
Skógræktarfélag Borgarfjarðar fagnaði áttræðisafmæli sínu á sérstökum hátíðarfundi í húsi gamla Héraðsskólans í Reykholti síðastliðinn sunnudag. Hátíðarfundinn setti Gísli Karel Halldórsson formaður afmælisnefndar og bauð gesti velkomna. Þá fór formaðurinn Óskar Guðmundsson í Véum yfir sögu félagsins og rifjaði upp áfangasigra og gat forystufólks í hreyfingu skógræktarmanna um áratugaskeið. Formaður lýsti svo kjöri nýrra heiðursfélaga…Lesa meira








