Fréttir

true

Tap í kaflaskiptum leik

Skallagrímsmenn máttu sætta sig við tap í kaflaskiptum leik gegn Haukum. 82-80, þegar liðin mættust í sjöttu umferð Domino‘s deildar karla. Leikið var í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Borgnesingar byrjuðu leikinn af krafti og voru mun sterkari allan upphafsfjórðunginn. Þeir náðu mest tólf stiga forskoti í stöðunni 10-22 en leiddu með átta stigum eftir leikhlutann, 18-26.…Lesa meira

true

Snæfell á toppnum eftir sigur á Breiðabliki

Snæfell vann góðan sigur á baráttuglöðu liði Breiðablikis, 80-69, í áttundu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Bæði lið mættu ákveðin til leiks, spiluðu hratt og voru tilbúin að berjast. Breiðablik hafði heldur yfirhöndina fyrstu mínúturnar. Snæfell komst yfir fyrir miðjan fyrsta leikhluta og leiddi með ellefu stigum að…Lesa meira

true

Lést í kjölfar umferðarslyss í Borgarfirði

Ökumaður bifreiðar, sem valt í gærkvöldi á Borgarfjarðarbraut norðan við Flókadalsá, var úrskurður látinn skömmu eftir komu á slysadeild. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að tildrög slyssins og orsakir liggi ekki fyrir en unnið er áfram að rannsókn málsins. Maðurinn var erlendur en starfsmaður á svínabúi í Hálsasveit. Hann var einn í bílnum.Lesa meira

true

Misstu dampinn í síðari hálfleik

Skallagrímskonur máttu sætta sig við tap gegn Val þegar liðin mættust í áttundu umferð Domino‘s deildar kvenna í Borgarnesi í gær. Eftir að hafa verið öflugri framan af leik misstu Skallagrímskonur flugið í síðari hálfleik og töpuðu að lokum með 74 stigum gegn 96. Borgnesingar byrjuðu leikinn af miklum krafti, léku þétta vörn og héldu…Lesa meira

true

Norræn bókmenntavika og Dagur íslenskrar tungu í Snorrastofu

Nú í vikunni 12.-18. nóvember helgar Snorrastofa í Reykholti norrænum bókmenntum og Degi íslenskrar tungu krafta sína. Það er samband norrænu félaganna, sem hvetur til vikunnar, nú í 22. sinn. Þar er leitast við að efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir. Við upphaf vikunnar verður í Snorrastofu morgunstund með yngstu nemendum á Kleppjárnsreykjum, sem…Lesa meira

true

Jóhann fannst látinn á Spáni

Skagamaðurinn Jóhann Gíslason, sem saknað hefur verið á Spáni síðan í júlí í sumar, fannst látinn þar í landi í síðustu viku. Spænska lögreglan hefur staðfest það og aðstandendur hans verið látnir vita. Að sögn lögreglunnar á Vesturlandi liggja ekki fyrir vísbendingar um að andlát Jóhanns hafi borið að með saknæmum hætti. Jóhann flaug til…Lesa meira

true

Unnið er að stofnun miðhálendisþjóðgarðs

Í umhverfisráðuneytinu er hafinn undirbúningur að stofnun miðhálendisþjóðgarðs. „63% almennings á Íslandi er fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, ferðamenn nefna sem aðdráttarafl hálendisins að þar sé einstök náttúra og þverpólitísk nefnd vinnur nú að því að undirbúa stofnun miðhálendisþjóðgarðs.“ Þetta er meðal þess sem fram kom á umhverfisþingi sem umhverfis- og auðlindaráðherra boðaði til…Lesa meira

true

Bjórböðin hljóta nýsköpunarverðlauna SAF

Samtök ferðaþjónustunnar afhenda árlega nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Bjórböðin á Árskógssandi við Eyjafjörð eru handhafar verðlaunanna að þessu sinni. Verðlaununum er ætlað að hvetja frumkvöðla landsins til dáða í ferðaþjónustu. Þetta er í fimmtánda sinn sem SAF veita nýsköpunarverðlaun samtakanna en þetta árið…Lesa meira

true

Alvarlegt umferðarslys í Borgarfirði

Á sjöunda tímanum í kvöld varð alvarlegt umferðarslys á Borgarfjarðarbraut skammt norðan við Flókadalsá þegar bíll fór útaf og valt nokkrar veltur. Fjölmennt lið viðbragðsaðila var kallað til sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Beita þurfti klippum á bílinn til að ná hinum slasaða út. Var hann fluttur alvarlega slasaður meið þyrlunni á sjúkrahús í Reykjavík. Lögreglan…Lesa meira