Fréttir

true

Gallerí Ozone í nýtt húsnæði

Verslunin Gallerí Ozone á Akranesi verður flutt í nýtt húsnæði á næstu dögum. Verslunin hefur verið til húsa við Kirkjubraut 12 síðustu árin en verður nú flutt að Stillholti 23, þar sem verslunin Hljómsýn var m.a. áður til húsa. „Okkur finnst núverandi húsnæði of stórt og langar að minnka við okkur,“ segir Maren Rós Steindórsdóttir,…Lesa meira

true

GRun er handhafi Nýsköpunarverðlauna Vesturlands 2018

Á Nýsköpunardegi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi síðastliðinn fimmtudag voru afhent árleg Nýsköpunarverðlaun. Þau kom að þessu sinni í hlut rótgróins fyrirtækis í landshlutanum, Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði. Í máli Páls S Brynjarssonar framkvæmdastjóra SSV kom fram að verðlaunin fengi fyrirtækið fyrir óvenju metnaðarfulla uppbyggingu nýrrar hátæknilegrar fiskvinnslu í Grundarfirði. Ekkert væri til sparað að…Lesa meira

true

Halda samsýningu í Brugghúsi Steðja

Næstkomandi sunnudag frá klukkan 13-17 halda tólf listamenn af Vesturlandi samsýningu í Brugghúsi Steðja í Borgarfirði. Sýning af þessu tagi er orðin að árlegum viðburði í aðdraganda aðventu. Boðið verður upp á súpu og kaffi og verk verða bæði til sýnis og sölu. -fréttatilkynningLesa meira

true

Viðurkenningar fyrir samstarf á sviði hönnunar úr ull

Fimm var í gær úthlutað verðlaununum „Icelandic lamb Award of Excellence 2018,“ sem er viðurkenning til framúrskarandi samstarfsaðila Icelandic Lamb í flokki handverks og hönnunar. Það eru: Anna Þóra Karlsdóttir listakona, Guðrún Bjarnadóttir hjá Hespuhúsinu í Andakíl, Hulda Brynjólfsdóttir og Tyrfingur Sveinsson fyrir Uppspuna, Philippe Ricart handverksmaður á Akranesi og Erla Svava Sigurðardóttir fyrir YARM.…Lesa meira

true

Styrkir til nýsköpunar á Vesturlandi

Síðdegis í gær var árlegur nýsköpunardagur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi haldinn. Þar sem einnig var úthlutað nýsköpunarstyrkjum úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Styrkirnir voru kynntir og afhentir við athöfn sem fram fór í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Við sama tækifæri voru nýsköpunarverðlaun Vesturlands afhent, en handhafi þeirra er valinn af teymi atvinnuráðgjafa SSV, sem leggur tillögu…Lesa meira

true

Skilafrestur veglykla rennur út um mánaðamótin

Starfsmenn Spalar höfðu fyrr í vikunni greitt viðskiptavinum félagsins liðlega helming þeirra fjármuna sem þeir áttu á áskriftarreikningum sínum, en um er að ræða andvirði ónotaðra ferða á veglykli og prentaðra afsláttarmiða. Þegar ríkið tók við rekstri Hvalfjarðarganga 1. október síðastliðinn áttu viðskiptavinir inni sem nemur 231 milljón króna. „Viðskiptavinir Spalar eru hvattir til að…Lesa meira

true

Fjölmargir viðburðir fyrirhugaðir á afmæli fullveldisins

Fjölmargir viðburðir hafa farið fram á Vesturlandi það sem af er afmælisári fullveldis Íslands og hafa þeir verið vel sóttir. Í landshlutanum verður fullveldisdeginum 1. desember fagnað á fjölbreyttan hátt. Ragnheiður Jóna Ingmarsdóttir er framkvæmdastjóri afmælisnefndar aldarafmælis fullveldis Íslands: „Í Grunnskólanum í Stykkishólmi verður sýning á verkefnum nemenda þar sem borin eru saman árin 1918…Lesa meira

true

Moses Hightower spilar í Frystiklefanum

Hljómsveitin Moses Hightower blæs til tónleika í Frystiklefanum í Rifi miðvikudaginn 28. nóvember næstkomandi. Daginn eftir verður sveitin í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Verður þetta í fyrsta sinn sem sveitin spilar á báðum þessara staða en meðlimir vonast til að geta komið sem oftast í framtíðinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá umboðsmanni hennar.…Lesa meira

true

Héldu ostagaman á Erpsstöðum

Um síðustu helgi buðu ábúendur á Erpsstöðum í Dölum sauð- og geitfjárbændum að koma í Rjómabúið með eigin mjólk og gera úr henni ost. Ellefu manns þekktust boðið og komu með um 60 lítra af geitamjólk og 40 lítra af sauðamjólk. Á laugardag var mjólkin gerilsneydd og síðan ostuð, bæði í feta og bire/camembert, auk…Lesa meira

true

Berg er ræktunarbú ársins á Vesturlandi

Á fundi Hrossaræktarsambands Vesturlands sem var haldin síðastliðinn laugardag, var ræktunarbú Vesturlands heiðrað og heiðursmerki HrossVest veitt. Að þessu sinni voru þrettán hrossaræktarbú tilnefnd og var Hrossaræktarbúið Berg við Grundarfjörð, bú þeirra Önnu Dóru Markúsdóttur og Jóni Bjarna Þorvarðarsyni, hlutskarpast. Lukkudís frá Bergi varð efst í flokki sex vetra hryssa með aðaleinkunnina 8,55, Ögri frá…Lesa meira