Fréttir

true

Moses Hightower spilar í Frystiklefanum

Hljómsveitin Moses Hightower blæs til tónleika í Frystiklefanum í Rifi miðvikudaginn 28. nóvember næstkomandi. Daginn eftir verður sveitin í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Verður þetta í fyrsta sinn sem sveitin spilar á báðum þessara staða en meðlimir vonast til að geta komið sem oftast í framtíðinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá umboðsmanni hennar.…Lesa meira

true

Héldu ostagaman á Erpsstöðum

Um síðustu helgi buðu ábúendur á Erpsstöðum í Dölum sauð- og geitfjárbændum að koma í Rjómabúið með eigin mjólk og gera úr henni ost. Ellefu manns þekktust boðið og komu með um 60 lítra af geitamjólk og 40 lítra af sauðamjólk. Á laugardag var mjólkin gerilsneydd og síðan ostuð, bæði í feta og bire/camembert, auk…Lesa meira

true

Berg er ræktunarbú ársins á Vesturlandi

Á fundi Hrossaræktarsambands Vesturlands sem var haldin síðastliðinn laugardag, var ræktunarbú Vesturlands heiðrað og heiðursmerki HrossVest veitt. Að þessu sinni voru þrettán hrossaræktarbú tilnefnd og var Hrossaræktarbúið Berg við Grundarfjörð, bú þeirra Önnu Dóru Markúsdóttur og Jóni Bjarna Þorvarðarsyni, hlutskarpast. Lukkudís frá Bergi varð efst í flokki sex vetra hryssa með aðaleinkunnina 8,55, Ögri frá…Lesa meira

true

Iðngreinar eru fyrir alla

Skagastelpan Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir útskrifaðist sem húsasmiður síðastliðið vor og stefnir á aðra útskrift í desember, þá sem tæknistúdent. Hefur hún þá lokið stúdentsprófi og iðnnámi á aðeins þremur og hálfu ári. Úlfheiður ólst upp á Akranesi en mamma hennar flutti í Borgarnes þegar Úlfheiður hóf nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og flutti hún…Lesa meira

true

Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo á Vesturlandi

Síðastliðin níu ár hefur fyrirtækið Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og birt lista yfir þau sem hafa sýnt fram á framúrskarandi og stöðugan árangur í rekstri. „Þessi fyrirtæki eiga það sammerkt að vera ábyrg í rekstri og skapa þannig sjálfbær verðmæti fyrir hluthafa og fjárfesta. Að þessu sinni hljóta 857 fyrirtæki á landsvísu viðurkenningu eða…Lesa meira

true

Glaðsmenn fögnuðu níræðisafmæli félagsins

Hestamannafélagið Glaður í Dölum fagnar 90 ára afmæli sínu í ár og af því tilefni var efnt til afmælisveislu og árshátíðar hestamanna á Vesturlandi um liðna helgi. Að sögn Þórðar Ingólfssonar var veislan góð, þétt setið í salnum og vel heppnuð samkoma í alla staði. „Hrossaræktarsamband Vesturlands hélt haustfund fyrr um daginn og kom það…Lesa meira

true

„Líklega versta nammi í heimi“

Geir Konráð Theodórsson, uppfinningamaður í Borgarnesi, hóf í byrjun mánaðarins sölu á hákarlanammi. Sælgætið er vegan og einkum hugsað fyrir erlenda ferðamenn og þá sem vilja bragða hákarl en neyta ekki dýraafurða. „Það virðist vera hálfgerð þjóðaríþrótt að troða hákarli upp í útlendinga,“ segir Geir í samtali við Skessuhorn en bætir því við að flest…Lesa meira

true

Framlengja frest til að skila haustskýrslum

Matvælastofnun vekur athygli á að frestur til þess að skila haustskýrslum vegna búfjárhalds hefur verið framlengdur til og með 2. desember nk. Umráðamenn hrossa sem aðeins telja fram hross á haustskýrslu, geta nú skilað haustskýrslu í heimarétt WorldFengs. Þeir umráðamenn sem einnig telja annað búfé fram á haustskýrslu þurfa nú að sækja upplýsingar um hrossin…Lesa meira

true

„Hún kom þegar sól var hæst á lofti og mér finnst að hún hafi verið það síðan“

Hjónin Arnór Páll Kristjánsson og Auður Jónasdóttir frá Eiði við Kolgrafafjörð fagna demantsbrúðkaupi sínu á morgun, fimmtudaginn 22. nóvember. Þau voru gefin saman í hjónaband árið 1958 í Setbergskirkju af séra Magnúsi Guðmundssyni. Arnór hefur búið alla sína ævi á Eiði að undanskildu síðasta ári en þau hjónin fluttu í þjónustuíbúið í Grundarfirði í árslok…Lesa meira