
Meðal fastra liða í fjáröflun Soroptimistaklúbbs Akraness er gríðarmikill pönnukökubakstur daginn fyrir bóndadag. Fyrirtæki kaupa þá rjómapönnsur eða sykraðar og fá ekið heim að dyrum að morgni bóndadags. Klúbbkonur höfðu því í nægu að snúast í gær og bökuðu á fimmta þúsund ilmandi pönnukökur. Þær smökkuðust með ágætum – það getur ritstjórn Skessuhorns staðfest. Bændur…Lesa meira








