Fréttir

true

„Það er sameiningarafl í tónlistinni“

– Rætt við Einarsnessystkinin um listsköpun, tónlist og kraftinn sem í þeim býr Systkinin frá Einarsnesi eru sjö talsins. Blaðamaður nær að hóa þeim saman í gegnum Soffíu Björgu, tónlistarkonu sem einmitt er ein úr hópnum. Planið var að hitta öll systkinin í Einarsnesi á æskuslóðum og tókst það. Þau eru fædd á tuttugu ára…Lesa meira

true

Sagnaritari samtímans tekinn tali

Þórunn Reykdal frá Arnheiðarstöðum í Hálsasveit   Áhugaljósmyndarar finnast víða og fór þeim fjölgandi eftir að stafræn ljósmyndatækni gerði slíkt áhugamál í senn ódýrara og auðveldara en þekktist á filmu- og framköllunartímabilinu. Þeir eru ekki endilega að ljósmynda í atvinnuskyni heldur drífur áhuginn og áhugamálið þá áfram. Mjög víða stunda áhugaljósmyndarar ómetanlega samtímaskráningu fyrir sín…Lesa meira

true

„Að vera bæjarstjóri er ekki starf heldur lífsstíll“

Kristinn Jónasson tók við starfi bæjarstjóra Snæfellsbæjar árið 1998, þá 32 ára gamall. Nú tuttugu árum síðar gegnir hann starfinu enn og er í hópi reyndustu bæjar- og sveitarstjóra landsins. Skessuhorn hitti Kristin að máli á bæjarskrifstofunni á Hellissandi fyrir skemmstu og ræddi við hann um farinn veg, hvað hefði breyst og hvað ekki, starf…Lesa meira

true

Ferðin til Flateyrar

Bergur Garðarsson og Sumarliði Ásgeirsson voru á meðal þeirra sem voru kallaðir út til að leita að eftirlifendum eftir snjóflóðið mikla á Flateyri. Varðskipið Óðinn ferjaði tæplega sjötíu manns í óveðri þar sem flestir urðu sjóveikir. Ferðin var erfið í aftakaveðri og aðkoman á Flateyri var ekki síður mikil áskorun. Bergur og Sumarliði ræða um…Lesa meira

true

Átján dagar í Perú

Þóra Þórðardóttir fór í ævintýralega ferð til Perú fyrir rúmu ári. Hún kom heim reynslunni ríkari og ekki síst með nýja sýn á vestrænt samfélag. Þau hjónin fóru í fimm daga fjallgöngu, fundu fyrir háfjallaveiki, glímdu við ágengar moskítóflugur, magapestir og upplifðu Amazon-frumskóginn í öllu sínu veldi. Þóra er fyrrverandi stærðfræðikennari og kallar sig „snúbúa“,…Lesa meira

true

Komugjöld í heilsugæslu felld niður hjá öryrkjum og öldruðum

Hætt verður að innheimta komugjöld af öryrkjum og öldruðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum frá 1. janúar næstkomandi, samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Gildir það jafnt hvort sem um er að ræða komu á dagvinnutíma eða á öðrum tímum sólarhringsins. Gjald fyrir vitjanir lækna til aldraðra og öryrkja verður einnig fellt niður. Líkt og áður…Lesa meira

true

Minnisvarði vígður á Akranesi í dag

Í tilefni af hundrað ára afmæli gamla vitans á Breiðinni á Akranesi verður minnisvarði um fyrsta vísi að vita á Akranesi formlega vígður á Akurshóli í dag, fimmtudaginn 20. desember klukkan 17:00. Að athöfn lokinni er gestum boðið til móttöku í Akranesvita þar sem hljómsveitin Ylja mun flytja ljúfa tóna. Opið verður í Gamla vitann…Lesa meira

true

„Ég hef það mottó í lífinu að segja já við góðum hugmyndum“

Hólmfríður Friðjónsdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún lauk BA prófi frá HÍ árið 1989 í almennum málvísindum, þýsku og uppeldis- og kennslufræði og 8. stigi í einsöng frá Tónlistarskólanum í Reykjarvík árið 1996 þar sem Ruth. L Magnússon var aðalkennari hennar. Auk þess stundaði hún nám í klassískum gítarleik um alllangt skeið hjá…Lesa meira

true

Tvær Fjarverur til kennslu við FSN á vorönn 2019

Fjölbrautaskóli Snæfellinga fjárfesti á dögunum í nýjum fjarkennsluvélmennum, svokölluðum Fjarverum, til notkunar í skólanum. Búnaðurinn er frekar nýstárlegur en sambærilegur hefur verið notaður í Háskólanum á Akureyri. Menntaskólinn á Tröllaskaga var einnig að fjárfesta í Fjarverum og munu skólarnir vera í samvinnu um þetta erkefni og miðla hugmyndum og reynslu á milli sín. Búnaðurinn er…Lesa meira