Fréttir

true

Halda til hafs þegar dúrar milli lægða

Gæftaleysi hefur verið að undanförnu en þó hafa sjómenn á Snæfellsnesi getað skotist út á milli þegar lægt hefur, eins og áhöfnin á dragnótarbátnum Guðmundi Jenssyni SH gerði á sunnudaginn. Ekki hefur fiskast vel í dragnót það sem af er árinu. Tryggvi Hafsteinsson lét kuldann og vindinn ekki hafa áhrif á sitt góða skap, en…Lesa meira

true

Martin Miller’s Gin hefur brátt uppbyggingu í Brákarey

Grímshús í Brákarey í Borgarnesi var reist árið 1942 og var það útgerðafélagið Grímur hf. sem stóð fyrir byggingu þess en það átti að hýsa búnað félagsins. Eftir eldsvoða á níunda áratugnum stóð húsið í mikilli niðurníðslu allt þar til árið 2013 sem hollvinafélag hússins, Gímshússfélagið, ákvað að hefja framkvæmdir við að gera húsið upp…Lesa meira

true

„Mesti uppgangur á landinu næstu tíu árin verður á Akranesi“

Fyrirtækið Uppbygging ehf. stendur þessa dagana að þremur stórum verkefnum á Akranesi. Um er að ræða byggingu fjölbýlishúss við Asparskóga 29, sem er vel á veg komin, verslunar- og þjónustumiðstöð við Smiðjuvelli og hótel við Kirkjubraut. Síðarnefndu verkefnin tvö eru í skipulagsferli. Uppbygging ehf. er í eigu hjónanna Engilberts Runólfssonar og Kristínar Minneyjar Pétursdóttur. Skessuhorn…Lesa meira

true

Hjúkrunarfræðingar kynna störf sín á afmælisári

Að kvöldi þriðjudagsins 18. nóvember árið 1919 komu saman fáeinar konur í herbergi í húsi við Aðalstræti 8 í Reykjavík. Þær voru þarna saman komnar í þeim tilgangi að stofna nýtt félag; „Félag íslenskra hjúkrunarkvenna,“ sem hafði þann tilgang að hjálpa stúlkum sem vildu læra hjúkrunarstörf að fara til Danmerkur til náms. Á þessu ári…Lesa meira

true

Garðabær, Akranes og Seltjarnarnes með sterkustu fjárhagsstöðuna

Í skýrslu sem Samtök atvinnulífsins gaf nýverið út er farið nokkuð ítarlega yfir fjármál sveitarfélaga hér á landi þar sem íbúar eru fjögur þúsund eða fleiri. Þegar opinber fjármál á Íslandi eru rædd fer oft minna fyrir umræðu um þátt sveitarfélaga en efni standa til. Sveitarfélög taka til sín og ráðstafa um fimmtungi af öllum…Lesa meira

true

Þæfingsfærð á fjallvegum

Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Vesturlandi og víða skafrenningur. Þæfingsfærð er á Laxárdalsheiði. Ófært í Álftafirði og vegurinn um Fróðárheiði er lokaður, segir í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Fyrsta tapið á heimavelli í vetur

Snæfellskonur töpuðu naumlega gegn Keflavík, 78-82, í stórleik sextándu umferðar Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi og var þetta fyrsta tap Hólmara á heimavelli í vetur. Gestirnir skoruðu fyrstu stigin en Snæfellskonur voru sterkari í fyrsta leikhluta og leiddu með fimm stigum að honum loknum, 20-15. Þær juku muninn í…Lesa meira

true

Ofsaakstur í Hvalfjarðargöngum

Axel Rafn Benediktsson, íbúi á Akranesi, náði myndbandi af bíl aka á ofsahraða niður Hvalfjarðargöngin sunnanmegin síðdegis í gær. Myndbandið birti hann á Facebook-síðu sinni sem og íbúahópi Akurnesinga, þar sem hann vakti athygli á ofsaakstrinum. Myndbandið er tekið úr farþegasæti bíls sem ekið er um Hvalfjarðargöng með hraðastillinguna á 70 km/klst., sem er hámarkshraði…Lesa meira

true

Vetrarfærð á vegum

Vetrarfærð er á vegum á öllu landinu og frekar sæmt ferðaveður á fjallvegum á Vestfjörðum, að sögn Vegagerðarinnar. Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja mjög víða en þungfært á Holtavörðuheiði og unnið að hreinsun. Ófært er á Fróðárheiði og í Álftafirði.Lesa meira

true

Mannamót markaðsstofanna verður á fimmtudaginn

Mannamót markaðsstofa landshlutanna fer fram fimmtudaginn 17. janúar, að þessu sinni í Kórnum í Kópavogi. Undanfarin ár hefur viðburðurinn verið haldinn í flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli, en sökum mannfjölda í fyrra var ákveðið að færa hann í stærra húsnæði. Mannamót er haldið af markaðsstofum landshlutanna í samvinnu við flugfélagið Erni og Isavia. Markmiðið er að…Lesa meira