Fréttir

true

Ríflega fimm miljónir runnu til Minningarsjóðs Einars Darra

Af tilefni 25 ára afmælis Domino‘s á Íslandi bauð pizzastaðurinn upp á ýmis tilboð í lok nóvember. Í stað þess að hafa sérstakt tilboð laugardaginn 24. nóvember síðastliðinn rann 25% af allri sölu á Domino‘s pizzum til Minningarsjóðs Einars Darra sem styrkir baráttuna Ég á bara eitt líf. Alls söfnuðust 5.295.269 krónur og rennur upphæðin…Lesa meira

true

Guðlaug opnuð á morgun

Guðlaug, heit laug við Langasand á Akranesi, verður formlega tekin í notkun á morgun, laugardaginn 8. desember kl. 14:00. Boðið upp á kaffi og konfekt á Aggapalli að athöfn lokinni. Þá verður þeim sem vilja jafnframt boðið að fara til laugar og eru gestir því minntir á að hafa sundfötin með sér.Lesa meira

true

Viðgerð á Hellnakirkju mjög aðkallandi verkefni

Arnaldur Máni Finnsson sóknarprestur á Staðastað segir að ferðalangar, innlendir sem erlendir, tali oft um og hrífist af öllum litlu fallegu kirkjunum á landsbyggðinni. Það sé þó langt í frá að hægt sé að sýna þær allar eða hafa þær almennt opnar, eins og tíðkaðist, en þær séu vinsælar þegar sómi sé að þeim. Búðakirkja…Lesa meira

true

Hálkublettur á flestum vegum

Nú í morgun er hálka eða hálkublettir á flestum fjallvegum sem og á láglendi á vegum á Vesturlandi. Við slíkar aðstæður er einkar mikilvægt að aka gætilega.Lesa meira

true

Rósa í leyfi frá bæjarstjórnarstörfum

Rósa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra í Grundarfirði, hefur óskað eftir tímabundu leyfi frá bæjarstjórnarstörfum, vegna anna í sínu daglega starfi. Hún starfar sem kunnugt er framleiðslustjóri Guðmundar Runólfssonar ehf. Fyrirtækið stendur um þessar mundir í miklum framkvæmdum vegna byggingar á nýrri og hátæknilegri fiskvinnslu í Grundarfirði. Beiðni Rósu um tímabundna lausn frá bæjarstjórnarstörfum…Lesa meira

true

Fasteignaviðskipti á Vesturlandi í nóvember

Alls var 36 kaupsamningum um fasteignir á Vesturlandi þinglýst í nóvember. Þar af voru 12 samningar um eignir í fjölbýli, 18 samningar um eignir í sérbýli og sex samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.143 milljónir króna í þessum viðskiptum og meðalupphæð á samning því 31,8 milljón króna. Af þessum 36 voru 14 samningar…Lesa meira

true

Stöðug áskorun að manna stöður heilsugæslulækna

Eins og fram kom í frétt hér á vefnum í gær þá er skerðing á læknisþjónustu í Grundarfirði þessa vikuna vegna forfalla læknis. Í fréttinni er haft eftir íbúa að það sé læknislaust „sem svo oft áður“. Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE vill í þessu samhengi benda á að það gerist sem betur ekki oft…Lesa meira

true

Jólamorgunstund í Brekkubæjarskóla

Árleg Jólamorgunstund var í Brekkubæjarskóla á Akranesi í morgun. Löng hefð er fyrir því að börnin í skólanum haldi morgunstund nokkrum sinnum yfir árið. Þá undirbúa nemendur atriði fyrir morgunstundina og foreldrar og aðrir nákomnir þeim koma og horfa á. Að þessu sinni var dagskráin í jólabúningi og jólasveinahúfur því áberandi. Nokkrir bekkir skólans höfðu…Lesa meira

true

Tónleikar í upphafi aðventu

Menningarnefnd Snæfellsbæjar stóð fyrir jólatónleikum í síðustu viku eins og svo oft áður í upphafi aðventu. Að þessu sinni var það söngkonan Guðrún Árný sem heimsótti Snæfellsbæ og söng Skólakór Snæfellsbæjar með henni í Ólafsvíkurkirkju. Voru tónleikarnir mjög vel heppnaðir þar sem Guðrún Árný flutti jólalög af mikilli einlægni bæði ein og með skólakórnum en…Lesa meira

true

Taka niður umferðarhraðann inn í Stykkishólm

Nú undir mánaðamótin voru starfsmenn Vegagerðarinnar að setja niður umferðareyju ásamt gangbrautarskiltum á þjóðveginum þar sem ekið er inn í Stykkishólm. Var þetta gert að beiðni bæjarfélagsins og til að ná niður hraða ásamt því að gera gangandi vegfarendum auðveldara að komast yfir veginn. Það er frekar óvenjulegt að svona framkvæmdir séu unnar á þessum…Lesa meira