfangastaðaáætlun Vesturlands er komin út

Í síðustu viku var Skarphéðni Berg Steinarssyni ferðamálastjóra afhent eintak af nýrri áfangastaðaáætlun fyrir Vesturland, skýrslu sem unnin var af Markaðsstofu Vesturlands fyrir Ferðamálastofu. Skýrslan er talsvert mikil að vöxtum en í henni er safnað saman fjölmörgum hagnýtum upplýsingum um sitthvað sem snertir áfangastaðinn Vesturland. Skýrslunni er ætlað að stuðla að ábyrgri þróun ferðamála á…Lesa meira

true

Kynningarfundir á þremur stöðum í dag vegna “Betri rekstur”

Í dag fara fram þrír kynningarfundir um verkefnið Betri rekstur – bætt afkoma, sem Samtök sveitarfélga á Vesturlandi stendur fyrir. Þar býðst starfandi fyrirtækjum á Vesturlandi aðstoð við að meta hvar tækifæri þeirra liggja til að bæra árangur sinn í rekstrinum. „Starfandi fyrirtæki eru burðarás verðmætasköpunar í samfélaginu. Það skiptir því miklu máli að þau…Lesa meira