
Bú Guðlaugar Sigurðardóttur og Jóhannesar Eybergs Ragnarssonar á Hraunhálsi í Helgafellssveit var afurðahæsta kúabú Vesturlands á síðasta ári, þar sem meðalafurðir reyndust 8.452 kg eftir hverja árskú. Búið á Hraunhálsi var jafnframt þriðja afurðahæsta bú landsins árið 2018. Þetta kemur fram í fyrstu niðurstöðum skýrsluhalds mjólkurframleiðslunnar sem birtar voru á vef Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins sl. fimmtudag.…Lesa meira








