Fréttir

true

Northern Wave kvikmyndahátíðin haldin í ellefta sinn um helgina

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave, eða Norðanáttin, fer fram í ellefta sinn nú um helgina; 26.-28. október. Verður hún í Frystiklefanum í Rifi á Snæfellsnesi. Dögg Mósesdóttir, skipuleggjandi hátíðarinnar frá upphafi, segir að hátíðin hafi náð að festa sig vel í sessi og viðtökur við henni verið góðar. „Við höfum samt mætt smá erfiðleikum, þar sem…Lesa meira

true

Vökudagar hefjast í kvöld með upptakti

Lista- og menningarhátíðin Vökudagar á Akranesi hefst með svokölluðum upptakti í Tónbergi í kvöld. Á morgun hefst hátíðin síðan formlega og stendur yfir fram á sunnudag 4. nóvember. Dagskráin er þétt skipuð alla dagana og verða viðburðir haldnir um allan bæ. Má sem dæmi nefna kvöldvöku með hljómsveitinni Á móti sól og tónleika á Gamla…Lesa meira

true

Haustfagnaður í Dölum um helgina

Haustfagnaður Félags Sauðfjárbænda í Dalasýslu verður nú um helgina, dagana 26. og 27. október. Fagnaðurinn er fyrir löngu orðinn árviss viðburður, nokkurs konar uppskeruhátíð sauðfjárbænda í Dölum og nágrenni. Það er stjórn FSD sem skipuleggur gleðina í sameiningu, með góðri aðstoð íbúa í Dölum. Dagskráin verður að mestu með hefðbundnu sniði miðað við síðustu ár,…Lesa meira

true

Styttist í fyrsta ungmennaþingið

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið í fyrsta sinn dagana 2. og 3. nóvember næstkomandi. Verður það haldið að Laugum í Sælingsdal. Sveitarstjórnarfulltrúum á Vesturlandi er boðið að taka þátt í dagskrá þingsins á laugardeginum. Ungmennaþingið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Vesturlandi, ungmennaráða þeirra og SSV, en verkefnið er áhersluverkefni í Sóknaráætlun Vesturlands. Markmið þingsins er meðal annars…Lesa meira

true

Bragi Þórðarson gerður að heiðursborgara Akraneskaupstaðar

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ákveðið að útnefna Braga Þórðarson heiðursborgara Akraneskaupstaðar. Fer útnefningin fram við athöfn í Bókasafni Akraness að kvöldi fimmtudagsins 1. nóvember. Bragi segir í samtali við Skessuhorn að þessi viðurkenning hafi komið sér þægilega á óvart og kveðst hann í senn hrærður, stoltur en ekki síst þakklátur fyrir þá viðurkenningu sem hans gamla…Lesa meira

true

Hálkublettir á fjallvegum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að nú eru hálkublettir á Holtavörðuheiði en krapi á Laxárdalsheiði og í Svínadal. Á Vestfjörðum er snjóþekja, krapi eða hálka og éljagangur á flestum leiðum. Þungært er á Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði og niður í Trostansfjörð.Lesa meira

true

Kvennafrídagurinn er í dag

Síðastliðið ár hafa frásagnir kvenna af áreitni, ofbeldi og misrétti á vinnustöðum undirstrikað að brýnt sé að tryggja öryggi kvenna og jaðarsettra hópa á vinnumarkaði. „Nú er nóg komið, konur eiga að vera óhultar heima og óhultar í vinnu,“ segir í tilkynningu um baráttufundi sem halda á víða um land í dag. „Samkvæmt nýjustu tölum…Lesa meira

true

Soffía Björg með tónleika í Landnámssetrinu

Tónlistarkonan Soffía Björg Óðinsdóttir frá Einarsnesi í Borgarfirði boðar til tónleika í Landnámssetrinu í Borgarnesi annað kvöld, fimmtudaginn 25. október. Þar mun hún leika útgefið efni í bland við óútgefið. Soffía gaf út sína fyrstu plötu á stafrænu formi á síðasta ári og hefur hún fengið góðar viðtökur. Síðan hefur hún verið iðin við kolann.…Lesa meira

true

Jón Þór tekur við þjálfun A landsliðs kvenna

Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari A landsliðs kvenna í knattspyrnu til næstu tveggja ára. Aðstoðarþjálfari hans verður Ian Jeffs, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍBV. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Knattspyrnusamband Íslands hélt í gær. Jón Þór tekur við af Frey Alexanderssyni sem hafði séð um þjálfun landsliðsins frá árinu 2013. Guðni…Lesa meira

true

Mál gegn Hval fellt niður að kröfu VLFA

Mál Verkalýðsfélags Akraness gegn Hval ehf. fyrir Félagsdómi hefur verið fellt niður að kröfu verkalýðsfélagsins. Málskostnaðaður féll niður. Morgunblaðið greindi frá. Forsaga málsins eru deilur VLFA við Hval á liðnu sumri sem áður hefur verið greint frá í Skessuhorni. Verkalýðsfélagið stefndi Hval fyrir félagsdóm og krafðist þess að viðurkennt yrði að gildandi kjarasamningur Starfsgreinasambandsins og…Lesa meira