Fréttir

true

Vinveitt skip sagt á ferðinni

Stórt skip er búið að liggja í vari á Breiðafirði, skammt frá strönd Snæfellsness á liðnum dögum. Er þetta í annað skiptið á skömmum tíma sem skip þetta liggur við festar í skjóli frá landi. Það vakti athygli fréttaritara að skip þetta er ómerkt og hvorki að finna á vef Marinetraffic eða Sitewatch. Haft var…Lesa meira

true

Kannabis reyndist krydd

Í vikunni sem leið barst Lögreglunni á Vesturlandi ábending þess efnis að líklega væri verið að rækta kannabisplöntur í fjölbýlishúsi á Akranesi. Lögregla fór á staðinn til að kanna málið. Var húsráðandum nokkuð skemmt þegar lögreglu bar að garði og sögðust lengi hafa átt von á heimsókninni. Vísuðu þeir lögreglu fúslega á kryddplöntur sem ræktaðar…Lesa meira

true

Útgerðir fá frítekjumark af fyrsta hluta veiðigjalds

Atvinnuveganefnd Alþingis afgreiddi frumvarp um veiðigjald til annarrar umræðu í dag. Nefndin gerir tillögur um tilteknar breytingar á frumvarpinu. Þannig er t.d. lagt til að frítekjumark nemi 40% af fyrstu sex milljónum króna álagningar hvers árs hjá hverjum gjaldskyldum aðila. Slíkur afsláttur kemur sér hlutfallslega best fyrir smáútgerðir. „Með þessu leitast nefndin við að koma…Lesa meira

true

Meistaraflokkur ÍA sigraði á haustmóti

Haustmót Fimleikasambands Íslands í hópfimleikum fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi síðastliðinn laugardag. Meistaraflokkur kvenna hjá ÍA gerði sér lítið fyrir og sigraði í meistaraflokki með 46.860 stig. Gerpla sigraði 1. flokki með 45.965 stig. Gerpla-1 sigraði í 2. flokki með 48.425 stig. Þá sigraði Gerpla í flokki KK yngri með 27.075 stig…Lesa meira

true

Drunur og ljósagangur frá Draghálsi

Íbúar á Hvanneyri og í Skorradal tóku um sjöleitið í morgun eftir drunum og ljósagangi sem virtist berast ofan af Draghálsi. Ekki hafði verið tilkynnt um æfingar eða annað sem fram ætti að fara á svæðinu. Lögreglan á Vesturlandi kannast aðspurð ekki við ástæður þessa og því er talið útilokað að þyrla frá Landhelgisgæslunni hafi…Lesa meira

true

Árleg minningarathöfn um fórnarlömb samgönguslysa

Síðastliðinn sunnudag fór fram árleg athöfn á þyrlupallinum við Landspítalann í Fossvogi þar sem minnst var fórnarlamba umferðarslysa. Þar komu saman fjölmargir aðstandendur sem minntust ástvina sinna og fulltrúar ýmissa viðbragðsaðila en þeim var þakkað fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf. Þetta var í sjöunda sinn sem minningardagurinn er haldinn hér á landi en hliðstæð athöfn…Lesa meira

true

Brynjar Már sigraði þrefalt

Meistaramót BH í badminton var haldið í Hafnarfirði um síðustu helgi. Badmintonfélag Akraness sendi sjö keppendur á mótið sem allir stóðu sig með stakri prýði, eins og segir frá á Facebook-síðu félagsins. Brynjar Már Ellertsson varð þrefaldur meistari í A flokki. Hann sigraði í einliðaleik, tvíliðaleik með Pontusi Rydström og í tvenndarleik ásamt Brynju K.…Lesa meira

true

Íslandsmótið í atskák var haldið í Stykkishólmi

Íslandsmótið í atskák var haldið í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi um síðustu helgi. Teflt var bæði laugardag og sunnudag, fimm umferðir hvorn daginn. Jón Viktor Gunnarsson úr Víkingaklúbbnum fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með hvorki fleiri né færri en 9,5 vinninga af tíu mögulegum. Hann gerði aðeins jafntefli við Davíð Kristjánsson úr Fjölni en vann allar aðrar viðureignir sínar.…Lesa meira

true

Góð vinnustaðamenning OR og uppsagnir taldar réttmætar

„Vinnustaðarmenning hjá Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækjum er betri en gengur og gerist á íslenskum vinnumarkaði.“ Þetta er niðurstaða óháðrar úttektar á starfsmannamálum hjá OR samstæðunni sem kynnt var í dag. Þá kemur fram að uppsagnir þeirra Áslaugar Thelmu Einarsdóttur og Bjarna Más Júlíussonar hjá Orku náttúrunnar (ON) eru taldar réttmætar. Fram kemur í úttektinni að Áslaug…Lesa meira

true

Náttúran kallar… eftir tillitssemi

Í dag er alþjóðlegur klósettdagur Sameinuðu þjóðanna. Í ár er þemað Náttúran kallar og er áhersla lögð á náttúrulegar lausnir þar sem salerni og fráveitukerfi eru hönnuð þannig að þau vinni með vistkerfum jarðarinnar, m.a. með söfnun og meðhöndlun úrgangs sem svo er skilað aftur út í umhverfið. Þannig má lágmarka mengun og koma í…Lesa meira