Fréttir

true

Leikdagar í Geysisbikarnum

Körfuknattleikssambandið er búið að festa leikdaga í átta liða úrslitum Geysisbikars karla og kvenna í körfunni. Í karladeildinni mætir Skallagrímur ÍR mánudaginn 21. janúar klukkan 19:15. Í kvennadeildinni mætir Stjarnan Skallgrími sunnudaginn 20. janúar klukkan 14 og sama dag mæta Haukar Snæfelli klukkan 19:15.Lesa meira

true

Jólatónleikar Borgarfjarðardætra í kvöld kl. 20:30

Hinir árlegu jólatónleikar Borgarfjarðardætra verða haldnir í Reykholtskirkju í kvöld, fimmtudaginn 27. desember, kl. 20:30. Er þetta í fjórða sinn í röð sem hópurinn blæs til jólatónleika, auk þess sem einu sinni hafa verið haldnir sumartónleikar. Borgarfjarðardætur voru stofnaðar árið 2015 af Steinunni Þorvaldsdóttur og Birnu Kristínu Ásbjörnsdóttur, sem langaði að koma á fót sönghóp…Lesa meira

true

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Föstudaginn 21. desember sl. voru 47 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Við athöfnina flutti Dröfn Viðarsdóttir aðstoðarskólameistari annál haustannar 2018, Gyða Kolbrún Hallgrímsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Eiríkur Jónsson fyrrverandi nemandi skólans ávarpaði útskriftarnema. Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur við lok athafnar og óskaði þeim gæfu og velfarnaðar. Skagamærin…Lesa meira

true

Þak sett á magn greiðslumarks í mjólk

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði skömmu fyrir jól fjórar reglugerðir um stuðning við nautgriparækt, sauðfjárrækt, garðyrkju og landbúnað. Reglugerðirnar eru að mestu leyti samhljóða reglugerðum sem að giltu um sama efni árið 2018 og eru þær breytingar sem gerðar eru flestar smávægilegar, en með einni undantekningu þó. Helsta breytingin er að í reglugerð…Lesa meira

true

Fjórir sóttu um starf forstjóra HVE

Fjórir umsækjendur voru um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember. Það eru: Kristín Sigríður Þórarinsdóttir hjúkrunarfræðingur, Einar Örn Thorlacius lögfræðingur, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur og Skúli Þórðarson stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur. Heilbrigðisráðherra mun skipa í embættið að undangengnu mati hæfnisnefndar á umsækjendum, en nefndin starfar á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu.Lesa meira

true

Áttundi hver landsmaður er erlendur ríkisborgari

Alls voru 44.156 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi 1. desember síðastliðinn og eru þeir nú áttundi partur af íbúum landsins, eða 12,4%. Hefur þeim fjölgað um 6.344 manns frá því á sama tíma í fyrra, eða um 16,8%. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá koma erlendir ríkisborgarar frá 162 þjóðríkjum en flestir frá Póllandi, eða 19.190.…Lesa meira

true

Ríkisstjórnin stefnir að stórátaki í samgöngumálum

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra kynnti fyrir jól þá ákvörðun að flýta beri vegabótum víðsvegar um landið sem fjármagnaðar yrðu með lánum og vegtollum. „Til að fjármagna uppsafnaðan vanda í vegakerfinu er stefnt að því að valdar framkvæmdir verði fjármagnaðar með lánsfé og þær borgaðar með veggjöldum að loknum verktíma sem yrði í fyrsta lagi 2024,“…Lesa meira

true

Erlend kortavelta jókst mikið í nóvember

Aukning varð í flestum útgjaldaflokkum kortaveltu erlendra ferðamanna í nóvember en aukningin mælist í heildina 8,4% á milli ára og var heildarvelta erlendra korta 15,6 milljarðar. Hlutfallslega aukningin er þó mun meiri í raun en færsluhirðing korta innlendra flugfélaga hefur undanfarið ár færst frá innlendum færsluhirðum og því horfið úr þeim tölum sem hér eru…Lesa meira

true

Frí heimsending ef keypt er fyrir meira en 4900 krónur

„Heimkaup eru nú orðin stærsti stórmarkaður landsins með hátt í 50.000 vörunúmer eftir að sala hófst þar á matvælum fyrir jólin. Þar með er hægt að versla allt til heimilisins á einum stað á netinu á Heimkaup.is og fá vörurnar sendar heim frítt hvar sem viðskiptavinurinn er búsettur á landinu, ef verslað er fyrir 4.900…Lesa meira

true

Gleðileg jól

Skessuhorn – fréttaveita Vesturlands – sendir lesendum sínum til sjávar og sveita ósk um gleðileg jól. Bestu þakkir fyrir árið sem er að líða.Lesa meira