Fréttir

true

Húsfyllir á minningarsamveru um Atla Snæ

Vel var mætt á minningarsamveru sem haldin var í Borgarneskirkju að kvöldi föstudagsins 12. október síðastliðinn. Þar var Atla Snæs Jónssonar minnst, en þennan sama dag voru 22 ár frá fæðingu hans og ríflega 20 ár frá því hann lést. Ýmsir listamenn stigu á stokk og má þar nefna Svavar Knút, Þóru Sif, Daða, Anítu,…Lesa meira

true

Leikskólinn Klettaborg varð 40 ára í liðinni viku

Síðastliðinn fimmtudag voru 40 ár liðin frá því leikskólinn Klettaborg var fyrst opnaður við Borgarbraut 101 í Borgarnesi og var því fagnað með pompi og prakt allan afmælisdaginn. Þegar blaðamaður Skessuhorns kom þar við skömmu fyrir hádegi mættu honum prúðbúin börn á leið sinni á dansiball í sal leikskólans. Allir voru klæddir í sitt fínasta…Lesa meira

true

Jón Þór að taka við kvennalandsliðinu

Allt bendir til þess að Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson verði næsti þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattpsyrnu. Viðræður Jóns Þórs við Knattspyrnusamband Íslands vegna starfsins hafa staðið yfir í rúma viku. Samkvæmt heimildum Skessuhorns eru viðræðurnar langt á veg komnar og undirskrift samnings á næsta leiti. Jón Þór lét af störfum sem aðstoðarþjálfari karlaliðs Stjörnunnar fyrr…Lesa meira

true

Frumvarp sem styðja á við íslenska bókaútgáfu

Með frumvarpi um stuðning við bókaútgáfu er lagt til að komið verði á fót nýju stuðningskerfi sem heimilar endurgreiðslu 25% beins kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær en það er liður í heildstæðum aðgerðum stjórnvalda til stuðnings íslenskri tungu sem ráðherra kynnti fyrr…Lesa meira

true

Eftirspurn eftir slátrun er umfram væntingar

Eins og greint var frá í Skessuhorni í september tók hópur áhugafólks um rekstur sláturhúss í Borgarnesi sláturhúsið í Brákarey á leigu í haust og stendur þar fyrir slátrun. Að sögn Þorvaldar T Jónssonar forsvarsmanns hópsins hefur eftirspurn eftir slátrun verið umfram væntingar í haust. „Það er næstum uppbókað í október svo við ætlum að…Lesa meira

true

„Allir geta unnið sínu umhverfi eitthvað gott“

Halla Margrét Jónsdóttir er einn nemenda í stjórnmálafræðiáfanga sem kenndur er við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Á dögunum fengu nemendur það verkefni að taka viðtal við stjórnmálamann, núverandi eða fyrrverandi. Halla Margrét og Hanna Louisa tóku viðtal við reynsluboltann Ingibjörgu Pálmadóttur á Akranesi. Halla vann síðan texta upp úr viðtalinu og fékk góða endurgjöf frá…Lesa meira

true

Bæta kynheilbrigðisþjónustu

Bæta á aðgengi kvenna, einkum ungra kvenna, að kynheilbrigðisþjónustu og nýta betur fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra samkvæmt frumvarpi til breytinga á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að leggja fram á Alþingi. Samkvæmt því verður ljósmæðrum og hjúkrunarfræðingum heimilað að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum. Ráðherra kynnti frumvarpið á fundi…Lesa meira

true

Vegagerðin mælir áfram með leið Þ-H um Reykhólasveit

Telur Þ-H leið ódýrari kost, öruggari og styttri Vegagerðin hefur birt niðurstöðu frumathugunar á vænleika þess að leggja Vestfjarðaveg um Reykhóla og með brú yfir utanverðan Þorskafjörð, en að öðrum kosti að fara svokallaða Þ-H leið um Teigsskóg. „Niðurstaða könnunar Vegagerðarinnar á svokallaðri R-leið um Reykjanes og utanverðan Þorskafjörð er að hún er töluvert dýrari…Lesa meira

true

Styrkja fótboltann vegna góðs árangurs

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í liðinni viku var samþykkt tillaga Rakelar Óskarsdóttur bæjarfulltrúa um að veita KFÍA styrk að fjárhæð ein milljón króna vegna árangurs meistaraflokks og annars flokks karla í knattspyrnu í sumar. Meistaraflokkur karla sigraði eins og kunnugt er í Inkasso deildinni og fer sem sigurvegari í Pepsí deildina að ári.  Annar flokkur…Lesa meira

true

Ísland án sigurs í Þjóðadeildinni

Ísland er enn án sigurs í A deild Þjóðadeildar UEFA eftir 2-1 tap gegn Sviss á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill og lítið um opnanir. Staðan í hléinu var því 0-0 en Svisslendingar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti. Þeir komust yfir á 52. mínútu þegar Haris Seferovic skoraði með skalla af stuttu…Lesa meira