Fréttir

true

Frumvarp um burðarpoka

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem varðar notkun burðarpoka. Lagt er til í frumvarpinu að frá og með 1. júlí á þessu ári verði óheimilt að afhenda alla burðarpoka, þar með talið burðarpoka úr plasti, án endurgjalds á…Lesa meira

true

Hálkuvörn fýkur burt

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur einnig fram að vetrarfærð er víðast hvar á landinu, hálka,…Lesa meira

true

Verklokum seinkar ekki að sögn Vegagerðarinnar

„Framkvæmdir við breikkun Vesturlandsvegar hefjast í haust og mun þeim ljúka á árinu 2022 eins og til hefur staðið. Þrátt fyrir tilfærslur á fjárveitingum í verkið milli ára mun verklokum ekki seinka,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni nú síðdegis. Deiliskipulag vegarins um Kjalarnes, sem var samvinnuverkefni Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar, var staðfest síðastliðið sumar. „Síðan hefur…Lesa meira

true

Taphrina Skallagríms á enda

Skallagrímsmenn bundu enda á 13 leikja taphrinu í Domino‘s deild karla í körfuknattleik þegar þeir lögðu Breiðablik á föstudagskvöld, 91-90. Var þetta fyrsti sigur Borgnesinga í deildinni síðan í október og því afar kærkominn. Skallagrímsmenn höfðu undirtökin í upphafi leiks en Blikar voru aldrei langt undan. Seint í leikhlutanum munaði aðeins einu stigi á liðunum…Lesa meira

true

Lítil notkun endurskinsmerkja og margir svartklæddir

Slysavarnadeildin Líf á Akranesi gerði í morgun talningu á notkun endurskinsmerkja í bænum. Niðurstaðan var sláandi: „Því miður er staðan sú að notkun hangandi endurskinsmerkja er sáralítil. Endurskin á útifatnaði, mest á snjógöllum, virðist vera á pari við þá sem voru ekki með nein merki. Allt of mikið er af algerlega svartklæddu fólki án endurskinsmerkja…Lesa meira

true

Bíll brann á Innnesvegi

Lögreglunni á Vesturlandi og Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar barst útkall vegna elds í bíl á Innnesvegi skammt sunnan við Akranes, kl. 18:00 á föstudaginn. Að sögn lögreglu hafði eigandi skilið bílinn eftir í lausagangi og varð var við eld við hægra þokuljós þegar hann kom að honum aftur. Eigandinn náði að bjarga verðmætum úr bílnum…Lesa meira

true

Hagkaup lokar verslun sinni í Borgarnesi

Í árshlutauppgjöri Haga, sem birt var á miðvikudaginn í síðustu viku, kemur fram að í apríl næstkomandi rennur leigusamningur Hagkaups í Borgarnesi út. Ekki er fyrirhugað að endurnýja samninginn og verður versluninni því lokað eftir 12 ára rekstur. Verslunin var opnuð vorið 2007 og var meðfylgjandi mynd tekin þá.Lesa meira

true

Píratar ráða í ný störf

„Píratar hafa ráðið í þrjár nýjar stöður hjá flokknum,“ segir í tilkynningu. „Berglind Jónsdóttir hefur verið ráðin kynningar- og miðlunarstjóri Pírata, Róbert Ingi Douglas sem upplýsingastjóri og Hans Benjamínsson sem skrifstofustjóri. Þau vinna öll á skrifstofu Pírata, ásamt Erlu Hlynsdóttur framkvæmdastjóra flokksins, og mynda sem heild öflugt teymi sem mun styrkja starf Pírata um allt…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fækkaði mest síðustu þrjá mánuði

Í tölum Þjóðskrár um mannfjöldabreytingu frá 1. desember til 1. febrúar sl. kemur fram að íbúum fjölgaði hlutfallslega mest í Skorradalshreppi, eða um 8,6% en íbúum þar fjölgaði úr 58 í 63 íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi, um 5% og í Borgarfjarðarhreppi um 2,8%. Þá fækkaði íbúum í 29 af 72 sveitarfélögum landsins…Lesa meira

true

Kraftur endurútgefur bókina LífsKraft

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hefur endurútgefið bókina LífsKraftur í algjörlega nýrri mynd. „Allir sem greinast með krabbamein á aldrinum 18-45 ára og fjölmargir fleiri fá bókina afhenta sér að kostnaðarlausu en hún liggur einnig frammi á öllum spítölum landsins,“ segir í tilkynningu. „Bókin kom fyrst út árið…Lesa meira