Fréttir

true

Íslandsmótið í atskák var haldið í Stykkishólmi

Íslandsmótið í atskák var haldið í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi um síðustu helgi. Teflt var bæði laugardag og sunnudag, fimm umferðir hvorn daginn. Jón Viktor Gunnarsson úr Víkingaklúbbnum fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með hvorki fleiri né færri en 9,5 vinninga af tíu mögulegum. Hann gerði aðeins jafntefli við Davíð Kristjánsson úr Fjölni en vann allar aðrar viðureignir sínar.…Lesa meira

true

Góð vinnustaðamenning OR og uppsagnir taldar réttmætar

„Vinnustaðarmenning hjá Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækjum er betri en gengur og gerist á íslenskum vinnumarkaði.“ Þetta er niðurstaða óháðrar úttektar á starfsmannamálum hjá OR samstæðunni sem kynnt var í dag. Þá kemur fram að uppsagnir þeirra Áslaugar Thelmu Einarsdóttur og Bjarna Más Júlíussonar hjá Orku náttúrunnar (ON) eru taldar réttmætar. Fram kemur í úttektinni að Áslaug…Lesa meira

true

Náttúran kallar… eftir tillitssemi

Í dag er alþjóðlegur klósettdagur Sameinuðu þjóðanna. Í ár er þemað Náttúran kallar og er áhersla lögð á náttúrulegar lausnir þar sem salerni og fráveitukerfi eru hönnuð þannig að þau vinni með vistkerfum jarðarinnar, m.a. með söfnun og meðhöndlun úrgangs sem svo er skilað aftur út í umhverfið. Þannig má lágmarka mengun og koma í…Lesa meira

true

Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness

Mæðrastyrksnefnd Akraness stefnir á að árleg jólaúthlutun fari fram föstudaginn 14. desember næstkomandi. Nú vinna konur í nefndinni að söfnun styrkja og aðstoðar frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum til að gera úthlutunina mögulega. „Við stefnum á að styrkir að þessu sinni verði eingöngu í formi gjafakorta í matvöruverslunum,“ segir María Ólafsdóttir formaður nefndarinnar í samtali…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramót í línuklifri fór fram á Akranesi

Íslandsmeistaramótið í línuklifri fór fram um helgina á Akranesi. „Þetta er fyrsta Íslandsmeistaramót í línuklifri sem haldið er á Akranesi. Með nýrri og bættri klifuraðstöðu á Smiðjuloftinu hefur sá möguleiki opnast. Aðstaða til línuklifurs er með því besta sem gerist hér á landi og því er Smiðjuloftið mikil lyftistöng fyrir klifur á Íslandi,“ segir Þórður…Lesa meira

true

Skagamenn skotnir í kaf

Skagamenn máttu sætta sig við stórt tap, 77-118, þegar þeir mættu KR B í 2. deild karla í körfuknattleik í gær. Leikurinn fór fram á Akranesi. Jafnt var á með liðunum í fyrsta leikhluta og aðeins munaði fjórum stigum á liðunum að honum loknum. KR leiddi með 31 stigi gegn 27 stigum ÍA. Eftir það…Lesa meira

true

Mannauðsdagur Akraneskaupstaðar í dag

Akraneskaupstaður heldur í dag mannauðsdag. Af þeim sökum eru börn ekki í leik- og grunnskólum þar sem starfsfólk heldur starfsdag til skipulagningar. Fleiri stofnunum á vegum bæjarfélagsins verður lokað frá og með hádegi. Það eru bæjarskrifstofurnar, Íþróttamiðstöðin á Jaðarsbökkum, Fjöliðjan og Bókasafn Akraness.Lesa meira

true

Snæfellingar fengu skell

Snæfell mátti sín lítils gegn toppliði Þórs Ak. þegar liðin mættust í sjöttu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Leikurinn var einstefna nánast frá upphafi og gestirnir sigruðu að lokum stórt, 61-96. Liðin fylgdust að þar til um miðjan upphafsfjórðunginn. Þá hallaði heldur betur undan fæti hjá Snæfellingum, sem…Lesa meira

true

Skortur á eigin fé er stærsti þröskuldurinn inná húsnæðismarkaðinn

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að ráðast í sértækar aðgerðir til að gera ungu og tekjulágu fólki kleift að kaupa sér íbúðarhúsnæði. Stjórnin samþykkti tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, um skipun starfshóps sem á að útfæra ákveðnar aðgerðir í þessu skyni sem gefist hafa vel hjá grannþjóðum. Í tilkynningu segir að ákvörðunin sé í samræmi…Lesa meira

true

Sala á heimaslátruðu kærð til lögreglu

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á markaðssetningu á lambakjöti af heimaslátruðu sem fram fór á bændamarkaði á Hofsósi 30 september síðastliðinn. „Samkvæmt lögum um slátrun og sláturafurðir má einungis dreifa og selja kjöt sem hefur verið slátrað í löggiltu sláturhúsi og heilbrigðisskoðað af dýralækni á vegum Matvælastofnunar. Meint brot felst í því að taka…Lesa meira