Fréttir

true

Stórt tap Snæfellinga

Snæfellingar töpuðu stórt gegn Vestra, 105-63, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Ísafirði. Heimamenn komu mjög ákveðnir til leiks og ætluðu sér að gera út um leikinn strax í upphafsfjórðungnum. Staðan var 36-11 og Vestri kominn í vænlega stöðu eftir fyrsta leikhluta. Snæfellingar léku betur í öðrum…Lesa meira

true

Allt sem þú þarft að vita um krabbamein

Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn er í dag, 4. febrúar. Af því tilefni er komandi vinnuvika tileinkuð fræðslu um ýmislegt sem viðkemur krabbameinum og forvörnum gegn þeim. Fyrirtæki eru hvött til að hafa jákvæð áhrif á heilsu starfsfólks síns og Krabbameinsfélagið býður þingmönnum í heimsókn föstudaginn 8. febrúar til að taka þátt í örnámskeiðinu „Allt sem þú þarft…Lesa meira

true

Átak um upprunamerkingar

Í liðinni viku skrifuðu forsvarsmenn Bændasamtaka Íslands, Neytendasamtakanna, Samtaka verslunar og þjónustu  og atvinnumálaráðherrra undir samkomulag um að gera gangskör í því að bæta merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra. Samkvæmt samkomulaginu verður skipaður samráðshópur með fulltrúum fyrrgreindra aðila um að ráðast í…Lesa meira

true

Grunnskóli Borgarfjarðar kom vel út úr ytra mati

„Grunnskóli Borgarfjarðar er með gæðastarf þar sem stuðst er við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og annað sem lögum samkvæmt snýr að þeim þáttum skólastarfs sem metnir voru,“ segir í frétt um starfsemi Grunnskóla Borgarfjarðar sem byggir á ytra mati sem Menntamálastofnun gaf nýverið út. Ytra mat var framkvæmt á skólanum vorið 2018 og voru fjórir þættir…Lesa meira

true

Þjóðahátíð í Borgarnesi í dag

Í dag er var margt um að vera í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þá komu fulltrúar á þriðja tug þjóðarbrota saman og kynntu menningu sinna þjóða, ræddu við gesti og buðu smakk af þjóðarréttum sínum, á Þjóðahátíð. Margt var um manninn og margir sem nýttu sé þetta tækifæri til að kynna sér framandi menningu og matarmenningu…Lesa meira

true

Hálkuvörn puðrast út í loftið

Kalt verður með stífri norðanátt verður áfram, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni, „og hefur veðráttan mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og á öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir,“ segir í tilkynningunni. Á Vesturlandi…Lesa meira

true

Heildarmyndin er að skýrast

„Glæpastarfsemi á vinnumarkaði verður að stöðva. Hún skaðar einstaklinga og samfélagið allt. Við verðum að taka höndum saman og ráðast gegn kennitöluflakki, skilyrða keðjuábyrgð í opinberum framkvæmdum, herða eftirlit með brotastarfsemi og auka vernd fórnarlamba mansals.“ Þetta segir Drífa Snædal formaður Alþýðusambans Íslansds. „Þetta snýst um mannréttindi og heill samfélagsins. Öflug verkfæri til að ráðast…Lesa meira

true

Mótmæla frestun vegagerðar um Kjalarnes

„Byggðarráð Borgarbyggðar gerir alvarlegar athugasemdir við að teknar hafi verið ákvarðanir um að flytja fjármagn frá fyrirhugaðri uppbyggingu vegarins á Kjalarnesi til annarra verkefna eins og fréttir hafa borist af í fjölmiðlum.“ Í ályktun byggðarráðs frá því fyrir helgi segir að slík ákvörðun muni þýða mikla og óásættanlega seinkun á nauðsynlegum samgöngubótum milli höfuðborgarsvæðisins og…Lesa meira

true

Metnotkun heits vatns á höfuðborgarsvæðinu

“Aldrei áður hefur verið notað meira af heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu en síðastliðinn sólarhring. Síðustu klukkustundina var metrennsli þegar íbúar og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu nýttu tæplega 17.000 rúmmetra af heitu vatni og met fyrir meðalrennsli á sólarhring hefur einnig verið slegið,” sagði í tilkynningu frá Veitum í gær, laugardaga. “Í dag lítur út fyrir að…Lesa meira

true

Auknar tafir verða á vegabótum á Kjalarnesi

Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes hefur verið frestað og verður eins milljarðs króna fjárveiting sem ætluð var til verksins næstu tvö ár skorin niður í 400 milljónir króna. Bylgjan og Vísir.is greindu fyrst frá. Ástæðan er sögð tafir við verkhönnun og að samningar hafi ekki náðst við landeigendur. Sjá nánar frétt Vísis um málið.Lesa meira