Fréttir

true

Reglugerð um hvenær skjóta má upp flugeldum

Vakin er athygli á því að í reglugerð um skotelda er leyfilegur skottími skemmri en áður. “Almenn notkun flugelda er leyfð frá 28. desember til 6. janúar frá kl. 10:00 til 22:00 og alla nýársnótt. Mikilvægt er að virða þessi takmörk til að gefa dýraeigendum kost á að viðra dýr sín án hættu á ofsahræðslu…Lesa meira

true

Varað við stormi á Breiðafjarðarsvæðinu og stórhríð á Vestfjörðum

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt norðan,- austan- og sunnanvert landið í kvöld og nótt. Fyrir Breiðafjarðarsvæðið gildir meðfylgjandi viðvörun: Það verður norðan stormur eða rok, 20-28 m/s og búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 30 m/s, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi, í Dölum og á Barðaströnd. Varasamt fyrir ökutæki…Lesa meira

true

Jarðskjálfti átti upptök sín í Skálafelli

Jarðskjálfti af stærðinni 4,4 á Richtersskala varð laust fyrir klukkan þrjú í nótt og átti upptök sín skammt vestur af Skálafelli á Hellisheiði, um átta kílómetra vest-suðvestan við Hveragerði. Margir vöknuðu við sjálftann og samkvæmt heimildum Skessuhorns fannst hann greinilega víða á Vesturlandi, meðal annars á Akranesi, Borgarnesi og í uppsveitum Borgarfjarðar, en einnig á…Lesa meira

true

Flugeldar og félagsvist í Þinghamri

Ungmennafélag Stafholtstungna og Kvenfélag Stafholtstungna boða til árlegs skemmtikvölds í félagsheimilinu Þinghamri miðvikudaginn 2. janúar klukkan 20. Þar verður spilað fyrsta kvöldið af þriggja kvölda félagsvist, lukkupokar verða til sölu fyrir börnin og björgunarsveitirnar Brák og Heiðar verða með flugeldasýningu. Kaffiveitingar í boði og allir velkomnir. -fréttatilkynningLesa meira

true

Björgunarsveitirnar selja rótarskot

Rótarskot eru ný leið Slysavarnafélagsins Landsbjargar til að styrkja sjálfboðastarf björgunarsveitanna í landinu. Hvert Rótarskot gefur af sér tré sem gróðursett er með stuðningi Skógræktarfélags Íslands í nýjan Áramótaskóg Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem plantað verður í sandana við Þorlákshöfn á Suðurlandi. Allur ágóði af sölu Rótarskotanna rennur til björgunarsveitanna og verða þau til sölu um land…Lesa meira

true

Ný könnun um afstöðu til sjókvíaeldis

Vestfjarðastofa fékk í nóvember síðastliðnum Gallup til að framkvæma viðhorfskönnun um afstöðu landsmanna til fiskeldis í sjó á Vestfjörðum. Þar kemur fram að 46,3% landsmanna eru jákvæðir gagnvart fiskeldi í sjó á Vestfjörðum en 29,6% eru neikvæðir. 24,1% eru hvorki jákvæðir né neikvæðir. Spurt var „Ertu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) gagnvart fiskeldi í sjó á Vestfjörðum?“…Lesa meira

true

Viðbótarframlag til heilbrigðisstofnana

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni 560 milljóna króna viðbótarfjárveitingu fyrir rekstrarárið 2018. Aukningin nemur að jafnaði um 3% af heildarfjárveitingu stofnananna á árinu. Af þessari upphæð renna 98,8 milljónir króna til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, en aðrar heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni fá frá 70-130 milljónir króna hver. „Aukafjárveitingunni er fyrst og fremst ætlað…Lesa meira

true

Nýr skipulagsfulltrúi til starfa í Hvalfjarðarsveit

Bogi Kristinsson Magnusen er nýr skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar. Hann hóf störf hjá sveitarfélaginu 1. desember síðastliðinn. Greint er frá þessu á heimasíðu sveitarfélagsins. Bogi er húsasmíðameistari, byggingafræðingur frá Vitus Bering Horsens í Danmörku og með Ms.c í skipulagsfræði frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Undanfarin 16 ár hefur Bogi starfað sem skipulags- og byggingafulltrúi fyrir Dalabyggð,…Lesa meira

true

Danskir sérfræðingar skipuleggja fellingu strompins

Fimmtudaginn fyrir jól var undirritaður verksamningur milli Akraneskaupstaðar og Work North ehf. um niðurrif sementsstrompsins á Akranesi. Work North mun vinna verkið í fullu samráði við undirverktakann Dansk Sprængnings Service, sem veitir sérfræðiaðstoð, skipuleggur fellingu strompsins og stýrir framkvæmd við fellingu. Næstu vikur verða notaðar í undirbúning að fellingu strompsins og er stefnt að niðurfellingu…Lesa meira

true

Ýmsar skattbreytingar taka gildi um áramót

Alþingi hefur samþykkt ýmsar skattbreytingar sem munu koma til framkvæmda í ársbyrjun 2019. Hér verður drepið á helstu breytingum, en lesendum bent á að á vefjum fjármálaráðuneytis og Skattstjóra er hægt að nálgast ítarlegri upplýsingar. Persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga mun taka breytingum. Persónuafsláttur hækkar um 4,7%, þar af um 3,7% vegna lögbundinnar verðlagsuppfærslu og…Lesa meira