Fréttir

true

Bilun er í stofnæð hitaveitunnar frá Deildartungu

Á ellefta tímanum í morgun varð bilun á Deildartunguæð rétt austan við Flókadalsá í Borgarfirði. Hitaveitulögnin flytur eins og kunnugt er heitt vatn úr Deildartunguhver til Borgarness og Akraness. Lokað var fyrir vatnsrennslið um leið og bilunin uppgötvaðist og viðgerð stendur nú yfir. Truflun verður á afhendingu á heitu vatni til nokkurra bæja í Borgarbyggð…Lesa meira

true

Nú fer hver að verða síðastur fyrir REKO á laugardag

Næsta afhending REKO Vesturland verður laugardaginn 17. nóvember á bílastæðinu við Dalbraut 1, Krónuna á Akranesi, milli klukkan 11 og 12. „Framboðið hefur aldrei verið meira. Tólf framleiðendur bjóða vörur sínar og er fjölbreytileikinn mikill,“ segir í tilkynningu. Í boði er úrval af lambakjöti, nautakjöti, mjólkurvörum, fiski og skelfiski, velferðarkjúklingur, kálfakjöt og innmatur, landnámshænsnaegg, tvíreykt…Lesa meira

true

Góð ferð sundgarpa úr Sundfélagi Akraness á Íslandsmeistaramót

Íslandsmeistaramót í 25m laug fór fram um síðustu helgi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Átti Sundfélag Akranes þar ellefu keppendur. Alls tók 171 sundmaður þátt frá 12 félögum. Ungmennin úr ÍA áttu mjög góða helgi þar sem persónulegar bætingar voru alls 44 og syntu þau 15 sinnum til úrslita á mótinu. Brynhildur Traustadóttir varð Íslandsmeistari í…Lesa meira

true

Bilun í hitaveitu á Akranesi

Vegna bilunar í götulögn hitaveitu á Akranesi segir í tilkynningu frá Veitum að búast megi við lágum þrýstingi á heitu vatni í dag austan Þjóðbrautar til klukkan 19 í kvöld, þriðjudag.Lesa meira

true

Fórnarlamba umferðarslysa minnst

Fórnarlamba umferðarslysa á Íslandi verður minnst á alþjóðlegum minningardegi sunnudaginn 18. nóvember. Minningarathöfn verður við þyrlupallinn við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík kl. 16 en þetta verður í sjöunda sinn sem minningardagurinn er haldinn hér á landi. Hliðstæð athöfn fer fram víða um heim undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í…Lesa meira

true

Hafna hækkunarbeiðni Íslandspósts

Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 21/2018, þar sem stofnunin hafnar erindi Íslandspósts ohf. um 8% hækkun á gjaldskrá félagsins innan einkaréttar.  Í ákvörðun stofnunarinnar kemur m.a. fram að krafa félagsins um 8% hækkun, sem byggðist á magnminnkun, sé hærri en sem nemur tekjutapi félagsins af þeirri magnminnkun sem erindi félagsins byggir á.Lesa meira

true

Skagamenn misstu af sigrinum

Skagamenn tóku á móti Val B í 2. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir jafnan og spennandi leik missti ÍA liðið gestina fram úr sér á lokamínútunum og þurftu því að sætta sig við tap, 78-89. Þó að leikurinn hafi verið hraður breyttist stigataflan hægt í fyrstu. ÍA pressaði hátt sem getur verið tvíeggja…Lesa meira

true

Kynnum kindina sigraði fyrsta Lambaþonið

Verkefnið „Kynnum kindina“ bar sigur úr býtum í fyrstu keppni Lambaþons sem fram fór á Hvanneyri um liðna helgi. Keppt var um bestu hugmyndina til að auka verðmætasköpun í virðiskeðju sauðfjár. „Kynnum kindina“ gengur út á að kynna kindur sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn og gefa þeim kost á að upplifa með auðveldum hætti ýmis störf…Lesa meira

true

Afleitur síðari hálfleikur Snæfells

Snæfellingar mættu Selfyssingum á útivelli í 1. deild karla í körfuknattleik á laugardag. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik datt botninn algerlega úr leik Snæfells í þeim síðari og þeir töpuðu að lokum stórt, 96-51. Snæfellingar byrjuðu betur, skoruðu fyrstu fimm stig leiksins, höfðu undirtökin lengst framan af fyrsta leikhluta og leiddu að honum loknum, 17-18.…Lesa meira